Morgunblaðið - 02.08.2018, Qupperneq 31
FRÉTTIR 31Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018
Vinna er hafin við hreystivöll á lóð
Laugalækjarskóla í Reykjavík og
áætlað er að taka svæðið í notkun í
nóvember næstkomandi.
Hreystivöllurinn kemur í stað
brettagarðs og verða steyptar ein-
ingar sem tilheyrðu honum fjar-
lægðar til að rýma fyrir hreysti-
braut, setþrepum og bekkjum, að
því er fram kemur í frétt á heima-
síðu Reykjavíkurborgar.
Allt yfirborð svæðisins verður
yfirfarið og endurnýjað, fallvörn
komið fyrir undir hreystibraut og
gervigras á svæðinu lagfært.
Hreystisvæðið verður tengt gang-
stétt við Laugalæk með göngustíg.
Byrjað var að fjarlægja bretta-
einingar og ganga frá fallvörn og
yfirborði gervigrass og á því að
verða lokið fyrir byrjun skóla 20.
ágúst. Áætlað er að uppsetning
hreystibrautar, setþrepa, bekkja og
göngustígs verði lokið fyrir 31.
október. sisi@mbl.is
Hreysti-
völlur í stað
brettagarðs
Breytingar á lóð
Laugalækjarskóla
Hreystivöllur Framkvæmdum á að
ljúka fyrir októberlok í haust.
Umferðin á hringveginum í ný-
liðnum júlímánuði jókst um 2,6%
frá sama mánuði í fyrra, sem er
minni aukning en verið hefur
undanfarin sex ár. Nú má reikna
með að umferðin á hringveginum í
ár aukist um 3%, sem er minni
aukning en verið hefur nokkur
undanfarin ár, að því er fram
kemur í frétt á heimasíðu Vega-
gerðarinnar.
Umferðin er mæld á 16 lykiltelj-
urum Vegagerðarinnar á hring-
vegi. Aukning umferðar í júlí-
mánuði er sú minnsta frá árinu
2012. Hún telst engu að síður
nokkur og mætti telja hana hæfi-
lega, segir í fréttinni.
Mest jókst umferð um lykiltelj-
ara á Suðurlandi, eða um 9,3%, en
2,4% samdráttur mældist um lykil-
teljara á Norðurlandi.
Umferðin hefur vaxið um 4,3%
frá áramótum miðað við sama
tímabil á síðasta ári. Þessi aukn-
ing er sömuleiðis sú minnsta frá
árinu 2012 en líkt og milli mánaða
má telja hana hæfilega að mati
Vegagerðarinnar. Gert er ráð fyr-
ir hóflegri aukningu í umferð á
hringvegi allt árið 2018, eða um
3%. Búist er við því að umferðin
aukist mest á Suðurland, eða um
6%, en standi í stað á Norðurlandi.
Frá áramótum hefur umferðin
aukist hlutfallslega mest á
fimmtudögum, eða um 6,3%, en
2,0% samdráttur er í umferð á
sunnudögum.
Langmest er ekið á föstudögum
en minnst á þriðjudögum.
sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Bílar á ferð Fram undan er mesta ferðahelgi ársins, verslunarmannahelgin.
Umferðin á hringveginum í júlímánuði jókst um 2,6%
Hægir á aukningu umferðar
Björn Líndal
Traustason, frá-
farandi fram-
kvæmdastjóri
Samtaka sveitar-
félaga á Norður-
landi vestra, tók
við starfi spari-
sjóðsstjóra Spari-
sjóðs Stranda-
manna gær.
Björn tekur við
starfinu af Guðmundi Björgvin
Magnússyni.
Björn er með BS-gráðu í við-
skiptalögfræði frá Háskólanum á Bif-
röst og MA-gráðu í skattarétti og
reikningsskilum frá Háskóla Íslands.
Hann starfaði áður hjá Sparisjóði
Húnaþings og Landsbanka Íslands.
Sparisjóður Strandamanna er 127
ára. Sjóðurinn var stofnaður árið
1891, undir nafninu Sparisjóður
Kirkjubóls- og Fellshreppa en breytti
nafninu í Sparisjóður Strandamanna
árið 1995, þremur árum síðar samein-
aðist Sparisjóður Árneshrepps sjóðn-
um. ge@mbl.is
Nýr spari-
sjóðsstjóri
Björn Líndal
Traustason
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–19 | Laugardaga 11–16 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
LESTU UM
HELGINA
„Ohlsson kann þá list að skapa trúverðugar
sögupersónur sem lifna við ...“
Uppsala Nya Tildning
„Það er ekki hægt að leggja bókina
frá sér ...“
Gefle Dagblad
Sjötta bókin um lögreglumennina
Bergman og Recht.
Æsispennandi saga um duldar
misgjörðir, sekt og hefnd.
Átakanleg, fyndin og kemur
skemmtilega á óvart.
Hefur slegið í gegn víða um heim
og verið þýdd á fjölda tungumála.
„Algjör gersemi.“
Femme Actuelle
„... fær mann til að gráta af gleði.“
Bernard Lehut, RTL