Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.07.2018, Qupperneq 35
29.7. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
BÓKSALA 18.-24. JÚLÍ
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Independent PeopleHalldór Laxness
2 Sumar í litla bakaríinuJenny Colgan
3 Vegahandbókin 2018Ýmsir höfundar
4 OfurhetjuvíddinÆvar Þór Benediktsson
5
Fyrstu mánuðirnir
– Ráðin hennar Önnu ljósu
Anna Eðvaldsdóttir / Sylvía
Rut Sigfúsdóttir
6 UppgjörLee Child
7 Mínus átján gráðurStefan Ahnhem
8
Iceland Wild at Heart
Einar Guðmann / Gyða
Henningsdóttir
9 Marrið í stiganumEva Björg Ægisdóttir
10 Iceland Small WorldSigurgeir Sigurjónsson
1
Perlur úr ljóðum íslenskra
kvenna
Silja Aðalsteinsdóttir valdi
2 Ég er fagnaðarsöngurÝmsir höfundar
3 Eldgos í aðsigiVala Hafstað
4
Dauðinn í veiða-
færaskúrnum
Elísabet Jökulsdóttir
5 Bónus ljóðAndri Snær Magnason
6 SonnetturÞórarinn Eldjárn
7 Villimaður í ParísÞórunn Jarla Valdimarsdóttir
8 VetrarlandValdimar Tómasson
9 GamanvísnabókinÝmsir höfundar
10 Birtan yfir ánniÝmsir höfundar
Allar bækur
Ljóðabækur
Síðasta bók sem ég las var Sjálf-
stætt fólk eftir Halldór Laxness
sem var hreint út sagt rosaleg
upplifun. Þetta er í
þriðja skipti sem ég
les hana, en ég las
hana síðast í
menntaskóla og
lesturinn var allt
annar en þá.
Ég hef verið að
koma mér hægt og bítandi inn í
plöntu- og garðrækt og hef verið
að glugga í Garðrækt: Í sátt við
umhverfið. Eftir
því sem maður
eldist fær maður
meiri áhuga á
svona hlutum sem
bókin fer í á ná-
kvæman og
skemmtilegan
hátt.
Mig langar svo að tékka á bók-
inni Americanah
eftir Chimamanda
Ngozi Adichie sem
fjallar um afríska
innflytjendur í
Bandaríkjunum. Ég
hef líka verið að
nota Audible Ama-
zon forritið til að hlusta á hljóð-
bækur, en það getur verið frábært
að hlusta á þegar maður fer út að
ganga eða keyra.
ÉG ER AÐ LESA
Ragnheiður
Gröndal
Ragnheiður Gröndal er söngkona,
píanóleikari og lagasmiður.
Bókaforlagið Sæmundur hefur gefið út bókina
Enn logar jökull eftir Matthías Johannessen.
Þetta er tuttugasta og sjötta ljóðabók Matt-
híasar, en hann hefur einnig skrifað leikrit og
gefið út fjölda skáldverka annarra, skrifað
samtalsbækur og fræðibækur. Í bókinni eru
ljóð frá síðustu árum. Á kápu er bókin meðal
annars kynnt svo: „„Ég er vindurinn“ segir á
einum stað. Hann blæs úr fornum heimkynn-
um menningar og næðir um það frumstæða
mannkyn sem nú eigrar um jörðina og er
helsta vandamál hennar.“
Jón R. Hjálmarsson hefur skrifað nokkrar
ferðabækur á undanförnum árum. Ný bók eft-
ir hann heitir Landnámssögur við þjóðveginn
og eins og nafnið ber með sér rifjar Jón upp
sögur af landnámsmönnum og -konum og
tengir við helstu viðkomustaði ferðamanns á
leið um landið. Ferðalagið hefst í Reykjavík og
síðan er haldið vestur eftir hringveginum og
ýmsum leiðum út frá honum. Við sögu koma
meðal annars Ingólfur Arnarson, Skalla-
Grímur, Hrafna-Flóki, Auður djúpúðga, Ön-
undur breiðskeggur og Hrolleifur mikli. Ugla gefur út.
Rauða minnisbókin, skáldsaga Sofiu Lund-
berg, segir frá Doris sem óx upp við þröngan
kost í Stokkhólmi á þriðja áratug síðustu aldar.
Þegar hún var 10 ára gömul gaf faðir hennar
henni rauða minnisbók en í hana skyldi hún skrá
nöfn allra sem skiptu hana máli í lífinu. Níutíu
og sex ára gömul, nánast vina- og fjölskyldulaus,
ákveður Doris að skrifa sögu sína byggða á
minnisbókinni og rifjar upp viðburðaríkt líf og
manninn sem hún glataði en gat aldrei gleymt.
Bjartur gefur út.
NÝJAR BÆKUR
Lilý Erla Adamsdóttir er myndlistarkona að upp-lagi og segist hafa fengist við allskonar tilrauna-mennsku í listinni, en lauk svo meistaranámi í
listrænum textíl í Svíþjóð. „Textíll liggur einhvern veg-
inn svo vel fyrir mér. Amma mín kenndi mér að prjóna
þegar ég var fimm ára og ég hef alltaf leitað í textílinn, í
endurtekninguna og hugleiðsluna sem textíllinn býður
upp á; mynstur og prjón er svo ótrúlega róandi.
Ég byrjaði mína listskólagöngu á því að fara á text-
ílbraut Verkmenntaskólans á Akureyri, tók þar eitt ár
eftir stúdentspróf frá Menntaskólanum á Akureyri. Ég
fór svo í Listaháskólann en þar var engin textílaðstaða,
og þar gerði ég allskyns tilraunir, en fór svo aftur í text-
ílinn af því að ég hafði saknað hans allan tímann, fór í
Myndlistaskólann í Reykjavík og svo út til Svíþjóðar,“
segir Lilý, en að loknu náminu við Textilhögskolan i Bo-
rås kenndi hún við skólann og starfaði líka að listinni.
– Kvöldsólarhani er fyrsta ljóðabók þín. Var það liður
í tilraunamennskunni að skrifa ljóð?
„Ég hef skrifað alla tíð og mér finnst ég komast í nátt-
úrulegt flæði þegar ég nota tungumálið. Þegar bloggið
var sem nýjast og ferskast þegar ég var unglingur gerði
ég mikið af því að blogga, notaði það sem tjáningarleið.
Svo gerðist það eitt vorkvöld fyrir fjórum árum að ég
fór á flug og skrifaði kjarnann að þessari bók. Hún var
svo í vinnslu mjög lengi og allskonar sem kom inn á
milli, ég fór í starfsnám í Skotlandi og síðan til Svíþjóð-
ar.“
– … og svo lætur vita af því að þú sért að snúa heim
með því að senda frá þér ljóðabók.
„Það má segja það,“ segir Lilý og hlær. „Það er band í
þessari bók en fer í miklar flækjur, hendist upp og niður
og maður veit ekki alveg hvar þráðurinn er alltaf, en
hann er þarna. Svo hefur mér líka alltaf þótt mjög gam-
an að leysa flækjur. Mér finnst það svo skemmtilegt
með orðin að ef maður nálgast tungumálið í leik getur
maður skvett því á veggi og hent því upp í loftið og svo
lekur það niður, lendir einhvers staðar og býður upp á
svo skemmtilegt landslag.“
Eiríkur Örn Norðdahl ritstýrir bókinni og Lilý lætur
vel af samstarfinu. „Við náðum mjög vel saman, hann
heyrði og sá og skildi það sem ég var að reyna að gera.
Ég hefði ekki getað verið sælli með þetta samstarf.“
– Þú fékkst innblástur og til varð bók. Ertu með frek-
ari skrif í bígerð?
„Þetta er ekki búið, ég verð með í Pastel-ritröðinni
hjá Flóru á Akureyri og það kemur því út ný ljóðabók í
nóvember,“ segir Lilý og bætir við að í henni verði ljóð
sem hún hefur skrifað frá því Kvöldsólarhani varð
fullbúinn. „Mér finnst þetta vera einskonar trans sem ég
þarf að detta í þegar ég fer í þessi skrif, og þá er það
eins og tungumálið flæði í gegnum mig. Mér líður eins
og það flæði uppsprettulind í gegn og ég hef ótrúlega
mikla ánægju af því að fá vera með í þessum trans.
Þetta er raunverulegur leikur og mjög gefandi og ég hef
sjálf hlegið mig máttlausa þegar ég er í þessum ham.
Maður verður að geta leikið sér í gegnum lífið.“
Náttúrulegt flæði
Í síðasta skammti Meðgönguljóða, bókaraðar Partusar sem birtir ljóð nýrra
ljóðskálda, var meðal annars Kvöldsólarhani, bók Lilýar Erlu Adamsdóttur.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Myndlistarkonan og ljóðskáldið Lilý Erla Adamsdóttir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////