Morgunblaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 ., '*-�-��,�rKu�, KIEL/ - OG FRYSTITJEKI æli- & frystiklefar í öllum stærðum K Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Vinna við nýja vefsíðu Persónu- verndar stendur nú yfir og áætlað er að hún verði tilbúin í ágúst. Á vefsíðu stofnunarinnar segir að efni síðunnar sé ekki í samræmi við nýja persónuverndarlöggjöf sem tók gildi 15. júlí sl. Að sögn Þórðar Sveinssonar, skrifstofustjóra lögfræðisviðs Per- sónuverndar, þarf að uppfæra síð- una vegna þeirra nýjunga sem lög- gjöfin fól í sér. „Ný vefsíða mun miðast við nýju lögin og því sem þeim fylgir. Mun þar verða auðveldara að senda alls konar tilkynningar sem okkur eiga að berast á grundvelli laganna um persónuverndarfulltrúa og ör- yggisbresti og fleira,“ segir Þórður en auk þess þurfi að uppfæra allt eldra efni á síðunni í ljósi nýju lag- anna. Íþyngjandi á stórfyrirtæki Í nýrri löggjöf um persónu- vernd eru sett fram strangari skil- yrði á fyrirtæki er varða vinnslu persónuupplýsinga. Segir þar m.a. að allir þeir sem vinna með per- sónuupplýsingar, þ.m.t. allar stofn- anir, sum fyrirtæki og sveitarfélög, séu skyldugir til að tilnefna per- sónuverndarfulltrúa. Er þar verið að lögfesta nýja reglugerð Evr- ópuþings um vernd einstaklinga er tengjast vinnslu persónulegra upp- lýsinga. Mun hlutverk persónu- verndarfulltrúans t.a.m. felast í því að safna upplýsingum til að greina starfsemi fyrirtækisins og fylgjast náið með reglufylgni innan þess. Segir Þórður að á vefsíðu Per- sónuverndar sé hægt að nálgast upplýsingar og leiðbeiningar um nýju löggjöfina og þar á meðal upp- lýsingagjöf og leiðbeiningar fyrir fyrirtæki og stofnanir um hlutverk persónuverndarfulltrúans. Þar sé einnig að finna eyðublöð fyrir kvartanir er varða öryggisbrest. „En nýja vefsíðan mun auðvelda aðgengi að því að senda inn til- kynningar og ábendingar,“ segir hann. Vefsíða Persónuverndar ekki í samræmi við nýja löggjöf  Persónuvernd eykur upplýsingagjöf vegna nýrra laga Fornbílar setja sterkan svip á umferðina en þeim bregður oftast fyrir þegar sól skín í heiði og göt- ur eru þurrar. En í góða veðrinu er einnig til- valið að dytta að hinum öldnu farartækjum. Fornbílar teljast þeir sem orðnir eru 25 ára og eldri. Eigendur fornbíla hafa um langt árabil haldið hópinn í Fornbílaklúbbi Íslands. Í maí síðast- liðnum voru félagsmenn 1.225 talsins. Þegar sólin gerir vart við sig er að ýmsu að hyggja í bílamálum sem öðru Morgunblaðið/Árni Sæberg Dyttað að gömlum fáki í sumarblíðunni Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar hefur ákveðið á grundvelli at- kvæðagreiðslu að ganga til samn- inga við Fannar Jónasson bæjar- stjóra um endur- nýjun á samningi hans við bæinn til næstu fjögurra ára. Fannar hefur gegnt starfi bæjar- stjóra Grindavíkurbæjar frá janúar 2017. Ólga hefur verið í starfsmanna- málum í bænum að undanförnu og höfðu t.a.m. nokkrir starfsmenn bæj- arskrifstofunnar kvartað yfir sam- skiptaörðugleikum. Að sögn bæjarfull- trúa í Grindavík stóð valið milli tveggja einstaklinga sem metnir voru hæfastir í stöðuna. Sagði hann að mjótt hafi ver- ið á munum í kosningunni og að ekki séu allir ásáttir um niðurstöðuna. „Við göngum nokkuð sátt frá borði, þó að ekki ríki full sátt innan bæjarstjórnar um málið.“ ninag@mbl.is Fannar Jónasson Fannar áfram bæjarstjóri  Valinn hæfastur í Grindavík Axel Helgi Ívarsson axel@mbl.is Verð á miðum í Flugrútuna, eða Fly- bus, á vegum Kynnisferða frá BSÍ til Keflavíkurflugvallar hefur hækkað um rúm 50% á þremur og hálfu ári. Í upphafi marsmánaðar sl. hækkaði verð aðra leið með flugrútunni um 250 krónur og er nú 2.950 krónur. Verð í Flugrútuna til og frá Keflavík hækkaði um 600 krónur og er nú 5.500 krónur. Önnur leiðin með Fly- bus+ hækkaði úr 3.300 krónum í 3.950 krónur og báðar leiðir úr 5.900 krónum í 6.950. Stigvaxandi hækkanir frá 2014 Frá miðjum september 2014 hefur verð í flugrútuna hækkað í nokkrum skrefum til dagsins í dag. Fyrir þann tíma árið 2014 kostuðu báðar leiðir með Flybus+ 4.500 krónur og önnur leiðin 2.500 krónur. Þá var verð í „venjulegu“ Flugrútuna 1.950 krón- ur aðra leið og 3.500 krónur fyrir báðar leiðir. Verðið stóð óbreytt frá 2011 fram í miðjan september 2014, samkvæmt gögnum sem Morgun- blaðið hefur undir höndum frá Kynn- isferðum. Vegna útboðs á aðstöðu fyrir sætaferðir frá Keflavíkurflugvelli, þar sem Kynnisferðir buðu hæst allra, eða að 41,2% af veltu Flugrút- unnar á ferðum frá vellinum greiðist til Isavia ohf., reyndist óumflýjan- legt að hækka miðaverð í mars sl. Aðspurður hvað fleira valdi veruleg- um hækkunum á miðaverði síðustu ára segir Björn Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri Kynnisferða, að tölu- verðar launahækkanir á tímabilinu auk almennra kostnaðarhækkana, t.a.m. hækkunar olíuverðs, séu helstu orsakirnar. Ólíkar þjónustuleiðir í boði Í samanburði við flugvallarteng- ingar annars staðar í heiminum, þ.e. frá flugvelli og til miðbæjar og öfugt, telur Björn það óeðlilegt að bera saman verð rútuþjónustu sem keyrir beina leið og t.d. almenningssam- göngur sem stoppa á ýmsum stöðum og eru ef til vill niðurgreiddar af hinu opinbera. Sem dæmi kosta strætó- ferðir frá Reykjavík að Leifsstöð 1.840 krónur og þá hefur Strætó frí- an aðgang að stæði við flugstöðina. Er á pari við Heathrow Express Til samanburðar kostar far með Heathrow Express frá Heathrow- flugvelli beint til London 25 sterl- ingspund aðra leið, eða um 3.500 krónur. Telur Björn eðlilegra að bera saman verð flugvallaferða rútu- fyrirtækja hér og þjónustu eins og Heathrow Express. Hins vegar ef bókuð er ferð með Heathrow Ex- press nokkra mánuði fram í tímann býðst allt að rúmlega helmingi lægra verð, sem gildir á hvaða tíma dags sem er. Björn segir að slík gjaldskrá, þ.e. lægra verð ef bókað er með löngum fyrirvara, hafi komið til skoðunar hjá Kynnisferðum en ekki hafi verið ráðist í slíkar breytingar enn sem komið er. Miðinn hefur hækkað um rúm 50% Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Akstur Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða, segir að sam- keppnin sé hörð í sætaferðum milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar.  Miði í Flugrútuna kostaði 1.950 kr. árið 2014 en kostar nú 2.950 kr.  Óbreytt verð frá 2011 til sept- ember 2014 en hefur hækkað jafnt og þétt síðan þá  Hærri þóknun til Isavia útskýrir síðustu hækkun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.