Morgunblaðið - 02.08.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
loftljós
2097/30
Hönnuður Gino Sarfatti
Takmörkuð útgáfa
Verð 265.000,-
Páll Vilhjálmsson setur hlutinaoft í annað samhengi en
gengur og gerist. Í gær vék hann
að launamálum í pistli á blog.is
undir yfirskriftinni Verður samið
um kaupLÆKKUN í vetur?
Þar sagði Páll:„Tiltrúin á ís-
lensku atvinnulífi
er í lægð, allar töl-
ur rauðar í kaup-
höllinni síðustu
daga. Fast-
eignaverð stendur í stað eða lækk-
ar sem undirstrikar litla trú á
framhaldi hagvaxtar síðustu ára.
Atvinnulífið skapar þau verð-mæti sem eru til skiptanna
milli fjármagns og launa. Ef
minna er til skiptanna fá allir
minna, bæði fjármagnseigendur
og launþegar.
Engar launahækkanir standa tilboða í vetur. Það myndi telj-
ast gott að halda launum í horf-
inu.
Svo geta menn, auðvitað, farið íverkföll til að tryggja sér
kauplækkun. Verkföll skapa engin
verðmæti.“
Það er rétt hjá Páli að sterkarvísbendingar eru um að ekk-
ert svigrúm sé til launahækkana á
næstunni.
Sagan segir þó að launalækkunsé ekki inni í myndinni, en
mikilvægasta verkefni samninga-
manna í komandi kjarasamningum
er að verja kaupmátt almennings
og koma í veg fyrir kollsteypur.
Það verður ekki gert með þeimóraunsæju kröfum sem hafa
verið settar fram að undanförnu.
Páll Vilhjálmsson
Verkefnið er að
verja kaupmáttinn
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 1.8., kl. 18.00
Reykjavík 13 léttskýjað
Bolungarvík 10 skýjað
Akureyri 14 skýjað
Nuuk 5 rigning
Þórshöfn 12 skýjað
Ósló 23 heiðskírt
Kaupmannahöfn 25 léttskýjað
Stokkhólmur 30 heiðskírt
Helsinki 29 léttskýjað
Lúxemborg 21 heiðskírt
Brussel 27 léttskýjað
Dublin 17 súld
Glasgow 16 rigning
London 24 heiðskírt
París 29 heiðskírt
Amsterdam 24 heiðskírt
Hamborg 27 heiðskírt
Berlín 30 heiðskírt
Vín 26 skúrir
Moskva 27 heiðskírt
Algarve 29 heiðskírt
Madríd 35 heiðskírt
Barcelona 33 heiðskírt
Mallorca 31 léttskýjað
Róm 32 rigning
Aþena 30 léttskýjað
Winnipeg 13 alskýjað
Montreal 24 alskýjað
New York 25 rigning
Chicago 25 skýjað
Orlando 30 rigning
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
2. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:39 22:30
ÍSAFJÖRÐUR 4:23 22:56
SIGLUFJÖRÐUR 4:05 22:40
DJÚPIVOGUR 4:03 22:05
Annríki verður hjá Faxaflóahöfnum
um helgina. Von er á átta skemmti-
ferðaskipum til Reykjavíkur og
Akraness með tæplega 7.000 far-
þega innanborðs. Minni skipin munu
leggjast að í Gömlu höfninni en þau
stærri í Sundahöfn.
Stærsta skemmtiferðaskip sum-
arsins, MSC Meraviglia, er vænt-
anlegt til Reykjavíkur á laugardag-
inn. Samkvæmt áætlun á skipið að
leggjast að Skarfabakka í Sunda-
höfn klukkan 8 að morgni og það
mun láta úr höfn klukkan 19 á
sunnudag. Þetta er þriðja heimsókn
skipsins í sumar og sú síðasta.
Áhugasamir fá því ekki fleiri tæki-
færi til að berja þetta risaskip aug-
um. MSC Meraviglia er jafnframt
stærsta skemmtiferðaskip sem kom-
ið hefur til landsins. Skipið er
171.598 brúttótonn, 316 metra langt,
breiddin er 43 metrar og djúpristan
tæpir níu metrar. Farþegar eru um
4.500 og í áhöfn 2.000 manns.
sisi@mbl.is
Mörg skip
væntanleg
um helgina
Hæsta fjall Svíþjóðar, Kebnekaise,
hefur farið illa út úr hitabylgjunni
sem hefur farið um Svíþjóð síðustu
vikur. Hæsti tindur fjallsins, sá
syðri, sem venju samkvæmt hefur
verið talinn 2.111 metra hár, hefur
nú verið endurmældur og mælist
2.097,5 metrar. Sænskir miðlar
greina frá því að von sé á að syðri
tindurinn hopi enn frekar og gæti
sá nyrðri þá staðið uppi sem hæsti
tindur landsins, en hann er nú að-
eins hálfum metra lægri.
Íslenska þjóðin getur nú tekið
gleði sína á ný því ljóst er að með
lækkuninni er Öræfajökull, hæsta
fjall Íslands, orðinn hærri en Kebne-
kaise á ný. Hvannadalshnúkur í
Öræfajökli hafði um einnar aldar
skeið, allt frá árinu 1904, verið talinn
2.119 metra hár og sú tala greypt í
allar kennslubækur, þar til Land-
mælingar Íslands endurmældu fjallið
árið 2005. Kom þá í ljós að tindurinn
var níu metrum lægri, 2.110 metrar.
Metra lægri en sænska fjallið.
Gunnar H. Kristinsson,
forstöðumaður mælingasviðs hjá
Landmælingum, segir hæðarmæl-
ingar þó alltaf vera fyrirvörum
háðar enda mælingaaðferðir ólíkar
auk þess sem tíðarfar ráði ná-
kvæmri hæð. Hann segir að ein-
hverjir hafi verið að bauka í því í
vetur og staðið í þeirri trú að fjall-
ið væri jafnvel hærra en 2.110
metrar. Ekki eru þó nein áform
uppi um endurmælingu hjá Land-
mælingum.
Ísland orðið hærra en Svíþjóð á ný
Hæsti tindur Svíþjóðar lækkar um rúma 13 metra í kjölfar nýrra mælinga
Mæling Kebnekaise lækkar.