Morgunblaðið - 02.08.2018, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 02.08.2018, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018 Mörgum finnst verslunarmannahelg- in vera besta helgi ársins til að fara hvergi og forðast þjóðvegi og tjald- stæði landsins meðan aðrir þrá fjör, leiki og tónlist enda er maður manns gaman. Fjölskyldan tók saman yfirlit yfir helstu hátíðir landsins sem leggja upp úr skemmtilegri og vímu- lausri samveru fjölskyldna. Sumar þessara hátíða eru sérsniðnar að fjöl- skyldum en aðrar hafa fjölskyldu- dagskrá í bland við aðra viðburði. Ein með öllu á Akureyri Ein með öllu er ein stærsta hátíð Norðurlands. Halldór Harðarson, sem er í forsvari fyrir hátíðina, segir að óhætt að fullyrða að fjölskyldu- dagskráin sé sérdeilis spennandi. Á skógardeginum í Kjarnaskógi fá krakkar að tálga og geta poppað yfir eldi og foreldrarnir geta svo fengið sér ketilkaffi, hitað er yfir opnum eldi. Fyrir eru leiktæki skógarins og geta allir rölt um skóginn og átt glað- an dag saman. Einnig verður boðið upp á andstæðurnar fjölskyldujóga og Nerf-stríð svo allir ættu að geta fundið sér eitthvað við hæfi. Greifinn býður öllum börnum á Akureyri upp á flotta dagskrá á laugardeginum á Ráðhústorginu. Margir listamenn troða upp en einnig verður danssýn- ing og Sirkus Íslands sýnir listir sín- ar. Fleiri fjölskylduvænir viðburðir verða í boði svo sem hæfileikakeppni unga fólksins, kirkjutröppuhlaupið, leikjaland, tívoli og fleira. Eldri börn og ungmenni geta notið metn- aðarfullra útitónleika á hátíðinni. Nánari upplýsingar á www.ein- medollu.is. Flúðir um Versló 2018 Bessi Theodórsson sem er í for- svari fyrir Flúðir um Versló segir að fjölda viðburða verði í boði á hátíð- inni þar sem fjölskyldan getur verið saman og skemmt sér. Til dæmis verði tónleikar á fimmtudagskvöld- inu með KK- Bandinuog á laug- ardagskvöldinu troða 200.000 Nagl- bítar upp. Á laugardeginum hefst barna- og fjölskylduhátíð þar sem Sveppi & Villi koma fram, markaðs- stemning verður á svæðinu með sölu- vögnum og börn fá grænmeti úr Hrunamannahreppi, mjólkurvörur frá MS ásamt fleiru. Á laugardeginum fer fram Trak- toratorfæra sem er klassískur Flúða- viðburður. Fleira mætti tína til; leik- hópurinn Lotta bregður á leik, furðubátakeppni, brenna og brekku- söngur. Sannkölluð sunnlensk stuð- og sveitastemning. Nánari upplýs- ingar á Facebook síðu hátíðarinnar; Flúðir um Versló 2018. Fjölskyldu- og húsýragarðurinn Það gæti hentað fólki af lands- byggðinni að heimsækja hálftóma höfuðborgina um helgina og svo eiga auðvitað ekki allir heimangengt úr borginni né nenna að fara í útilegu. Þeir hinir sömu geta brugðið sér í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í Laugardal um helgina en Þorkell Heiðarsson, verkefnisstjóri í garð- inum, segir að það verði glæsileg dagskrá í tilefni af 25 ára afmæli Fjölskyldugarðsins sem var bætt við Húsdýragarðinn árið 1993. Á laug- ardaginn mæta Stuðmenn, Salka Sól og Jói og Króli. Einnig verður boðið upp á fjölda óvæntra uppákoma og nýi fallturninn verður opnaður en komu hans til landsins hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Þannig að þeir sem ekki vilja leita langt yfir skammt, og búa á höf- uðborgarsvæðinu, geta brugðið sér í dalinn græna. Nánari upplýsingar á www.mu.is. Kotmót í Kirkjulækjarkoti Kotmót verður haldið í Kirkju- lækjarkoti í Fljótshlíð. Þangað eru allir velkomnir að njóta fjöl- skylduvænnar dagskrár í fallegu um- hverfi. Til dæmis verður boðið upp á fjölbreytta barnadagskrá í aldurs- skiptum hópum en einnig verður há- tíðarsamkoma í tilefni 30 ára afmælis ABC á Íslandi, fótbolti, Smores og sykurpúðagrill, kvöldvaka og fjöl- breytt tónlistardagskrá. En líka Carnival fyrir alla fjölskylduna, sápubolta, hesta, þrautir, risabolta, Crossfit, varðeld um kvöldið og ung- lingasamkomu. Á sunnudeginum verður boðið upp á sálmasamkomu, ungbarnakirkju og tónlistardagskrá en dagskrá sunnudagsins verður slúttað með grillpartíi og ókeypis pylsum fyrir mótsgesti. Neistaflug Fjölskylduhátíðin Neistaflug verð- ur að venju haldin í Neskaupstað um verslunarmannahelgina. Nóg verður um að vera fyrir alla fjölskylduna á hátíðinni. Á fimmtudagskvöldið verð- ur boðið upp á Hoppupartý fyrir ung- linga á nýjum ærslabelg á tjaldstæði bæjarins. Formleg setning hátíð- arinnar fer fram á föstudagskvöldinu og af því tilefni er slegið upp fjöl- skylduskemmtun á hátíðarsvæðinu. Þar munu koma fram Leikhópurinn Lotta, Logi Pedro og Birnir troða upp og Hlynur Ben stjórnar fjölda- söng. Boðið verður upp á hlaup fyrir fjölskylduna á laugardaginn og vega- lengdir við allra hæfi. Líf og fjör verður alla helgina á há- tíðarsvæðinu alla helgina. Lotta og Íþróttaálfurinn og heimsækja gesti á sunnudaginn, farið verður í kassabíl- arall, sápubolta, brunaslöngubolta og margt fleira. Rúsínan í pylsuend- anum eru svo stórtónleikar Neista- flugs á sunnudagskvöldið á hátíð- arsvæðinu ásamt flugeldasýning í lok tónleika. Nánari dagskrá má finna á www.neistaflug.is. Sæludagar í Vatnaskógi Sæludagar í Vatnaskógi verða á sínum stað um verslunarmannahelg- ina líkt og undanfarin ár. Benjamín Pálsson sem er í forsvari fyrir hátíð- ina, segir að hátíðin sé áfengis- og vímuefnalaus en hún hefur verið haldin frá árinu 1992 og dafnar með hverju árinu. „Dagskráin í ár er fjöl- breytt að venju. Í Vatnaskógi er frá- bær aðstaða fyrir unga sem aldna og er hún nýtt á skemmtilegan og fjöl- skylduvænan máta á Sæludögum,“ segir Benjamín. Boðið verður upp tónleika á laugardagskvöldinu þar sem þau Regína Ósk og Friðrik Óm- ar skemmta. Meðal annarra viðburða má nefna varðeld, íþróttir, fræðslu- stundir, kvöldvökur, hoppukast- alaþorp, fótbolta, báta, vatnafjör, brúðuleikhús, fjölskylduguðsþjón- ustu, spennandi unglingadagskrá og margt fleira. Einnig er boðið uppá Söng- og hæfileikasýningu barnanna sem er fastur liður á hátíðinni. Nánari upp- lýsingar á www.kfum.is. Unglingamót UMFÍ Unglingalandsmót UMFÍ hafa farið fram um verslunarmannahelg- ina reglulega frá 1992 og hafa sannað gildi sitt sem fjölskyldu- og íþróttahátíð þar fjölskyldur koma saman og taka þátt í fjölbreyttri dag- skrá. Í ár verður engin undantekning þar á en Jón Aðalsteinn Berg- sveinsson, upplýsingafulltrúi mótsins segir að mótið, sem nú verður í Þor- lákshöfn, sé vímulaus fjölskylduhátíð þar sem börn og ungmenni á aldr- inum 11 - 18 ára reyna með sér í fjöl- mörgum íþróttagreinum. Samhliða er boðið upp á fjölbreytta leiki og skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Öll ungmenni á aldrinum 11 - 18 ára geta skráð sig til leiks og það er ekki er skilyrði að vera skráð/ur í ung- menna- eða íþróttafélag. Fyrir börn yngri en 11 ára er boðið upp á fót- bolta, leikjatorg, og margt fleira. Ungmennin geta keppt í jafn ólíkum íþróttum og fótbolta, sundi, frjálsum, bogfimi, sandkastalagerð, glímu, upplestri, kökuskreytingum, staf- setningu og hjólreiðum. Sumar keppnisgreinar eru ef til vill á mörk- um þess að teljast til íþrótta en allt hljómar þetta sem hin besta skemmt- un. Meiri upplýsingar á www.umfi.is. Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni Skátar sjá um stemninguna um verslunarmannahelgina á Úlfljóts- vatni. Jakob Guðnason sem er í for- svari fyrir hátíðina segir að boðið verði upp á lágstemmda fjölskyldu- hátíð og tekur fram að þeir sem ætla að neyta áfengis eigi að velja sér ann- an stað en Úlfljótsvatn. Boðið verður upp á klifurturn, hoppukastala, bog- fimi og báta á vatninu á laugardag og sunnudag. Leikhópurinn Lotta skemmtir börnunum á sunnudeg- inum, það verður opið hús í Gilwell- skálanum frá 14 til 17 og hægt er að kaupa vöfflur og kaffi. Nánari upp- lýsingar á Facebook-síðu útilífs- miðstöðvarinnar „Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni“. Hlaðborð fjölskylduviðburða um verslunarmannahelgina Fjölskyldur alls staðar á landinu geta valið af kræsilegu hlaðborði við- burða um helgina hvort sem þær ætla að bregða sér af bæ eða halda kyrru fyrir í heimabyggð. Skapti Hallgrímsson Ein með öllu Þessi hressi gaur tók þátt í Kirkjutröppuhlaupinu á Einni með öllu á Akureyri í fyrra. Gaman saman Það er greinilega gaman á Kotmóti við Kirkjulækjarkot. Verslunarmannahelgin Sæludagar í Vatnaskógi bjóða upp á allskyns skemmtanir fyrir fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.