Morgunblaðið - 02.08.2018, Side 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Í september mun vinafélag Þjóð-
minjasafnsins, Minjar og saga, efna
til ferðar fyrir félagsmenn sína á
slóðir Winstons S. Churchill. Félag-
ið stendur reglulega fyrir ferðum á
söguslóðir og söfn, bæði hér innan-
lands og erlendis. Nú mun félagið
heimsækja London og nágrenni.
„Churchill hefur verið nokkuð í
sviðsljósinu upp á síðkastið og því
býðst nú gott tækifæri að skoða
hann aðeins betur sem einstakling
og sjá hvernig hann varð svona stór
í sniðum,“ segir Kristján Garð-
arsson, fararstjóri og stjórnar-
maður Minja og sögu. „Við heim-
sækjum fæðingarstað hans,
Blenheim höll, og þiggjum þar leið-
sögn og hádegisverð. Það hefði átt
vel við Winston að búa í Blenheim,
en faðir hans var yngri sonur her-
togans og var því ekki erfingi að öll-
um þeim eignum og auðæfum.
Churchill lifði alltaf um efni fram en
bjó fjölskyldu sinni heimili í Chart-
well, sem varð í raun hans kastali en
þar hélt hann sína eigin hirð. Við
heimsækjum Chartwell og snæðum
þar hádegisverð, skoðum byggingar
og vinnustofuna þar sem hann mál-
aði og auðvitað múrsteinsveggina
sem hann hlóð af miklum móð þegar
þunglyndið sótti að.“
Í London er ferðinni heitið í Vic-
toria og Albert safnið og í neðan-
jarðarbyrgin þaðan sem ríkisstjórn
Bretlands stýrði aðgerðum í síðari
heimsstyrjöldinni. „Svo verður auð-
vitað rúmur frítími í London,“ segir
Kristján.
Í vetur stendur félagið svo fyrir
þéttri dagskrá fyrirlestra tengdra
starfi Þjóðminjasafnsins og stefnt
er að ferð á vegum Minja og sögu á
slóðir Íslendinga í Vesturheimi vor-
ið 2019.
„Bjargvættur
vestrænnar menningar“
Árni Sigurðsson, formaður
Churchill-klúbbsins á Íslandi, segir
Churchill hafa verið fjölhæfan mann
og bjargvætt vestrænnar siðmenn-
ingar. „Það sem gerði hann ein-
stakan var að hann var sá eini af
þremur stóru þjóðarleiðtogunum á
tímum seinni heimsstyrjaldarinnar
sem skrifaði stríðsendurminn-
ingar,“ segir Árni. Churchill er eini
stjórnmálaleiðtogi Bretlands sem
hefur unnið Nóbelsverðlaun. „Hann
er örugglega eini maðurinn í heim-
inum sem hefur orðið fyrir von-
brigðum yfir því að fá Nóbels-
verðlaun. Þegar honum var tilkynnt
að hann hefði fengið Nóbels-
verðlaun varð hann himinlifandi því
í hans huga voru það friðarverðlaun
Nóbels. Svo seinna um daginn
skýrðist að þetta voru ekki friðar-
verðlaunin heldur bókmenntaverð-
laun.“ Marka má aukinn áhuga á
Churchill að undanförnu en þátta-
röðin The Crown og bíómyndin
Darkest Hour hafa nýlega notið
mikilla vinsælda.
Pílagrímsferð á slóðir Churchills
Vinafélag þjóðminjasafnsins, Minjar og saga, stendur fyrir ferðinni Fjögurra daga dagskrá í
London og nágrenni Blenheim-höll og Chartwell sótt heim Aukinn áhugi á manninum Churchill
Höll Churchill fæddist og ólst upp í Blenheim-höllinni. Í ferðinni verður boðið upp á leiðsögn um höllina víðfrægu og snæddur hádegisverður þar.
Liðsmenn Taflfélagsins Hróksins
halda í dag til Kulusuk á Grænlandi
þar sem haldin verður árleg sumar-
hátíð Air Iceland Connect og
Hróksins.
Fram kemur í tilkynningu að
með í för verði tónlistarmennirnir
Birkir Blær Ingólfsson og Jónas
Margeir Ingólfsson.
Minningarmót
Frá Kulusuk verður haldið til
Tasiilaq á Austur-Grænlandi, en
þar verður á laugardag haldið tafl-
mót til minningar um Gerdu Vil-
holm, sem lést á síðasta ári.
Í tilkynningu Hróksins segir að
Gerda hafi rekið einu bókabúðina í
bænum, sem hafi verið í senn fé-
lagsmiðstöð og griðastaður
barnanna í bænum. Hún var heið-
ursfélagi í Hróknum, og börnin
sátu löngum stundum að tafli í litlu
búðinni hennar.
Hróksliðar munu að vanda heim-
sækja dvalarheimili aldraðra í Tasi-
ilaq, fangelsið og heimili fyrir börn
sem ekki geta dvalið hjá fjöl-
skyldum sínum. Fjölmargir leggja
til vinninga, gjafir og verðlaun, auk
aðalbakhjarlanna, AIC og Polar
Pelagic, ekki síst hannyrðafólk
Að tafli Hrókurinn hefur um árabil staðið fyrir skákkennslu á Grænlandi.
Hróksmenn halda
hátíð á Grænlandi
Winston Churchill var breskur rithöfundur, herleiðtogi
og stjórnmálamaður, fæddur 1874. Hann vann sem
fréttaritari þar til hann var kjörinn á þing fyrir Íhalds-
flokkinn árið 1900. Í gegnum tíðina gegndi hann ýms-
um ráðherraembættum og var flotamálaráðherra í byrj-
un fyrri heimsstyrjaldarinnar og aftur í byrjun þeirrar
seinni. Síðan var hann skipaður forsætisráðherra Bret-
lands 10. maí 1940, sama dag og Ísland var hernumið af
Bretum, og leiddi Breta til sigurs. Árið 1945 beið Churc-
hill ósigur í þingkosningum. Verkamannaflokkurinn
vann stórsigur og tók Clement Attlee við embætti for-
sætisráðherra. Churchill varð hins vegar forsætisráð-
herra á ný árið 1951 og var þá í fyrsta skipti kjörinn for-
sætisráðherra. Mikið hefur verið fjallað um farsælan
feril Churchills. Þar má nefna nýlegu þáttaröðina, The
Crown, sem hefur notið mikilla vinsælda, og myndina
Darkest Hour sem hlaut verðskuldaða athygli.
Leiðtogi á örlagatímum
MARGBROTINN OG EINSTAKUR FERILL CHURCHILLS SPANNAÐI MARGA ÁRATUGI
Leiðtoginn Winston Churchill var skipaður forsætisráðherra á
örlagatímum í hildarleik seinni heimsstyrjaldarinnar.
HEILSUNUDDPOTTAR
FRÁ SUNDANCE SPAS
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 www.tengi.is • tengi@tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
HEILSUNUDDPOTTAR OG HREINSIEFNI FYRIR HEITA POTTA