Morgunblaðið - 02.08.2018, Page 34

Morgunblaðið - 02.08.2018, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það er lýsandifyrirástandið í Reykjavík að halda þurfi neyðarfund á miðju sumri. Fundurinn sem haldinn var í fyrradag snerist um hús- næðismál en full ástæða væri til að halda fleiri fundi um önnur efni. Í því sambandi má nefna samgöngumál og leik- skólamál, tvö brýn verkefni sem borgaryfirvöld hafa sinnt illa og tvö svið sem skipta borgarbúa miklu en þar sem borgin hefur veitt lélega þjón- ustu um langa hríð. Neyðarfundur borgarráðs á þriðjudag um húsnæðismál var langur og strangur en skilaði litlu. Lýsandi um það er þessi bókun borgarfulltrúa Flokks fólksins, Kolbrúnar Baldursdóttur, þegar líða tók á fundinn: „Nú hafa allar til- lögur Flokks fólksins verið lagðar fyrir og ýmist verið frestað, vísað í ráð og ein felld. Væntingar Flokks fólksins fyrir þennan neyðarfund sem stjórnarandstaðan óskaði eft- ir voru þær að meirihlutinn myndi taka tillögum stjórn- arandstöðunnar með mun opnari huga en raun bar vitni. Vonir stóðu til að teknar yrðu ákvarðanir um að fram- kvæma. Ganga til aðgerða! Hvað varðar tillögur meiri- hlutans voru flestar þeirra með einhvers konar fyrirvara eða skuldbindingum um sam- eiginlega ábyrgð sveitarfélaga eða háðar viðræðum við ríkið. Flokkur fólksins vill benda á að þeir sem eru húsnæð- islausir hafa ekki endalausan tíma til að bíða eftir úrræðum. Vandinn er núna og við honum þarf að bregðast hratt og örugglega. Upplifun borg- arfulltrúa Flokks fólksins er að borgarmeirihlutinn hafi verið ansi mikið á bremsunni á þessum fundi og frekar fátt bendir til þess að bretta eigi upp ermarnar af krafti fyrir veturinn til að laga stöðu þessa viðkvæma hóps.“ Þegar fundargerð neyðar- fundarins er lesin má sjá að lýsing Kolbrúnar er því miður rétt. Áhugi meirihlutans á að leysa þennan vanda virðist ekki hafa aukist mikið og þær tillögur sem samþykktar voru munu lítið gera til að leysa vanda í bráð og lengd. Og neyðarfundurinn var að frum- kvæði minnihlutans og áhug- inn virðist öllu meiri þeim megin en hjá meirihlutanum. Staðreyndin er þó líka sú að vandinn er ekki nýr og hann verð- ur ekki leystur á augabragði. Bráðavandann verður auðvitað að takast á við með afgerandi og hröðum aðgerð- um sem duga. Niðurstaða neyðarfundarins gefur varla vonir um slíkt. En undirliggj- andi er sá vandi sem meiri- hlutinn í Reykjavíkurborg hefur búið til með skipulegum hætti árum saman og það þrátt fyrir að hafa verið ítrek- að varaður við afleiðingum stefnunnar, meðal annars á þessum vettvangi. Meirihlutinn hefur fylgt þeirri stefnu skipulega og af miklu harðfylgi að byggja helst ekkert austan Elliðaáa en setja alla orku í að þrengja að þeirri byggð sem fyrir er í vesturhluta borgarinnar og Miðborginni. Þessi þétting byggðar, eins og stefnan er kölluð, er til komin vegna fjandskapar við fjölskyldubíl- inn og ofurtrúar á því að risa- strætó, jafnvel á teinum, svo- kölluð borgarlína, sé lausn á flestum vanda borgarinnar. Ekki er nóg með að borgin vilji þjappa allri byggð á sem minnst svæði í vesturhluta borgarinnar, heldur þarf nýja byggðin helst að liggja nærri væntanlegri borgarlínu til að skapa það draumasamfélag sem borgaryfirvöld sjá fyrir sér til framtíðar. Sem flestir skulu búa nærri borgarlínunni og nota hana í stað fjöl- skyldubílsins til að ferðast á milli staða. Þeir munu ekki eiga neitt erindi annað en eftir borgarlínunni, aðeins þar á líf borgarbúa framtíðarinnar að eiga sér stað. Þessari draumsýn, eða mar- tröð, fylgir ekki aðeins að upp- bygging hagkvæms húsnæðis er verulega takmörkuð, held- ur skal líka lagt á sérstakt gjald til að standa undir borg- arlínunni. Þannig er húsnæð- isverð hækkað enn frekar og almenningi, ekki síst yngra fólki og þeim efnaminni, gert enn erfiðara að eignast hús- næði. Borgarbúar geta ekki gert sér miklar vonir um að borgaryfirvöld láti af þessari skortstefnu sinni í húsnæðis- málum og þess vegna má gera ráð fyrir að neyðarfundurinn í fyrradag sé aðeins sá fyrsti af mörgum. Enginn þeirra mun þó leysa hinn raunverulega vanda á meðan borgaryfirvöld eru föst í sínu heimatilbúna skipulagsslysi. Hætt er við að þörf verði á fleiri neyðar- fundum í framtíð- inni í Reykjavík} Neyðarfundur um heimatilbúinn vanda Í síðustu viku náðist langþráð lausn í kjaradeilu ljósmæðra þegar Ljós- mæðrafélag Íslands samþykkti miðl- unartillögu ríkissáttasemjara í máli fé- lagsins og fjármála- og efnahagsráðherra. Þar með komst á nýr kjara- samningur aðila, sem mun gilda til 31. mars 2019. Í miðlunartillögunni felst einnig að sér- stökum gerðardómi verður falið að kveða upp úr um það hvort launasetning stéttarinnar sé í samræmi við álag, menntun og inntak starfs ljósmæðra, og að hvaða leyti þessir þættir eigi að hafa áhrif á laun. Í vikunni skipaði ríkis- sáttasemjari gerðardóm sem mun ljúka störf- um eigi síðar en 1. september 2018. Þessi málalok eru mikill léttir. Verðandi mæður og feður geta andað léttar nú þegar fæðingarþjónustan færist í eðlilegt horf, auk þess sem álag á heilbrigðisstarfsfólk sem hefur sinnt fæð- ingarþjónustu síðustu vikur og mánuði á meðan á kjara- deilunni stóð minnkar nú smám saman. Margar þeirra ljósmæðra sem höfðu sagt upp störfum vegna kjaradeil- unnar hafa dregið uppsagnir sínar til baka, en þann 31. júlí höfðu 19 ljósmæður af 30 sem höfðu sagt upp störfum á Landspítala dregið uppsagnir sínar til baka. Það er mik- ið gleðiefni að ljósmæður snúi aftur til starfa á spít- alanum, og von mín er sú að enn fleiri ljósmæður sem hafa sagt upp störfum muni snúa aftur til vinnu á næstunni. Í kjaradeilu ljósmæðra kristallaðist umræða um það að störf kvennastétta beri að meta að verðleikum. Sú hefur ekki verið raunin í gegnum tíðina, og enn eimir eftir af þeirri hugsun að störf kvenna séu á einhvern hátt ekki jafnverðmæt störfum karla. Óánægja stórra kvennastétta í heil- brigðiskerfinu með kjör sín, til dæmis ljós- mæðra og hjúkrunarfræðinga, er dæmi um það. Það er brýnt að bæta kjör þessara stóru kvennastétta. Að sjálfsögðu eru kvennastörf jafnverðmæt störfum karla, og ábyrgð stjórn- valda í þessum efnum er mikil. Fleira þarf þó að sjálfsögðu að koma til. Verkalýðshreyfingin þarf að leggjast á árar með stjórnvöldum, sem og atvinnulífið, og skapa þarf sátt um leiðrétt- ingu á kjörum stórra kvennastétta sem halda uppi íslensku samfélagi. Nýafstaðin kjaradeila ljósmæðra er mik- ilvæg áminning um það að við þurfum að bæta kjör og aðbúnað kvennastétta svo að starfsumhverfið sé eftirsóknarvert. Tryggja þarf að launasetning stórra kvennastétta sé ávallt í samræmi við álag, menntun og inntak starfanna sem um ræðir og að kyn hafi aldrei áhrif á ákvarðanir um laun. Einnig er mikilvægt að tryggja að fyrir hendi séu möguleikar til framgangs í starfi og starfsþróunar, þátttöku í þekkingarþróun, vísindastarfi og teymisvinnu. Aðeins þannig sköpum við eftirsókn- arverð störf í heilbrigðisþjónustu og tryggjum sanngjörn laun öllum til handa. Svandís Svavarsdóttir Pistill Lausn kjaradeilu ljósmæðra Höfundur er heilbrigðisráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Allt stefnir í að framleiðsla ákindakjöti dragist samanum fimmtung eða fjórð-ung á næstu árum, til þess að eyða offramleiðslunni. Það þýðir að fækka þarf sauðfé í landinu um meira en 100 þúsund fjár. Gangi það eftir verður þá færra fé í land- inu en verið hefur í marga áratugi. Nú eru framleidd um og yfir 10 þúsund tonn af kindakjöti á ári. Sala innanlands er undir sjö þúsund tonnum. Mismunurinn hefur verið fluttur út og samkvæmt skýrslum og nefndarálitum sem birt hafa ver- ið að undanförnu vantar mikið upp á að það verð sem fæst fyrir útflutt kjöt að meðaltali standi undir fram- leiðslukostnaði. Hefur þetta bitnað á afurðastöðvum og síðan bændum í miklu verðfalli á afurðum síðustu tvö árin. Offramleiðslan hefur einn- ig leitt til ójafnvægis á innlenda markaðnum og verðlækkunar. Það virðist vera orðinn sameiginlegur skilningur bænda og stjórnvalda að svona sé ekki hægt að halda áfram og að færa þurfi framleiðsluna að þörfum innan- landsmarkaðar. Partarnir ganga misvel í landann og því þarf fram- leiðslan að vera aðeins yfir innan- landsmarkaði til að sinna þörfum hans fyrir hryggi. Það þýðir að allt- af verður að flytja eitthvað út. Í skýrslum síðustu daga er talað um 8 til 8,5 þúsund tonna framleiðslu, sem er rúmlega þúsund tonn yfir sölu á innanlandsmarkaði. Aðlög- unin þarf væntanlega að gerast á nokkrum árum. Ekki má gleyma því að töluvert kjöt fellur til við grisjun í stofninum. Um 476 þúsund kindur voru í landinu um síðustu áramót. Til að ná framleiðslunni niður í það horf sem rætt er um þarf að fækka fé um 20-25%, eða um 100 þúsund fjár. Blóðtaka fyrir byggðarlög Slíkur samdráttur hefur í för með sér verulegan tekjusamdrátt fyrir bændur og afurðastöðvar þeirra og getur orðið blóðtaka fyrir byggðarlög, sérstaklega héruð sem byggja mikið á sauðfjárrækt. Unnsteinn Snorri Snorrason, framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda, segir að eyður geti myndast í byggðunum verði niður- skurðurinn stjórnlaus. Því þurfi að stýra undanhaldinu. Segir Unnsteinn að mikilvægt sé að standa þannig að fækkuninni að greinin standi sterk eftir og geti gripið þau tækifæri sem gefast í framtíðinni. Nefnir hann að hluti út- flutningsins fari fyrir gott verð og unnið sé að markaðsstarfi á betur borgandi mörkuðum víðar í heim- inum. Þá segir hann að þegar létt verði á spennunni á innlenda mark- aðnum og jafnvægi komist á ætti verðið sem lækkaði að hækka aftur. Það segi markaðslögmálin. Hversu mikið sé ekki hægt að segja til um. Mikilvæg undirstaða Um 2.500 sauðfjárbú eru í land- inu en mörg þeirra eru lítil og engin undirstaða byggðar. Sauðfjárræktin er hins vegar mikilvæg grein í mörgum héruðum á norður- og austurhluta landsins, að Dölum og Ströndum með- töldum. Nefna má Húnaflóa og norðausturhornið sem dæmi um það. Í núgild- andi búvörusamningi er tekið á þessu með þeim hætti að sauðfjárræktarsvæði sem eiga langt í þétt- býli fá sérstakan stuðning. Fækka þarf um rúm- lega 100 þúsund fjár Birgðir kindakjöts eru ekki sundurgreindar eftir einstökum pörtum í skýrslum Mat- vælastofnunar, sem hefur sínar upplýsingar frá afurðastöðv- unum. Þá miðast upplýsing- arnar við sölu frá afurðastöðv- um, ekki raunverulega sölu afurðanna til neytenda. Í greiningu sem KPMG gerði fyrir atvinnuvegaráðuneytið er því velt upp að upplýsingar um birgðir yrðu ítarlegri svo að betri yfirsýn fengist um raun- verulega birgðastöðu. Hver af- urðastöð myndi gefa upp birgð- ir af lærum, hryggjum, frampörtum og slögum, svo dæmi sé tekið. Upplýsingagjöf af því tagi myndi hafa áhrif á framleiðslu eða mögulegt fram- boð og ef til vill koma í veg fyrir of- framleiðslu á ákveðnum afurðum. Birgðaskýrslur verði ítarlegri UPPLÝSINGAR VANTAR Morgunblaðið/Ómar Réttir Hætt er við að stemmningin í göngum og réttum dofni eitthvað þar sem fé fækkar mest. Lögð er áhersla á að fækkunin verði skipuleg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.