Morgunblaðið - 02.08.2018, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018
Mörgum finnst verslunarmannahelg-
in vera besta helgi ársins til að fara
hvergi og forðast þjóðvegi og tjald-
stæði landsins meðan aðrir þrá fjör,
leiki og tónlist enda er maður manns
gaman. Fjölskyldan tók saman yfirlit
yfir helstu hátíðir landsins sem
leggja upp úr skemmtilegri og vímu-
lausri samveru fjölskyldna. Sumar
þessara hátíða eru sérsniðnar að fjöl-
skyldum en aðrar hafa fjölskyldu-
dagskrá í bland við aðra viðburði.
Ein með öllu á Akureyri
Ein með öllu er ein stærsta hátíð
Norðurlands. Halldór Harðarson,
sem er í forsvari fyrir hátíðina, segir
að óhætt að fullyrða að fjölskyldu-
dagskráin sé sérdeilis spennandi. Á
skógardeginum í Kjarnaskógi fá
krakkar að tálga og geta poppað yfir
eldi og foreldrarnir geta svo fengið
sér ketilkaffi, hitað er yfir opnum
eldi. Fyrir eru leiktæki skógarins og
geta allir rölt um skóginn og átt glað-
an dag saman. Einnig verður boðið
upp á andstæðurnar fjölskyldujóga
og Nerf-stríð svo allir ættu að geta
fundið sér eitthvað við hæfi. Greifinn
býður öllum börnum á Akureyri upp
á flotta dagskrá á laugardeginum á
Ráðhústorginu. Margir listamenn
troða upp en einnig verður danssýn-
ing og Sirkus Íslands sýnir listir sín-
ar. Fleiri fjölskylduvænir viðburðir
verða í boði svo sem hæfileikakeppni
unga fólksins, kirkjutröppuhlaupið,
leikjaland, tívoli og fleira. Eldri börn
og ungmenni geta notið metn-
aðarfullra útitónleika á hátíðinni.
Nánari upplýsingar á www.ein-
medollu.is.
Flúðir um Versló 2018
Bessi Theodórsson sem er í for-
svari fyrir Flúðir um Versló segir að
fjölda viðburða verði í boði á hátíð-
inni þar sem fjölskyldan getur verið
saman og skemmt sér. Til dæmis
verði tónleikar á fimmtudagskvöld-
inu með KK- Bandinuog á laug-
ardagskvöldinu troða 200.000 Nagl-
bítar upp. Á laugardeginum hefst
barna- og fjölskylduhátíð þar sem
Sveppi & Villi koma fram, markaðs-
stemning verður á svæðinu með sölu-
vögnum og börn fá grænmeti úr
Hrunamannahreppi, mjólkurvörur
frá MS ásamt fleiru.
Á laugardeginum fer fram Trak-
toratorfæra sem er klassískur Flúða-
viðburður. Fleira mætti tína til; leik-
hópurinn Lotta bregður á leik,
furðubátakeppni, brenna og brekku-
söngur. Sannkölluð sunnlensk stuð-
og sveitastemning. Nánari upplýs-
ingar á Facebook síðu hátíðarinnar;
Flúðir um Versló 2018.
Fjölskyldu- og húsýragarðurinn
Það gæti hentað fólki af lands-
byggðinni að heimsækja hálftóma
höfuðborgina um helgina og svo eiga
auðvitað ekki allir heimangengt úr
borginni né nenna að fara í útilegu.
Þeir hinir sömu geta brugðið sér í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í
Laugardal um helgina en Þorkell
Heiðarsson, verkefnisstjóri í garð-
inum, segir að það verði glæsileg
dagskrá í tilefni af 25 ára afmæli
Fjölskyldugarðsins sem var bætt við
Húsdýragarðinn árið 1993. Á laug-
ardaginn mæta Stuðmenn, Salka Sól
og Jói og Króli. Einnig verður boðið
upp á fjölda óvæntra uppákoma og
nýi fallturninn verður opnaður en
komu hans til landsins hefur verið
beðið með mikilli eftirvæntingu.
Þannig að þeir sem ekki vilja leita
langt yfir skammt, og búa á höf-
uðborgarsvæðinu, geta brugðið sér í
dalinn græna. Nánari upplýsingar á
www.mu.is.
Kotmót í Kirkjulækjarkoti
Kotmót verður haldið í Kirkju-
lækjarkoti í Fljótshlíð. Þangað eru
allir velkomnir að njóta fjöl-
skylduvænnar dagskrár í fallegu um-
hverfi. Til dæmis verður boðið upp á
fjölbreytta barnadagskrá í aldurs-
skiptum hópum en einnig verður há-
tíðarsamkoma í tilefni 30 ára afmælis
ABC á Íslandi, fótbolti, Smores og
sykurpúðagrill, kvöldvaka og fjöl-
breytt tónlistardagskrá. En líka
Carnival fyrir alla fjölskylduna,
sápubolta, hesta, þrautir, risabolta,
Crossfit, varðeld um kvöldið og ung-
lingasamkomu. Á sunnudeginum
verður boðið upp á sálmasamkomu,
ungbarnakirkju og tónlistardagskrá
en dagskrá sunnudagsins verður
slúttað með grillpartíi og ókeypis
pylsum fyrir mótsgesti.
Neistaflug
Fjölskylduhátíðin Neistaflug verð-
ur að venju haldin í Neskaupstað um
verslunarmannahelgina. Nóg verður
um að vera fyrir alla fjölskylduna á
hátíðinni. Á fimmtudagskvöldið verð-
ur boðið upp á Hoppupartý fyrir ung-
linga á nýjum ærslabelg á tjaldstæði
bæjarins. Formleg setning hátíð-
arinnar fer fram á föstudagskvöldinu
og af því tilefni er slegið upp fjöl-
skylduskemmtun á hátíðarsvæðinu.
Þar munu koma fram Leikhópurinn
Lotta, Logi Pedro og Birnir troða
upp og Hlynur Ben stjórnar fjölda-
söng. Boðið verður upp á hlaup fyrir
fjölskylduna á laugardaginn og vega-
lengdir við allra hæfi.
Líf og fjör verður alla helgina á há-
tíðarsvæðinu alla helgina. Lotta og
Íþróttaálfurinn og heimsækja gesti á
sunnudaginn, farið verður í kassabíl-
arall, sápubolta, brunaslöngubolta og
margt fleira. Rúsínan í pylsuend-
anum eru svo stórtónleikar Neista-
flugs á sunnudagskvöldið á hátíð-
arsvæðinu ásamt flugeldasýning í lok
tónleika. Nánari dagskrá má finna á
www.neistaflug.is.
Sæludagar í Vatnaskógi
Sæludagar í Vatnaskógi verða á
sínum stað um verslunarmannahelg-
ina líkt og undanfarin ár. Benjamín
Pálsson sem er í forsvari fyrir hátíð-
ina, segir að hátíðin sé áfengis- og
vímuefnalaus en hún hefur verið
haldin frá árinu 1992 og dafnar með
hverju árinu. „Dagskráin í ár er fjöl-
breytt að venju. Í Vatnaskógi er frá-
bær aðstaða fyrir unga sem aldna og
er hún nýtt á skemmtilegan og fjöl-
skylduvænan máta á Sæludögum,“
segir Benjamín. Boðið verður upp
tónleika á laugardagskvöldinu þar
sem þau Regína Ósk og Friðrik Óm-
ar skemmta. Meðal annarra viðburða
má nefna varðeld, íþróttir, fræðslu-
stundir, kvöldvökur, hoppukast-
alaþorp, fótbolta, báta, vatnafjör,
brúðuleikhús, fjölskylduguðsþjón-
ustu, spennandi unglingadagskrá og
margt fleira.
Einnig er boðið uppá Söng- og
hæfileikasýningu barnanna sem er
fastur liður á hátíðinni. Nánari upp-
lýsingar á www.kfum.is.
Unglingamót UMFÍ
Unglingalandsmót UMFÍ hafa
farið fram um verslunarmannahelg-
ina reglulega frá 1992 og hafa sannað
gildi sitt sem fjölskyldu- og
íþróttahátíð þar fjölskyldur koma
saman og taka þátt í fjölbreyttri dag-
skrá. Í ár verður engin undantekning
þar á en Jón Aðalsteinn Berg-
sveinsson, upplýsingafulltrúi mótsins
segir að mótið, sem nú verður í Þor-
lákshöfn, sé vímulaus fjölskylduhátíð
þar sem börn og ungmenni á aldr-
inum 11 - 18 ára reyna með sér í fjöl-
mörgum íþróttagreinum. Samhliða
er boðið upp á fjölbreytta leiki og
skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Öll
ungmenni á aldrinum 11 - 18 ára geta
skráð sig til leiks og það er ekki er
skilyrði að vera skráð/ur í ung-
menna- eða íþróttafélag. Fyrir börn
yngri en 11 ára er boðið upp á fót-
bolta, leikjatorg, og margt fleira.
Ungmennin geta keppt í jafn ólíkum
íþróttum og fótbolta, sundi, frjálsum,
bogfimi, sandkastalagerð, glímu,
upplestri, kökuskreytingum, staf-
setningu og hjólreiðum. Sumar
keppnisgreinar eru ef til vill á mörk-
um þess að teljast til íþrótta en allt
hljómar þetta sem hin besta skemmt-
un. Meiri upplýsingar á www.umfi.is.
Útilífsmiðstöð skáta
Úlfljótsvatni
Skátar sjá um stemninguna um
verslunarmannahelgina á Úlfljóts-
vatni. Jakob Guðnason sem er í for-
svari fyrir hátíðina segir að boðið
verði upp á lágstemmda fjölskyldu-
hátíð og tekur fram að þeir sem ætla
að neyta áfengis eigi að velja sér ann-
an stað en Úlfljótsvatn. Boðið verður
upp á klifurturn, hoppukastala, bog-
fimi og báta á vatninu á laugardag og
sunnudag. Leikhópurinn Lotta
skemmtir börnunum á sunnudeg-
inum, það verður opið hús í Gilwell-
skálanum frá 14 til 17 og hægt er að
kaupa vöfflur og kaffi. Nánari upp-
lýsingar á Facebook-síðu útilífs-
miðstöðvarinnar „Útilífsmiðstöð
skáta Úlfljótsvatni“.
Hlaðborð fjölskylduviðburða
um verslunarmannahelgina
Fjölskyldur alls staðar á
landinu geta valið af
kræsilegu hlaðborði við-
burða um helgina hvort
sem þær ætla að
bregða sér af bæ eða
halda kyrru fyrir í
heimabyggð.
Skapti Hallgrímsson
Ein með öllu Þessi hressi gaur tók
þátt í Kirkjutröppuhlaupinu á Einni
með öllu á Akureyri í fyrra.
Gaman saman Það er greinilega gaman á Kotmóti við Kirkjulækjarkot.
Verslunarmannahelgin Sæludagar í Vatnaskógi bjóða upp á allskyns
skemmtanir fyrir fjölskyldur.