Morgunblaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 30
Jakobsdóttir og hélt áfram. „Þegar lesið er um stjórnmál þessa tíma minna þau iðulega á ævintýrasög- urnar Krúnuleika, eða Game of Thrones, þar sem höfðingjar takast á, beita bæði slægð og hörku til skiptis uns einungis fáir standa eft- ir. Það gerðist líka á Sturlungaöld, að lokum voru einungis þrír eða fjórir höfðingjar sem réðu mestu og urðu embættismenn Noregs- konungs.“ Fræðsluskilti og norsk útgáfa Ísland féll til Noregskonungs með Gamla sáttmála árið 1262 að loknum átökum Sturlungaaldar. „Það er eftirtektarvert að þó Sturla Þórðarson hafi verið einn af helstu átakamönnum þessa tíma skrifar hann söguna af hlutlægni. Slíkt er ekki öllum gefið,“ segir Svavar Gestsson. Hið íslenska fornritafélag áform- ar nú, að því er fram kom í máli Guðrúnar Ásu Grímsdóttur, pró- fessors, nýja útgáfu af Sturlungu, það er vísindalega útgáfu sem ýms- ar ritskýringar fylgja. Jafnframt hafa verið bollaleggingar um út- gáfu á verkum Sturlu á norsku, svo sem sögu Hákonar gamla Há- konarsonar. En efst á blaði hjá Sturlungum nútímans eru forn- leifarannsóknir á Staðarhóli, sem Guðrún Alda Gísladóttir fornleifa- fræðingur undirbýr. Þær haldast í hendur við gerð minningarreits að Staðarhóli, þá í samráði við eig- endur jarðarinnar sem fór í eyði fyrir allmörgum árum. Þá má nefna að á næstunni verða sett upp fjögur fræðsluskilti við merka staði í Dalasýslu, við Gullna söguhringinn sem Svavar Gestsson kallar svo. Skiltin verða við Hjarðarholt, við Fellsstrand- arafleggjara í Hvammssveit, á Klofningi og við Saurbæ þar sem ekið er út á Skarðsströnd. Verk- efnið er kostað af Mjólkursamsöl- unni, sem rekur stærsta vinnustað- inn í Dölum, og leggur fyrirtækið Sturlumálum því lið sem sam- félagsverkefni. Skapa nýja Sturlungasögu  Hátíð í Dölum til minningar um forna hetju  Lögsögumaður, skáld og sagnaritari  Stjórnmálin voru ævintýrasaga, segir forsætisráðherra  Staðarhóll verði nýr áfangastaður  Fornleifarannsókn maður, lögmaður, sagnaritari og skáld. Hafði sem lögsögumaður á árunum 1251-1253 Borgarfjörð sem lén og var lögmaður alls landsins 1272-1276. Þá ritaði Sturla margt, svo sem Íslendingasögu, sem varð miðjuþáttur Sturlungu. Einnig eina gerð Landnámu, hugsanlega Grettlu og svo mætti áfram telja. Ný gerð af stjórnmálum Í ræðu á Sturluhátíð nefndi Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra í ávarpi að á miklum um- brotatímum í landinu hafi þeir frændur fyrst og fremst verið stjórnmálamenn. Ritstörfin hefðu verið aukageta í hjáverkum, enda þótt þeirra sé í núinu oftar getið en pólitískra afskipta þeirra. „Sturl- ungaöldin varð til í samfélagi þar sem margt var að breytast, nýir miðlar, nýjar valdastofnanir og ný gerð af stjórnmálum,“ sagði Katrín Forystukonur Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Vigdís Finnboga- dóttir, fyrrverandi forseti Íslands, voru meðal gesta á Sturluhátíð. Frásögn Svavar Gestsson greindi frá staðháttum á Staðarhóli. Guðrún Alda Gísladóttir fornleifafræðingur til hægri. Rétt eins og Sturla Þórðarson ritaði um atburði samtíma síns á skinn voru margir með myndavélar og síma á lofti og skráðu það sem fram fór og settu myndirnar út á netið. Morgunblaðið/Sigurður Bogi SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Á Staðarhóli í Saurbæ í Dölum, hinu forna höfuðbóli Sturlu Þórð- arsonar lögmanns og sagnaritara, er nú í bígerð að koma upp aðstöðu svo staðurinn geti orðið áfanga- staður þeirra sem vilja afla sér fróðleiks um Sturlungaöldina, tímabil í Íslandssögunni þar sem Sturla var í aðalhlutverki. Hug- myndir eru um að útbúa þar minn- ingarreit með ýmsum fræðsluskilt- um og að gera fornleifarannsókn í gamla bæjarhólnum, en fyrstu at- huganir benda til að þar leynist sitthvað merkilegt. Þetta kom fram á Sturluhátíð 2018 sem haldin var í Dölunum um sl. helgi, en talsverð hreyfing er nú fyrir því að hefja nafn og minningu sagnritarans Sturlu Þórðarsonar til vegs. Um þann mann munaði heldur betur á 13. öldinni og gerir með sama hætti nú, þegar saga hans er hafin til vegsemdar með nýrri Sturlungu. Bárust á banaspjót Fjölmenni sótti Sturluhátíð, sem efnt var til að frumkvæði Svavars Gestssonar fyrrverandi alþingis- manns og sendiherra og nú rit- stjóra Breiðfirðings. Hans metn- aðarmál er að gera sögu og atburði þá sem gerðust fyrr á öldunum í Dölum sýnilegri. Bæði er það menningarleg viðleitni auk heldur sem viðgangur ferðaþjónustu á svæðinu byggist á að sögulegum gildum sé haldið til haga, eins og Svavar lýsti í viðtali við Morgun- blaðið á dögunum. Nefna má þar væntanlegt Vínlandssetur í Búð- ardal þar sem sögð verður saga landafundanna í Grænlandi og Vesturheimi þar sem Dalamenn- irnir Eiríkur rauði og Leifur sonur hans riðu á vaðið. Það var árið 1000 eða þar um bil, talsvert áður en Sturlungaöld gekk í garð. Í Íslandssögunni er Sturlungaöld 40 ára tímabil um miðja 13. öldina þegar menn bárust á banaspjót í harðri borgarastyrjöld. Valdamenn og höfðingjar herjuðu hver á annan með vígaferlum, bardögum og mannfórnum. Í því samhengi má nefna Flugumýrarbrennu, Apa- vatnsför, Örlygsstaðabardaga, Sauðafellsför og Hauganesbardaga. Tímabil þetta er kennt við Sturl- unga, sem á þessu skeiði voru valdamesta ætt landsins og af henni var Sturla Þórðarson, bróð- ursonur Snorra Sturlusonar. Sturla (1214-1284) var lögsögu- „Á því leikur enginn vafi að Sturla Þórðarson var einn mesti afburðamaður á sínu sviði fyrr og síðar,“ sagði Einar Kr. Guðfinnsson, formaður Sturlunefndar, í ávarpi sínu á hátíðinni um síðastliðna helgi. „Allir þeir sem hafa snefil af þekkingu á samtíð hans vita að Sturla Þórðarson var ekki einasta sá mikli sagnaritari sem raun ber vitni um, heldur einn helsti valdamaður 13. ald- arinnar, sjálfrar Sturlungualdar.“ Í kjölfar Sturluhátíðar árið 2014, þegar 800 ár voru liðin frá fæðingu Sturlu Þórðarsonar, var Sturlunefnd sett á laggirnar. Þessi óformlegi félagsskapur hefur beitt sér fyrir ýmsum verkefnum sem halda eiga nafni Sturlu á lofti, en Svavar Gestsson hefur borið hitann og þungann í öllu því starfi. Má þar nefna samkomuhald ýmiskonar og nú síðast áform um minningarreit og fræðslu á Staðarhóli. „Staðarhóll er mikilvægur hluti hinnar sögulegu arfleifðar sem okkur ber að varðveita og skila til okkar kynslóðar og þeirra sem á eftir okkur koma,“ tiltók Einar sem telur mikilvægt að opna Íslendingum og öðrum leið að sagnaarfi Dalanna, þar sem marga merkisstaði er að finna. „Allt þetta mun í rauninni gera Dalina að einstæðri sögulegri perlufesti sem getur orðið eitt af krúnudjásnum sögulegrar ferðamennsku á Íslandi og gjörbreytt stöðu þessa merka héraðs til framtíðar.“ Afburðamaður á sínu sviði DALIR VERÐI EINSTÆÐ SÖGULEG PERLUFESTI Einar Kr. Guðfinnsson 30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018 Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is IÐNAÐARMENN VERSLANIR VEITINGAR VERKSTÆÐI BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.