Morgunblaðið - 02.08.2018, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 02.08.2018, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018 úruleg lausn við timburmönnum rirbyggjandi með því að vinna á móti atapi sem verður við áfengisneyslu. ur úr þreytu og óþægindum heldur amínósýrur, Rósepli, Cactus extract, ga blöndu af B-vítamínum og Magnesíum. u 2 töflur fyrir fyrsta drykk og 2 töflur fyrir svefn. • Nátt • Er fy vökv • Dreg • Inni öflu Slepptu þynnkunni með After PartyTM Fæst í apótekum, heilsubúðum og stórmörkuðum. Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Það er náttúrlega mjög þrungið loft í sveitarfélaginu. Það er komin bullandi kosningabarátta á milli þeirra sem eru hlynntir og þeirra sem eru andvígir. Það er mjög lífleg umræða um þetta,“ segir Haraldur S. Haraldsson, forseti bæjarstjórn- ar Árborgar, spurður um komandi íbúakosningar í sveitarfélaginu. Þann 18. ágúst n.k. verður íbúa- kosning um aðal- og deiliskipulag miðbæjar Selfoss sem samþykkt var í bæjarráði 13. júlí 2018. Nýr miðbær á Selfossi hefur ver- ið í umræðunni nú um árabil og stendur m.a. til að endurbyggja hús sem áður stóðu víðsvegar á landinu en eru horfin af sjónarsviðinu. „Deiliskipulag og þessi vinna sem við erum að kjósa um er með öllu búin að standa yfir í á þriðja ár,“ segir Helgi spurður um aðdragand- ann að kosningunum. Rætt um hús en ekki skipulag Undirskriftasöfnun þar sem ósk- að var eftir íbúakosningu um skipu- lagið lauk í apríl. Tæplega 33% kjósenda í sveitarfélaginu skrifuðu undir, en 29% þarf til að knýja fram íbúakosningu í sveitarfélaginu. Helgi segir umræðuna snúast að miklu leyti um hugmyndir að hús- um sem eiga að rísa á svæðinu en ekki aðal- og deiliskipulagið sjálft. „Það má túlka þetta þannig að fólk sem er á móti þessu, það er ekki að horfa á deili- og aðalskipu- lag sem slíkt heldur er það farið að horfa á húsagerð og annað þvílíkt. Deili- og aðalskipulagið gerir ekki grein fyrir því hvort að húsið lítur svona eða hinsegin út á skipulags- reit. Menn verða að miða við það að þeir séu að mótmæla deili- og að- alskipulagi. Margir segja að þeir séu ekkert á móti lóðunum og skipulaginu sem slíku heldur séu þeir á móti þessari húsagerð og endurbyggð á gömlum húsum,“ seg- ir Helgi og bætir við: „Þær skoðanir eru bara eins margar og fólkið er margt.“ Aðspurður hvort hann sé í hópi þeirra sem séu hlynntir hinu nýja skipulagi svarar Helgi: „Ég per- sónulega er leiður á þessu. Í mín- um huga langar mig að sjá ein- hverja uppbyggingu, hvort sem það er þessi eða einhver önnur. Í mínum huga er það fyrst og fremst að við lokum þessu ljóta sári og gerum þarna fallegan garð og miðbæ. Aðalmálið er að við verðum að koma því af stað að loka þessu sári.“ Teikning/Sigtún þróunarfélag Miðbærinn Til hefur staðið að endurbyggja hús sem áður stóðu víðsvegar á landinu en heyra nú sögunni til. „Bullandi kosninga- barátta“ í Árborg  Íbúakosning vegna miðbæjar Selfoss  Húsin deiluefni Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Orð gegn orði og skortur á sönnun- argögnum er ástæða þess að Hér- aðsdómur Reykjaness sýknaði á þriðjudag stuðningsfulltrúa hjá Barnavernd Reykjavíkur af ákærum um gróft kynferðisofbeldi gagnvart fjórum börnum og einum unglingi. Tekið er fram í dómnum að fulln- aðarsönnun þurfi fyrir hvert brot sem ákært er fyrir. Í dómnum kemur fram að fram- burður ákærða hafi að mestu leyti verið eins hjá lögreglu og fyrir dómi en hann hafi þó einkennst af nokkru minnisleysi. Skýring minnisleysisins er að hluta til talin vera að nokkuð sé um liðið frá því meint brot hafi átt sér stað og því geti mögulega verið erfitt að henda nákvæmlega reiður á tímasetningum. Tekið er fram að ákærði hafi verið sjálfum sér sam- kvæmur og út af fyrir sig ekki ótrú- verðugur eins og það er orðað í dómnum. Einnig er því haldið til haga í dómnum að við leit á heimili hins ákærða og í tölvubúnaði hans og tækjum hafi ekkert fundist saknæmt sem rennt gæti stoðum undir sekt hans. Stuðningsfulltrúanum var sleppt úr rúmlega sex mánaða gæsluvarðhaldi eftir að dómur var kveðinn upp. Í dómnum kemur fram að auk þess sem ákærði var sýknaður af öll- um kröfum ákæruvaldsins var einka- réttarkröfum allra brotaþola vísað frá. Allur sakarkostnaður við málið er greiddur úr ríkissjóði, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verj- anda ákærða, Arnars Kormáks Frið- rikssonar lögmanns, 20,1 milljón- króna, og útlagður kostnaður verjandans, 77.000 krónur. Enn fremur þóknun réttargæslumann- anna, Sævars Þórs Jónssonar lög- manns, 1,2 milljónir, Evu Dísar Pálmadóttur lögmanns, 1,3 milljónir auk útlagðs kostnaðar upp á ríflega 156 þúsund krónur, og Sigurðar Freys Sigurðssonar lögmanns, tæp- ar 1,5 milljónir. Telur sekt ekki vera sannaða  Trúverðugir framburðir brotaþola dugðu ekki til  Fullnaðarsönnun skorti Morgunblaðið/Ófeigur Dómur Í málinu var maðurinn sýknaður af öllum ákæruefnunum. Verði kjörsókn í komandi íbúa- kosningum í Árborg meiri en 29% er niðurstaða kosning- anna bindandi fyrir ákvörðun bæjarstjórnar um framhald málsins, en annars ráðgefandi. Spurningarnar á kjörseðlinum verða tvær. Annars vegar verð- ur spurt hvort kjósandi sé hlynntur eða andvígur tillögu að breytingu á aðalskipulagi Selfoss vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar í miðbænum og hins vegar verður spurt um afstöðu gagnvart deili- skipulagi í miðbæ Selfoss. Kosningin hefst klukkan 09.00 þann 18. ágúst n.k. og lýkur klukk- an 18.00. Niðurstaðan bindandi TVÆR SPURNINGAR Á KJÖRSEÐLINUM Helgi S. Haraldsson Framburður fjögurra brota- þola var talinn trúverðugur og framburður eins var ekki tal- inn ótrúverðugur. Ósamræmi í framburði hjá hluta brotaþola var talið geta stafað af því hversu langt var liðið frá meintum brotum og ungum aldri brotaþola. Fram kom að skýrslugjöf hefði tekið mjög mikið á einn brotaþola en engin gögn hefðu komið fram í málinu sem nægt hefðu til þess að renna stoðum undir sekt ákærða. Framburður fjölskyldu eins brotaþola styrkti í senn fram- burð hans og dró úr honum. Framburðir brotaþola DÓMURINN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.