Morgunblaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018 Hjónin Guðbergur Egill Eyjólfsson og Birna Kristín Friðriksdóttir á bænum Brúnagerði, í grennd við Vaglaskóg í Fnjóskadal, opnuðu húsdýragarðinn Daladýrð í fyrra og eftir nokkra mánuði verður hann orðinn sá stærsti sinnar teg- undar hér á landi, nokkru stærri en húsdýragarðurinn í Reykjavík. „Við rákum lítinn húsdýragarð í Grýtubakkahreppi frá 2007 til 2010 en konan mín er með ofnæmi fyrir flestum dýrum og vildi hætta. Þrátt fyrir að ég vildi halda áfram létum við gott heita og snerum okkur að öðru,“ segir Guðbergur. Hjónin bjuggu í Reykjavík um tíma þar sem þau reka verslunina Gjósku við Skólavörðustíg en þar eru seld föt Birnu Kristínar, sem er hönnuður. „Vorið 2015 keyptum við svo jörðina Brúnagerði og erum hér með lítið sauðfjárbú og hrossarækt. Ég sá strax fyrir mér að staðurinn væri kjörinn fyrir húsdýragarð en þar sem ég vissi að konan vildi ekki standa í slíkum rekstri minntist ég ekki á það. En svo leið ekki nema mánuður þar til hún hafði orð á því sjálf að staðurinn var kjörinn!“ Guðbergur lét ekki segja sér þetta tvisvar og undirbúningur hófst strax. „Við opnuðum garðinn seint í júní í fyrra og vorum með op- ið fram í september. Við gerðum ráð fyrir að um 5000 manns kæmu til okkar fyrsta sumarið og það gekk eftir. Í sumar áætluðum við að hingað kæmu um 7.000 manns en nú þegar hafa komið um 8000, þar af 5.800 bara í júlí. Ég geri því ráð fyrir að yfir 10.000 manns komi á þessu ári,“ segir Guðbergur. Eftir vetrarlokun var opnað á ný í Daladýrð 1. apríl í vor og þar verður opið allt árið héðan í frá. Staðurinn er um 8 km innan við gangamunna Vaðlaheiðarganga sem tekin verða í notkun snemma á næsta ári. skapti@mbl.is Gæf dýr Öll hefðbundin húsdýr eru í Daladýrð. Geiturnar á bænum vekja jafnan mikla athygli.Gæðingar Íslenski hesturinn er alltaf í jafn miklum metum hjá gestum, fólki á öllum aldri. Ljósmyndir/Þorgeir Baldursson Leikaðstaða Auk þess að skoða dýr geta krakkar leikið sér með ýmsu móti. Góðgæti Guðbergur Egill Eyjólfsson slettir í vöfflur. Daladýrð verður stærsti húsdýragarður landsins  Hjónin í Brúnagerði í Fnjóskadal stofnuðu húsdýragarð  5000 manns heimsóttu þau í fyrra en í júlí í ár komu 5800! Góð aðstaða Hjónin hafa til umráða um 1200 fermetra hús í Brúnagerði, þar sem rekið var minkabú fyrir margt löngu. Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is TOYOTA LAND CRUISER 150 GX nýskr. 06/2010, ekinn 158 Þ.km, dísel, sjálfskiptur. Verulega flott eintak! Verð 4.590.000 kr. Raðnúmer 380096 FORD FOCUS TITANIUM nýskr. 07/2016, ekinn 21 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur. Flottur einkabíll!Verð 2.880.000 kr. Raðnúmer 287776 ÓSKUM EFTIR BÍLUM Á SÖLUSKRÁ - LAUS STÆÐI FORDTRANSIT 350 TREND L3H1 4WD NÝR! 170 hö diesel, 6 gíra.Verð 5.150.000+ vsk. Raðnúmer 230593 - Eigum einnig FWD á 4 mkr+vsk. M.BENZ A 180 nýskr. 01/2015, ekinn 25 Þ.km, bensín, sjálfskiptur (7 gíra), leður, glerþak. Töff einkabíll, einn eigandi! Verð 3.190.000 kr. Raðnúmer 258246 VOLVO V60 D4 CROSS COUNTRY nýskr. 07/2017, ekinn 18 Þ.km, D4 dísel 191hö, sjálfskiptur (8 gíra), leður ofl. Glæsilegur bíll! TILBOÐSVERÐ 4.990.000 kr. Raðnúmer 258241 Bílafjármögnun Landsbankans
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.