Morgunblaðið - 02.08.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 02.08.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018 Holtasmári 1 201 Kópavogur sími 571 5464 Str. 38-52 Smart útileguföt, fyrir Verslunarmannahelgina Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Hvalveiðar hefur gengið ágætlega í sumar en það sem af er ári hafa veiðst 58 langreyðar. Gunnlaugur Fjólar Gunnlaugsson, stöðvarstjóri í Hvalstöðinni í Hvalfirði, segir að mikið dimmviðri hafi verið það sem af er sumri og það hafi torveldað veiði. „Veiðin fer auðvitað alveg eftir veðri og vindum. Það hefur verið mikil þoka og dimmviðri í sumar. Það gerir okkur talsvert erfiðara fyrir enda er þetta sjónveiði,“ segir Gunnlaugur og bætir við að Hvalur hf. hafi heimild til að veiða tæplega 200 dýr á þessu ári og því sé af nægu að taka. „Við erum langt frá því að fylla kvótann enda er hann í raun ótakmarkaður,“ segir Gunnlaugur. Spurður hvernig veiðin hafi geng- ið í ár samanborið við síðustu ár seg- ir Gunnlaugur veiðina vera mjög sambærilega. „Þetta hefur verið upp og ofan það sem af er sumri líkt og undanfarin ár. Þetta er auðvitað mjög misjafnt en veiðin í ár er klár- lega ekki verri en hún hefur verið síðustu ár,“ segir Gunnlaugur. Hafa veitt 58 langreyðar  Mikið dimmviðri og þoka hafa torveldað veiði það sem af er sumri  Veiði hvaldýra í ár er þó sambærileg við síðustu ár Morgunblaðið/ÞÖK Hvalveiði Veiðar hafa gengið ágætlega í sumar og eru á pari við síðustu ár. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Það sem af er ári hafa 670 einstak- lingar verið grunaðir um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og 622 grunaðir um ölvun við akstur á höfuðborgarsvæðinu. 1.135 hafa ver- ið stoppaðir af lögreglu vegna gruns um slík brot. Á árinu hefur ölvunar- akstursmálunum fjölgað um 41% og ávana- og fíkniefnaakstursbrotum um 53% miðað við sama tímabil síð- ustu þrjú ár. Meðalaldur þeirra sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum áv- ana- og fíkniefna það sem af er ári er um 31 ár og um 60% þeirra eru 31 árs eða yngri. Meðalaldur þeirra sem grunaðir voru um ölvun er tæp- lega 37 ár og um 60% hinna grunuðu eru 32 ára eða eldri. Guðbrandur Sigurðsson, aðal- varðstjóri umferðardeildar lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu, segir erfitt að fullyrða um ástæður fyrir þróuninni. „Ég hef ekki annað fyrir framan mig en þessar tölur. Þetta er ógnvænleg þróun,“ segir hann. Guðbrandur nefnir að sú breyting hafi orðið á síðustu árum að nú séu ávana- og fíkniefnaakstursbrot framin fleiri daga vikunnar. „Þetta virðist ekki vera skemmtanalífs- neysla, heldur virðist þetta ná yfir alla daga vikunnar. Ölvunarakst- ursbrotin eru frekar á kvöldin og um helgar,“ segir hann. Sá fyrirvari er gerður í svari lög- reglu við fyrirspurn Morgunblaðs- ins, að margir brotamenn séu hvort tveggja undir áhrifum áfengis og á- vana og/eða fíkniefna og séu því tví- taldir. Aðspurður segir Guðbrandur að þetta sé mjög algengt. Einnig gætu fleiri en einn einstaklingur verið skráðir fyrir sama brotinu vegna óvissu um það hver var raun- verulega við stýrið. Fjöldinn í sama far og áður fyrr Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræð- ingur og prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, segir útlit fyrir að fjöldi brota af þessum toga sé að ná sama fjölda og áður fyrr, að teknu tilliti til fólksfjölgunar. Frá áttunda áratug síðustu aldar fram til ársins 2008 hafi fjöldi brota af þessum toga verið um 2.000 á ári á landsvísu og fjöldi brota á höfuðborgarsvæðinu fylgi sömu línu og þróunin á lands- vísu. Eftir efnahagshrunið 2008 fækkaði skráðum brotum mjög, en fjölgar nú á ný. „Það virðist vera að þetta hafi mikið með frumkvæðiseftirlit lög- reglu að gera. Fjöldinn hefur síðan farið upp allra síðustu árin og það sem vafalítið er að gerast, er að lög- reglan er að setja þessi mál í meiri forgang og er mjög vakandi fyrir brotum af þessu tagi,“ segir hann. „Tölurnar einar og sér segja okkur það ekki hvort þessum brotum er raunverulega að fjölga eða ekki,“ segir hann. Helgi segir að vitað sé til þess að mikið sé af fíkniefnum á markaði hér á landi. „Líklega er líka meiri fjöl- breytni, en hvort það er meiri neysla er erfitt að segja til um. Mínar neyslumælingar sýna þó að kanna- bisneysla hafi aukist talsvert á síð- ustu fimm árum í yngri aldurs- hópum. Það er alveg skýrt að fleiri segjast nota slík efni,“ segir hann og nefnir að þetta gæti passað við tölur um aukinn akstur undir áhrifum áv- ana- og fíkniefna. „Samt sem áður er þetta mjög háð frumkvæðiseftirliti lögreglu,“ segir Helgi. Um 60% þeirra sem grunaðir hafa verið um ölvun við akstur voru með íslenskt ríkisfang, um 40% með er- lent. 82% grunaðra um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna voru með íslenskt ríkisfang og um 18% með erlent ríkisfang. „Það getur verið að einhverjir í þessum hópi séu erlendir ferða- menn, en við vitum að hér á landi eru margir innflytjendur líka. Við vitum að menningarleg viðmið, einkum í Suður- og Austur Evrópu eru að ein- hverju leyti önnur heldur en hjá okkur og í Skandinavíu. Það er sterkt í okkar menningu að keyra ekki þegar við erum búin að drekka, þröskuldurinn er að einhverju leyti hærri hjá okkur. Sumstaðar þykir ekki tiltökumál að aka eftir tvo til þrjá bjóra,“ segir Helgi og nefnir einnig Bandaríkin í þessu samhengi. Helgi telur að betur þurfi að ná til útlendinga búsettra hér á landi hvað forvarnir varðar og fræðslu. „Við þurfum að ná dálítið til þessa hóps og koma skilaboðunum inn í þennan hóp líka. Lögreglan velur ekki úr þessum hópi til að handtaka, en ég held að tölurnar æpi á það að við þurfum að ná til þessara hópa,“ segir Helgi. Ætluðum brotum hefur stórfjölgað  1.300 grunaðir um akstur undir áhrifum á höfuðborgarsvæðinu á árinu  „Ógnvænleg þróun“  Aukið eftirlit ástæða fyrir fleiri skráðum brotum  Munur milli þjóða í viðhorfi til ölvunaraksturs Morgunblaðið/Árni Sæberg Frumkvæði Fjölgun mála af þessu tagi má að einhverju leyti rekja til frumkvæðiseftirlits lögreglunnar á síðustu árum að sögn Helga Gunnlaugssonar. Morgunblaðið/Júlíus Fjölgun Á árinu hefur ölvunarakstursmálum fjölgað um 41% og ávana- og fíkniefnaakstursbrotum um 53% miðað við sama tímabil síðustu þrjú ár. Um 30% ökumanna sem grun- aðir voru um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna það sem af er ári hafa verið tekin tvisvar eða oftar á árinu og bera ábyrgð á um 55% brota í málaflokknum. Um 12% ökumanna, grunaðra um ölvun við akstur á þessu ári, hafa verið tekin tvisvar sinnum eða oftar og bera ábyrgð á um 23% slíkra brota það sem af er ári. „Það stækkar ört sá hópur fólks sem við tökum jafnvel oft í viku. Lögreglan þekkir bílana og fólkið. Þar af leiðandi eru þessir einstaklingar stoppaðir þegar þeir sjást í umferðinni,“ segir Guðbrandur og segir marga þeirra hafa verið svipta ökuréttindum. Hópur sem stækkar ört MARGIR TEKNIR OFT Í VIKU

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.