Morgunblaðið - 02.08.2018, Page 56

Morgunblaðið - 02.08.2018, Page 56
56 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018 Íslenskt pönk er yfirskrift kvöld- göngu sem Unnur María Berg- sveinsdóttir sagnfræðingur mun leiða um miðborgina í kvöld. Lagt verður af stað úr Grófinni milli Tryggvagötu 15 og 17 kl. 20. Það tók pönkið tíma að festa ræt- ur á Íslandi en þegar það loks gerð- ist fór allt af stað. Pönkið hafði var- anleg áhrif á bæði íslenska tónlist og íslenskt samfélag. Rölt verður um fornar pönkslóðir í miðbænum, rætt hvernig pönkið barst til Íslands og hvers konar Reykjavík það skaut rótum í. Gangan tekur um 90 mínútur, leiðsögnin er á íslensku, þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Ljósmynd/Helgarpósturinn Pönkarar Frikki pönkari og Palli pönk á góðum degi í Bankastræti árið 1991. Rölt um fornar pönkslóðir í miðbænum Kári Þormar, organisti Dómkirkj- unnar í Reykjavík, leikur á tón- leikum Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju í dag kl. 12. Mun hann leika verk eftir Bach, Vierne, Tryggva M. Baldvinsson, Böhm og Duruflé. Kári hefur haldið fjölda tónleika hérlendis og erlendis. Hann lauk A- kirkjutónlistarnámi frá Robert Schumann háskólanum í Düssel- dorf með 1. einkunn og var til- nefndur til Íslensku tónlistarverð- launanna með Kór Áskirkju fyrir diskinn Það er óskaland íslenskt. Morgunblaðið/Eggert Organisti Kári Þormar flytur fjölbreytt verk á orgelsumri Hallgrímskirku. Kári Þormar leikur á orgelsumri Söngkonan, fiðuleikarinn og laga- smiðurinn Unnur Birna mun flytja uppáhaldsdjasslögin sín ásamt frumsömdu efni á Freyjujazzi í Listasafni Íslands í dag kl. 17.15. Með henni leika Sigurgeir Skafti Flosason á bassa og Björn Thorodd- sen á gítar. „Við flytjum bara einn djassstand- ard, en það er „It Don’t Mean a Thing“ og munum við Björn syngja það lag saman,“ segir Unnur Birna. „Svo spilum við spænska rúmbu sem við höfum útsett fyrir gítar, bassa og fiðlu, og bassaleikarinn leikur smá laglínu. Ég elska þegar bassinn er ekki bara grunntónn. Við erum líka með ekta Django Rein- hardt sígaunadjass. Við förum mjög víða á þessum 45 mínútna tón- leikum. Við spilum eitt lag eftir Björn, sem er bæði djassað og líka með þjóðlagaundirtóni. Þetta verða lög úr fjölbreyttum tónlistar- stefnum, en það er einmitt svo gam- an hvernig þær tengjast allar vel.“ Unnur Birna og félagar munu líka flytja hennar tónsmíðar. „Þetta er djasshelmingurinn af mér. Við spilum lag sem ég samdi í gömlum djassstíl þegar ég var að æfa djassstandarda. Og svo lag sem ég samdi þegar ég var 18 ára og var í ástarsorg, við ljóð eftir Davíð Stef- ánsson sem heitir „Kveðja“.“ Unnur Birna er búin að klára plötu sem er progpoppuð, og Ian Anderson úr Jethro Tull spilar m.a. á henni. „Ég á bara eftir að gefa hana út. Nú hef ég fengið þá flugu í hausinn að gera djassplötu.“ – Hvað fílarðu við djassinn? „Pabbi byrjaði að fara með mig á tónleika þegar ég var 11 eða 12 ára á Akureyri, og ég fékk bakteríuna þá. Ég elska hljómana, sem eru ekki þeir einföldustu, og svo er takturinn óvenjulegur. Allir hlustuðu á Rammstein þegar ég var í 10. bekk en ég var að hlusta á djass,“ segir Unnur Birna og hvetur alla til að mæta á Listasafni Íslands. Morgunblaðið/Ómar Fjölhæf Unnur Birna tengir saman ólíkar tónlistarstefnur á Freyjujazzi. „Djasshelming- urinn af mér“  Unnur Birna leikur á Freyjujazzi Mýrin 12 Metacritic 75/100 IMDb 7,0/10 Bíó Paradís 20.00 Svanurinn 12 Afvegaleidd níu ára stúlka er send í sveit um sumar til að vinna og þroskast. Morgunblaðið bbbmn IMDb 6,6/10 Bíó Paradís 22.00 Andið eðlilega Morgunblaðið bbbbm Bíó Paradís 18.00 Hearts Beat Loud Bíó Paradís 18.00 You Were Never Really Here 16 Metacritic 84/100 IMDb 6,9/10 Bíó Paradís 20.00 Three Billboards Outside Ebbing, Missouri 16 Metacritic 88/100 IMDb 8,2/10 Bíó Paradís 22.00 The Florida Project 12 Metacritic 92/100 IMDb 7,6/10 Bíó Paradís 22.00 The Party 12 Bíó Paradís 18.00 Mamma Mia! Here We Go Again Morgunblaðið bbbbn Metacritic 60/100 IMDb 7,3/10 Laugarásbíó 17.00, 19.50, 22.15 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 14.30, 17.00, 19.30, 22.00 Sambíóin Keflavík 17.30, 20.00, 22.30 Smárabíó 16.20, 17.00, 19.40, 22.20 Háskólabíó 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 17.00, 19.30, 21.50 Mission: Impossible Fallout 16 Metacritic 86/100 IMDb 8,4/10 Laugarásbíó 16.40, 19.45, 22.40 Laugarásbíó 16.40, 19.45, 22.40 Sambíóin Álfabakka 15.00, 16.30, 18.00, 19.30, 21.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.00, 19.00, 20.00, 22.00, 23.00 Sambíóin Kringlunni 14.30, 17.30, 20.30, 22.00 Sambíóin Akureyri 16.30, 19.30, 22.30 Sambíóin Keflavík 19.30, 22.30 Smárabíó 16.30, 19.00, 19.50, 22.10, 22.20 Hereditary 16 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 87/100 IMDb 7,6/10 Sambíóin Álfabakka 22.15 Sambíóin Egilshöll 22.30 Sambíóin Akureyri 22.30 The Equalizer 2 16 Myndin fjallar um fyrrver- andi lögreglumann sem er nú leigumorðingi. Metacritic 50/100 IMDb 7,1/10 Laugarásbíó 19.45, 22.15 Smárabíó 19.40, 22.30 Háskólabíó 20.50 Borgarbíó Akureyri 21.30 Hotel Artemis 16 Myndin gerist í framtíðinni þegar óeirðir geisa í Los An- gelis. Nunna rekur leynilega slysavarðsstofu fyrir glæpa- menn. Háskólabíó 18.10 Book Club Metacritic 53/100 IMDb 6,3/10 Smárabíó 15.10, 17.30 Háskólabíó 20.30 Tag 12 Metacritic 56/100 IMDb 7,1/10 Sambíóin Álfabakka 15.00, 20.00 Ocean’s 8 Debbie Ocean safnar saman liði til að fremja rán á Met Gala-samkomunni í New York. Morgunblaðið bbbnn Metacritic 61/100 IMDb 6,3/10 Sambíóin Kringlunni 19.40 Jurassic World: Fallen Kingdom 12 Morgunblaðið bbmnn Metacritic 51/100 IMDb 6,5/10 Sambíóin Álfabakka 17.15 Hin Ótrúlegu 2 Bob Parr, Hr. Ótrúlegur, þarf að annast Jack-Jack á með- an Helen, Teygjustelpa, fer og bjargar heiminum. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 80/100 IMDb 8,1/10 Sambíóin Álfabakka 15.00, 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30 Sambíóin Kringlunni 14.30, 17.00 Sambíóin Akureyri 17.30 Sambíóin Keflavík 17.00 Hótel Transylvanía 3: Sumarfríið Mavis kemur Drakúla á óvart með því að skipuleggja fjöl- skylduferð á lúxus skrímsla skemmtiferðaskipi, þannig að hann geti fengið hvíld frá eigin hótelrekstri. Metacritic 54/100 IMDb 6,4/10 Laugarásbíó 16.40 Smárabíó 15.00, 17.20 Háskólabíó 17.50 Borgarbíó Akureyri 17.30 Draumur Myndin skoðar ósagða sögu Mjallhvítar, Öskubusku og Þyrnirósar, sem komast að því að þær eru allar trúlof- aðar sama draumaprins- inum. Prinsinn upplifir þær breytingar að verða talinn ómótstæðilegur af flestum eftir að álfadís hellir á hann töfradufti í miklu magni. Smárabíó 14.50 Hope van Dyne og Dr. Hank Pym skipuleggja mikilvæga sendiför, þar sem Ant-Man þarf að vinna með The Wasp, til að leiða í ljós leynd- armál úr fortíðinni. Morgunblaðið bbbnn Metacritic 70/100 IMDb 7,5/10 Sambíóin Álfabakka 15.00, 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 20.00 Sambíóin Akureyri 20.00 Ant-Man and the Wasp 12 Kona fer í stríð Kona á fimmtugsaldri ákveður að bjarga heiminum og lýsir yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Hún gerist skemmdarverkamaður og er tilbúin að fórna öllu fyrir móður jörð og hálendi Ís- lands þar til munaðarlaus stúlka frá Úkraínu stígur inn í líf hennar. Morgunblaðið bbbbb Háskólabíó 18.20, 21.10 Bíó Paradís 20.00 Skyscraper 12 Myndin fjallar um fyrrum aðal samningamann alríkis- lögreglunnar í gíslatöku- málum, sem Johnson leikur, en hann vinnur nú við öryggisgæslu í skýja- kljúfum. Metacritic 51/100 IMDb 6,2/10 Smárabíó 20.00 Borgarbíó Akureyri 19.30 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.