Morgunblaðið - 02.08.2018, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 02.08.2018, Qupperneq 48
Grímsnes Alexander Guðmundur Alfreðsson fæddist 3. september 2017 kl. 22.19. Hann vó 3.950 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Antonía Helga Guð- mundsdóttir og Alfreð Aron Guðmundsson. Nýr borgari 48 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | Sími 551 6646 Opið virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-15 ÚTSALA 20-70% afsláttur Hulda Rafnsdóttir, hjúkrunarfræðingur og gæðastjóri a Sjúkra-húsinu á Akureyri, á 50 ára afmæli í dag. Sjúkrahúsið er meðalþjóðlega gæðavottun og heldur Hulda utan um að þau mál séu í lagi. „Það er að hafa umsjón með uppbyggingu, rekstri og þróun gæðakerfis, til dæmis að halda utan um skráningu atvika, ýmis um- bótaverkefni og mýmargt fleira.“ Hulda er Akureyringur og hóf strax störf á sjúkrahúsinu eftir út- skrift 1997. Hefur hún meðal annars unnið á bráðamóttöku verið deildarstjóri en hún hefur verið gæðastjóri frá 2013. Áhugamál Huldu eru útivera, en hún hleypur bæði og hjólar. „Svo hef ég gríðarlega mikinn áhuga á tónlist og fjölskyldan öll hefur mikla ástríðu fyrir henni og er mjög dugleg að fara á tónleika, bæði innlendis og erlendis. Síðast fórum við hjónin alla leið til Saratoga Springs í New York-ríki núna í maí til að elta Sawyer Fredericks, ungan bandarískan tónlistarmann, en hann vann The Voice árið 2015. Við fórum líka nýlega með dóttur okkar á tónleika með Ed Sheeran í Manchester Arena. Síðan eru tónleikar með Roger Waters og Beyoncé einnig á stefnuskránni hjá fjölskyldunni í haust.“ Hulda ætlar að byrja daginn á því að dekra við sig. „Ég ætla í nudd og dekur og býð síðan fjölskyldu og nánustu vinum í grill í kvöld. Svo er stefnan að halda almennilega veislu síðar. Það hefur verið reynslan að það er erfitt að ná í fólk á þessum tíma.“ Eiginmaður Huldu er Gunnar Elvar Gunnarsson, einn eigenda Raf- eyrar ehf. á Akureyri. Börn þeirra eru Atli Rafn, f. 1994, sambýlis- kona hans er Svandís Dögg Stefánsdóttir, og Dagný Svala, f. 2000. Fjölskyldan F.v.: Hulda, Gunnar, Svandís, Atli Rafn og Dagný. Nudd, dekur og grill í tilefni dagsins Hulda Rafnsdóttir er fimmtug í dag B jarni Guðmundsson fæddist í Reykjavík 2.8. 1958 og ólst upp í Framhverfinu í Safa- mýrinni. Þar höfðu foreldrar hans og Helgi, föð- urbróðir hans, byggt sér hús. Bjarni var í Álftamýrarskóla, tók landspróf frá Ármúlaskóla, lauk stúdentsprófi frá MH, stund- aði iðnnám í rafvirkjun við Iðn- skólann í Reykjavík og lauk námi í rafmagnstæknifræði í Óðinsvéum 1985. Eftir sjö ára starf á tækni- deild Morgunblaðsins stundaði Bjarni síðan nám við Edinborg- arháskóla og lauk þaðan MBA- námi 1992. Lokaverkefni hans fjallaði um tillögur um endur- högun á rekstri og framleiðslu Morgunblaðsins. Þá lauk hann val- áföngum í gæðastjórnun, fjár- málastjórnun, bókhaldsstjórnun og almennri fyrirtækjastjórnun. Eftir Edinborgarárin var Bjarni framkvæmdastjóri Gulu línunnar um skeið, síðan markaðsstjóri hjá Íslenskri Getspá og rekstrar- ráðgjafi hjá VSÓ Ráðgjöf. Hann hóf störf hjá RÚV sem fram- kvæmdastjóri Sjónvarps, árið 1997, var framkvæmdastjóri þró- unar RÚV 2007-2014 og jafnframt staðgengill útvarpsstjóra. Bjarni hefur verið framkvæmda- stjóri Samtaka sunnlenskra sveit- arfélaga, SASS, frá 2015: „Sam- tökin sinna hagsmunagæslu fyrir Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri SASS – 60 ára Á golfvelli í Barcelona Talið frá vinstri: Marteinn, afmælisbarnið, María, Aron Björn, Bjarni yngri og Edda Björg. Fékk dótturson og nafna í afmælisgjöf Kátir langfeðgar Nafnarnir sem eiga sama afmælisdag. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.