Morgunblaðið - 02.08.2018, Síða 20

Morgunblaðið - 02.08.2018, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018 BURBERRY Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Bæjarráð Kópavogs hefur ákveðið að taka tilboði verktaka í byggingu viðbyggingar við Álfhólsskóla fyrir starfsemi Skólahljómsveitar Kópa- vogs. Miðað er við að húsnæðið verði tilbúið í lok næsta árs. Skólalúðrasveitin hefur verið með aðstöðu í Íþróttahúsinu Digranesi. Salurinn þar er talinn of lítill þannig að of mikill hljóðstyrkur er í honum, til baga bæði fyrir nemendur og kennara. Lengi hefur staðið til að koma upp varanlegri aðstöðu. Kennslustofur og tónleikasalur Ákveðið var að byggja við Álf- hólsskóla, húsnæði gamla Digra- nesskóla. Byggt verður við sam- komusal sem fyrir er. Nýtt húsnæði er 1.200 fermetrar að stærð og 200 fermetra rými til við- bótar endurnýjað. Þar verður aðal- aðstaða hljómsveitarinnar, kennslustofur og tónleikasalur fyrir hljómsveitaræfingar og litla tónleika. Hljómsveitin fer annað með sína stærri tónleika. Jafn- framt fer fram kennsla í skólum bæjarins. Nýja húsnæðið mun einnig nýtast Álfhólsskóla, eftir atvikum. Byggingin var komin inn á fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir síðasta ár. Framkvæmdin var síðan boðin út í upphafi árs 2018 og stóð til að byggja í ár. Til- boðin þóttu há og var þeim öllum hafnað og framkvæmin boðin út á ný. Sex tilboð bárust í þetta sinn og ákvað bæjarráð að taka tilboði Flotgólfs ehf. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 470 milljónir kr. og voru lægstu tilboð nálægt því, samkvæmt upplýsingum bæjarins. Morgunblaðið/Ómar Lúðrasveit Fjöldi barna og unglinga hefur fengið tónlistaruppeldi í Skólahljómsveit Kópavogs í 50 ára sögu hennar. Byggt yfir hljómsveit  Skólahljómsveit Kópavogs fær loksins gott æfingahúsnæði til afnota  Byggt við sal Álfhólsskóla í Digranesi Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Ítalska skipið Amerigo Vespucci mun sækja Reykjavík heim yfir verslunarmannahelgina. Skipið er þriggja mastra seglskip og þykir eitt glæsilegasta skip af sinni tegund í heiminum. Að sögn Péturs Björns- sonar, ræðismanns Ítalíu á Íslandi, þjónar skipið kennsluhlutverki fyrir ítalska flotann. Skipinu var fyrst hleypt af stokkunum árið 1931 og hefur verið víðförult síðan þá. „Þetta skip siglir víða um heim og kemur nú í fyrsta skipti í sögunni til Íslands. Okkur er sérstakur heiður sýndur með heimsókninni,“ segir Pétur. Hann segir skipið mikilvægan hlekk í stefnu ítalska flotans sem gerir þá kröfu að liðsforingjar kunni skil á gömlum og nýjum siglinga- aðferðum. „Þetta er því fljótandi kennslustofa ef eitthvað er.“ Að sögn Péturs er skipið allt hið glæsilegasta og var t.a.m. tekið í gegn að innan fyrir tveimur árum og í það settar umhverfisvænar vélar. Á skipinu starfa 124 liðsforingjar sem hafa verið í þjálfun frá því í byrjun júlí en heildarfjöldi á skipinu á sumrin er 450 manns. Skipið mun sigla að landi í Reykja- vík við Ægisgarð kl. 8 að morgni föstudags og fer aftur kl. 8 á mánu- dagmorgun. Þess á milli verður skip- ið opið almenningi á ákveðnum tím- um. Að sögn Péturs er sterk hefð fyrir sjóferðum á Ítalíu. „Ítalski flot- inn er talinn fimmti öflugasti floti heims og þar í landi er lögð mikil áhersla á sjóflotann,“ útskýrir Pét- ur. Hann hvetur áhugasama til að berja skipið augum yfir helgina. „Sérstakur heiður“  Seglskip á vegum ítalska flotans heimsækir Reykjavík yfir helgina Ljósmynd/Wikipedia Fljótandi kennslustofa Skipið þjónar kennsluhlutverki fyrir ítalska flotann.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.