Morgunblaðið - 04.08.2018, Síða 38

Morgunblaðið - 04.08.2018, Síða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2018 Elke Eckerstorfer, organisti St. Augustin kirkju í Vínarborg, leikur á tónleikum í Hallgrímskirkju í dag kl. 12 og á morgun kl. 17 og þeir eru hluti af tónleikaröð kirkjunnar, Alþjóðlegu orgelsumri. Ecker- storfer leikur í dag verk eftir J.S. Bach, Camille Saint-Saëns, Jo- hannes Brahms og Vincenzo Petrali og á morgun kl. 17. Á morgun leik- ur hún svo verk eftir Sebastián Aguiléra de Heredia, J.S. Bach, W.A. Mozart, Camille Saint-Saëns, Balduin Sulzer, Johannes Brahms og Franz Liszt. Elke Eckerstorfer er frá Wels í Austurríki og stundaði nám við tón- listarmenntaskólann í Linz og hóf píanónám við Bruckner-tónlistar- háskólann í Linz. Hún stundaði framhaldsnám í orgelleik, píanóleik og semballeik við Tónlistarháskól- ann í Vín og veturinn 2000-2001 var hún í námi hjá Bouvard og Latry við Þjóðartónlistarháskólann í Par- ís, að því er fram kemur í tilkynn- ingu. Hún hefur hlotið fjölda við- urkenninga og verðlauna fyrir leik sinn og hefur ferðast til flestra landa Evrópu og til Japans í tengslum við tónleikahald. Þá hefur leikur hennar verið hljóðritaður bæði til útgáfu og fyrir útvarp. Fyrir utan að vera einn af organ- istum í Kirkju heilags Ágústínusar í Vínarborg kennir hún einnig við Tónlistarháskóla borgarinnar, segir í tilkynningunni. Margverðlaunuð Elke Eckers- torfer, organisti St. Augustin kirkju í Vínarborg. Eckerstorfer leikur í Hallgrímskirkju Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Þetta fjallar um hvað manneskjan getur verið stór en á sama tíma al- veg ótrúlega lítil í hinu stóra sam- hengi,“ segir Harpa Björnsdóttir myndlistarkona sem opnar sýningu í Kompunni í Alþýðuhúsinu á Siglu- firði í dag. Sýningin nefnist Mitt fley er lítið en lögur stór og fjallar um vægi manneskjunnar í hinum stóra heimi. Á sýningunni má sjá innsetningu í bland við ljósmyndir og skúlptúr, en hugmynd Hörpu er að verkin sem til sýnis eru tengist þannig að fólk upp- lifi í raun eitt heildarverk. Hugsað út frá sjónum Harpa segir að upplifun fólks af sýningunni geti verið afar misjöfn en hún vonist þó til að fólk átti sig á hinu stóra samhengi sýningarinnar. „Ég byrjaði að hugsa þetta út frá sjónum og hversu lítil ein manneskja er í samanburði við hann. Þessi sami maður er hins vegar með stóra ver- öld innra með sér. Þá er ég að tala um tengingar við annað fólk, ástina á sjálfum sér og allar þessar tilfinn- ingar sem búa í manneskjum,“ segir Harpa, sem kveðst ekki hafa haldið álíka sýningu áður. Þá sé stíll sýningarinnar talsvert frábrugðinn stíl fyrri verka hennar. „Síðustu sýningar hjá mér hafa ekki verið sambærilegar við þessa. Þegar ég hóf ferilinn, var ég í nýlistadeild en í henni lætur maður hugmyndina ráða efni. Síðan færði ég mig yfir í málverk, grafík og skúlptúr. Með þessari sýningu má segja að ég sé að fara aftur í það sem ég byrjaði á. Ég er því í raun að koma heim,“ segir Harpa. Ferillinn spannar nú 35 ár Listamannsferill Hörpu spannar nú um 35 ár en hún hefur verið afar virk á vettvangi myndlistar og menningarmála hér á landi. Þá hefur hún haldið yfir 30 einkasýningar og tekið þátt í yfir 50 samsýningum, á Íslandi og erlendis. Harpa útskrif- aðist úr Myndlista- og handverks- skóla Íslands árið 1983 og hélt sama ár fyrstu sýningu sína. „Ég hef frá þessum tíma notast við ólík efni og haldið ýmiss konar sýningar. Allt á þetta þó sameig- inlegt að byrja sem lítil hugmynd sem á einhverjum tímapunkti er tilbúin. Oft endar þetta síðan allt öðruvísi en maður hafði gert sér í hugarlund í upphafi,“ segir Harpa. Sýningin tengist hafinu Spurð hvers vegna ákveðið hafi verið að halda sýninguna á Siglufirði segir Harpa margvíslegar ástæður liggja þar að baki. „Þessi sýning tengist auðvitað sjónum og þá kemur Siglufjörður strax upp í hugann. Ég hef í gegnum tíðina verið dugleg að heimsækja bæinn og það má segja að ég sé með óbein tengsl þangað. Pabbi og afi voru auðvitað sjómenn og miklar hetjur, sýningin tengist þeim einnig á ákveðinn hátt. Þess utan heldur Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, vin- kona mín, utan um sýninguna og hún hvatti mig til að halda hana þarna. Hún er algjör orkubolti og rífur upp menningarlífið sama hvar hún kem- ur. Það er eitthvað sem fær mann til að vilja halda sýningu þar sem hún er,“ segir Harpa og bætir við að hún njóti þess að framkvæma innsetn- ingu í rýmum á vegum Aðalheiðar. „Ég hef áður haldið innsetningu í rýmum sem hún hefur séð um. Mér hefur alltaf fundist gaman að taka hugmyndir og vinna með þær inni í rýminu,“ segir Harpa. Stærð og smæð manneskjunnar  Harpa Björnsdóttir sýnir í Kompunni á Siglufirði Leikþáttur „Þetta er eins konar leikþáttur í höndum örlaga. Það er einhver tilfinning í myndinni sem ég tel að fólk skynji þegar það horfir á hana,“ segir Harpa um þetta verk sitt sem er hluti af sýningu hennar fyrir norðan. Morgunblaðið/Hari Gaman „Mér hefur alltaf fundist gaman að taka hugmyndir og vinna með þær inni í rýminu,“ segir myndlistarkonan Harpa Björnsdóttir. Handrit að grínatriðum fyrir kvik- mynd grínhópsins Monty Python, The Holy Grail, fundust nýverið í skjalasafni Michaels Palin, eins meðlima grínhópsins. Handritin fundust í skjölum Palins sem geymd hafa verið í breska þjóð- arbókasafninu, British Library, þar sem skjöl hans eru geymd. Sam- kvæmt upplýsingum á vef The Gu- ardian hefur Palin veitt leyfi fyrir því að þessi handrit verði birt. Monty Python hópurinn var einkar hugmyndaríkur og samdi mun fleiri grínatriði en rötuðu í þætti hans og kvikmyndir. Monty Python Úr sígildri gamanmynd Monty Python, The Holy Grail. Grínatriði sem var sleppt í Holy Grail Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Heiðnar grafir í nýju ljósi – sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð Iben West og Else Ploug Isaksen – Augnhljóð í Myndasal Nanna Bisp Büchert – Annarskonar fjölskyldumyndir á Vegg Prýðileg reiðtygi í Bogasal Leitin að klaustrunum í Horni Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú grunnsýning Safnahússins Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Bókverk og Kveisustrengur úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið alla daga 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið alla daga 10-17 LÍFSBLÓMIÐ - FULLVELDI ÍSLANDS Í 100 ÁR – 18.7 - 16.12.2018 Sýningin Lífsblómið fjallar um Ísland sem fullvalda ríki. Hún fjallar um það hversu dýrmætt en um leið viðkvæmt fullveldið er. Að sýningunni standa Listasafn Íslands, Stofnun Árna Magnússonar og Þjóðskjalasafn Íslands. Handrit, skjöl og myndlistaverk frá þessum stofnunum mynda kjarnann í sýningunni, og eru verk eftir fremstu listamenn þjóðarinnar til sýnis. ÝMISSA KVIKINDA LÍKI - ÍSLENSK GRAFÍK – 11.5. - 23.9.2018 FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign – 7.4.2017 - 31.12.2019 BÓKFELL Eftir Steinu í Vasulka-stofu 18.5 - 31.12 2018 SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Listasafn Íslands er opið alla daga frá kl. 10-17. LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR TVEIR SAMHERJAR – ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON 21.10.2017 - 7.10.2018 Opið alla daga frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Kaffistofa – heimabakað meðlæti SUMARTÓNLEIKAR Í LISTASAFNI SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR 7.8.2018 - kl. 20:30 - 21:30 Æskuástir og ævintýri Guja Sandholt sópran og Heleen Vegter píanóleikari flytja sönglög eftir Jórunni Viðar, Thea Musgrave, Edward Grieg og Claude Debussy. SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR - HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR 15.5. - 15.9.2018 Opið alla daga frá kl. 13-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.