Morgunblaðið - 04.08.2018, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 04.08.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. VANTAR SKJÓL? Skjólnet hafa sannað gildi sitt við ræktun trjágróðurs hér á landi. Vantar þig meira skjól? Hafðu samband sem fyrst. Stapaseli, 311 Borgarbyggð, s. 893 8090, netfang: danielth@nett.is Selskógarehf Ásgeir Sigurvinsson verður meðal leikmanna í stjörnuliði Stuttgart á 125 ára afmælishátíð félagsins í Þýskalandi á morgun. Goðsagnir í knattspyrnusögu félagsins stíga þá á sviðið áður en núverandi leikmenn Stuttgart leika sjálfan afmælisleik- inn gegn sigurvegurum Atletico Ma- drid í Evrópudeildinni síðasta vor. Meðal eldri leikmanna Stuttgart í leik morgundagsins má auk Ásgeirs nefna Jürgen Klinsmann, Guido Buchwald, Bernd Förster, Krassim- ir Balakov, Hansi Müller, Carlos Dunga og Felix Magath. Fram kem- ur á heimasíðu félagsins að leiktími gömlu leikmannanna verði 20 mín- útur hvor hálfleikur. Ásgeir lék með Stuttgart frá 1982 til 1990, alls 194 leiki í þýsku Bun- desligunni og skoraði í þeim 38 mörk. Hann var valinn knatt- spyrnumaður ársins í Þýskalandi 1984 af leikmönnum Bundeslig- unnar. Ásgeir var kosinn íþrótta- maður ársins hérlendis 1974 og 1984 og var tilnefndur í heiðurshöll ÍSÍ fyrir þremur árum. Stuttgart 5 sinnum meistari Ásgeir varð Þýskalandsmeistari með Stuttgart vorið 1984, en alls hefur félagið fimm sinnum hampað meistaratitlinum. Ásgeir er 63 ára gamall, en Eyjólfur Sverrisson sem varð meistari með Stuttgart 1992 fagnaði hálfrar aldar afmæli í gær. aij@mbl.is Ásgeir í stjörnuliði í Stuttgart  Meðal goðsagna félagsins í 125 ára afmælisleik  Með Klinsmann og Dunga Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Ásgeir Sigurvinsson Með fyrirliða- bandið í leik með Stuttgart 1986. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ekki er heimilt að innheimta skipu- lagsgjald af vinnubúðum starfs- manna sem settar eru upp á fram- kvæmdasvæðum. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi álagningu gjalds vegna starfsmannaíbúða sem settar voru upp á framkvæmdasvæðum á Þeistareykjum og við Bakka vegna atvinnuuppbyggingar þar. Yfirmað- ur hjá Þjóðskrá reiknar með að verklagi verði breytt í framhaldinu. PCC BakkiSilicon fékk leyfi Norðurþings til að setja upp vinnu- búðir tímabundið í nágrenni kísil- versins á meðan unnið var að bygg- ingu þess. Búðirnar voru fluttar frá framkvæmdasvæði álversins í Reyðarfirði. Sömuleiðis fékk Lands- virkjun heimild Þingeyjarsveitar til að reisa vinnubúðir við Þeista- reykjavirkjun. Hluti þeirra hafði áð- ur verið notaður við Kárahnjúka- virkjun og Búðarhálsvirkjun. Voru sumar allt að 30 ára gamlar og höfðu verið notaðar við ýmsar fram- kvæmdir á vegum Landsvirkjunar án þess að skipulagsgjald hafi verið lagt á. Þjóðskrá Íslands mat vinnubúð- irnar til brunabóta og hóf innheimtu skipulagsgjalds í kjölfar þess. 4,6 milljónir voru lagðar á Norðurþing vegna búðanna á Bakka og tæpar 1,7 milljónir á Landsvirkjun vegna Þeistareykja. Lagastoð skortir fyrir skatti Samkvæmt skipulagslögum á að greiða skipulagsgjald af nýbygging- um sem virtar eru til brunabóta. Í úrskurði nefndarinnar kemur fram að húseiningar Landsvirkjunar á Þeistareykjum hafi ekki getað talist nýbyggingar eða nýreist hús sem virða skuli til brunabóta. Til þess þurfi þær að vera jarðfastar og var- anlega skeytt við jörð sem vinnu- búðirnar voru ekki. Skorti álagn- inguna því lagastoð. Var álagningin felld úr gildi. Álagning skipulags- gjalds á hendur Norðurþingi var einnig felld úr gildi en það var gert með þeim rökum að innheimtunni hafi verið beint gegn röngum aðila, sveitarfélaginu í stað PCC. Ástríður Jóhannesdóttir, sviðs- stjóri stjórnsýslusviðs Þjóðskrár, telur að vinnubúðirnar fyrir norðan séu fyrstu búðirnar sem lagt hafi verið skipulagsgjald á. Hún segir að túlkun úrskurðarnefndarinnar hafi áhrif á verklag Þjóðskrár í sam- bærilegum málum í framtíðinni. Tekur þó fram að ekki hafi verið tekin afstaða til þess hvort farið verði með málin fyrir dómstóla. Ástríður segir að umræddar vinnubúðir uppfylli að mörgu leyti skilyrði sem gerð eru til fasteigna. Til dæmis sé heimilt að skrá lög- heimili þar og sveitarfélögin hafi tekjur af þeim. Telur hún ástæðu fyrir löggjafann til að skoða betur hvernig hátta eigi skráningu og álagningu gjalda á þessar eignir. Þjóðskrá hyggst breyta vinnulagi  Úrskurðarnefnd fellir úr gildi skipulagsgjald af vinnubúðum á framkvæmdasvæðum nyrðra Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Þeistareykir Hluti vinnubúða Landsvirkjunar og verktaka við Þeista- reykjavirkjun. Skipulagsgjald Þjóðskrár hefur nú verið fellt úr gildi. Það var óvenjuleg sjón sem blasti við árrisulum íbúum Reykjavíkur í morgun. Þá fylgdi lóðsinn Magni tignarlegu seglskipi til hafnar. Þar fer skólaskip á vegum ítalska flotans, þriggja mastra og ríflega 82 metra langt. Miðmastrið rís hvorki meira né minna en 52 metra upp fyrir sjó- línu. Skipið er nefnt í höfuðið á einum þekktasta landkönnuði, fjármálamanni og kortagerð- armanni Ítala, Amerigo Vespucci, sem fæddur var 1454 og lést 1512. Nýi heimurinn, Ameríka, dregur nafn sitt af hinum mikla Ítala. Hægt verður að skoða skipið í dag og á morgun. Morgunblaðið/Árni Sæberg Amerigo Vespucci í fyrsta sinn í íslenskri höfn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.