Morgunblaðið - 24.08.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Eigendur Reykjavík Residence
(RR) áforma að opna nýtt hótel í
nóvember. Það verður í framhúsi og
nýju bakhúsi á Hverfisgötu 78.
Þórður Birgir Bogason, fram-
kvæmdastjóri RR, segir 16 hótel-
íbúðir verða innréttaðar í húsunum
tveimur. Um helmingur íbúðanna
verði með tveimur svefnherbergjum,
tveimur baðherbergjum, alrými og
eldhúsi. Það sé að kröfu ferðamanna,
einkum frá Bandaríkjunum og Asíu,
sem vilji mikil gæði.
Með nýja hótelinu verður RR með
63 íbúðir. Þá leigir félagið vínbarinn
Port 9 á Veghúsastíg.
Einingar frá Austurríki
Bakhúsið á Hverfisgötu 78 er reist
úr límtréseiningum frá Austurríki.
Innveggir fylgja með. Vinna við að
setja einingarnar upp hófst í síðari
hluta júlí. Nú er liðinn um mánuður
og búið að reisa húsið. Næsta skref
er að klæða húsið og innrétta íbúð-
irnar. Jafnframt verður framhúsið
endurgert. Þar verður setustofa.
Prentsmiðjan Formprent var með
aðstöðu á baklóðinni. Þórður Birgir
segir niðurrifið hafa tekið meiri tíma
en ætlað var. Meðal annars hafi
fleygun á klöppinni reynst vanda-
söm. Skammt sé milli húsa. Nýja
bakhúsið verði byggt upp að norður-
húsi Kjörgarðs. Milli bakhússins og
framhússins verði tengibygging.
Hann segir kostnaðinn trúnaðarmál.
Spurður um stöðuna á hótelmarkaði
segir Þórður Birgir samkeppnina að
harðna. Verð hafi lækkað milli ára.
„Eftirspurnin er gríðarlega mikil. Þá
er almennt mikil ánægja meðal gesta
með Íslandsferðina. Við erum með
sömu nýtingu og undanfarin ár.“
RR hóf starfsemi árið 2010. Félag-
ið hefur því fylgt uppsveiflunni í
ferðaþjónustu. Þórður Birgir segir
aðspurður að of mikil svartsýni ein-
kenni umræðu um atvinnugreinina.
Framboð á gistingu hafi aukist hratt
síðustu misseri. Með frekari fjölgun
ferðamanna sé útlit fyrir að eftir-
spurnin muni jafnvel aukast meira
en framboðið. Með því kunni verð að
hækka á ný. Hegðun ferðamanna sé
að breytast. Fast að 40% gesta panti
nú gistingu í farsímanum og með
skemmri fyrirvara en áður.
Nýtt borgarhótel opnað í nóvember
Eigendur Reykjavík Residence opna íbúðahótel á Hverfisgötu 78 í haust Reisa bakhús á mettíma
Talsmaður félagsins segir eftirspurnina mikla Of mikillar svartsýni gæti í ferðaþjónustu
Morgunblaðið/Arnþór
26. júlí 2. hæðin er að taka á sig mynd eftir aðeins nokkurra daga vinnu.
Morgunblaðið/Baldur
22. ágúst Svona leit bakhúsið á Hverfisgötu 78 út í fyrrakvöld.
Axel Helgi Ívarsson
Andri Steinn Hilmarsson
Sveitarfélög á Suðurlandi eru ósátt
við rútufyrirtæki sem bjóða upp á
farþegaflutninga í samkeppni við
Strætó á Suðurlandi. Málið var tekið
fyrir á síðasta fundi Samtaka sveit-
arfélaga á Suðurlandi (SASS). Sam-
tökin halda úti rekstri almennings-
samgangna á Suðurlandi í samvinnu
við Strætó og það er gert á grund-
velli einkaleyfis samkvæmt 7. gr
laga um farþegaflutninga og farm-
flutninga á landi. Hefur SASS til-
kynnt málið til Samgöngustofu.
„Við fögnum því að sjálfsögðu að
sem flestir heimsæki Suðurland en
reglubundnir farþegaflutningar
þurfa að vera samkvæmt þeim leik-
reglum sem eru fyrir hendi,“ segir
Bjarni Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka sunnlenskra sveitar-
félaga, í samtali við mbl.is.
Í lögum um farþegaflutninga og
farmflutninga á landi eru almenn-
ingssamgöngur skilgreindar sem
„hvers konar reglubundnir farþega-
flutningar“ og eru reglubundnir far-
þegaflutningar útskýrðir sem „fast-
ar ferðir á ákveðinni leið samkvæmt
fyrirframbirtri áætlun þar sem far-
þegum er hleypt inn og út á leiðinni.
Þjónustan er öllum opin, þ.e. al-
menningssamgöngur.“
Í bréfi til samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra frá Félagi hóp-
ferðaleyfishafa, sem Morgunblaðið
hefur undir höndum, er háttsemi
SASS mótmælt harðlega. „Við telj-
um kröfur Samtaka sunnlenskra
sveitarfélaga um rekstrarleyfis-
sviptingu nokkurra hópferðafyrir-
tækja á grundvelli 27. greinar laga
nr. 28/2017 vera ólöglegar,“ segir
Haraldur Teitsson, formaður Félags
hópferðaleyfishafa, við Morgun-
blaðið.
Umræddar ferðir rekstraraðila
eru útsýnisferðir í Þórsmörk, sem
falla ekki undir einkarétt í skilningi
laga nr. 28/2017 jafnvel þó að þær
séu reglubundnar, segir í bréfinu. Þá
taka hópferðabifreiðar „í umrædd-
um flutningum ekki upp farþega á
leiðinni á biðstöðvum Strætó bs,“
segir enn frekar í bréfi til ráðherra.
Hörð deila um samgöngumál
Morgunblaðið/Valli
Samgöngur SASS og Strætó halda
úti áætlunarferðum á Suðurlandi.
Einkaréttur á rekstri almenningssamgangna á Suðurlandi Telja rekstrar-
aðila halda úti reglubundnum farþegaflutningum sem er í andstöðu við einkarétt
Fátt jafnast á við göngutúr á góðviðrisdegi.
Mikilvægt er þó að kasta mæðinni og njóta sólar-
innar eins og þessi tvö gerðu í Elliðaárdalnum.
Um helgina er útlit fyrir bærilegt veður
sunnanlands þó að von sé á skúrum síðdegis í
dag. Á laugardag hangir hann þurr að mestu um
allt land en mildast verður suðvestantil. Á
sunnudag verður skýjað með köflum og stöku
skúrir og hiti á bilinu 6-12 stig.
Morgunblaðið/Eggert
Nutu sólarinnar í Elliðaárdalnum
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Hæsta heildarmat fasteigna er að
finna í Þingholtunum í Reykjavík en
hið lægsta á landinu er í Bolungarvík,
samkvæmt árlegum útreikningum
Þjóðskrár Íslands fyrir Byggðastofn-
un.
Í nýrri skýrslu Byggðastofnunar á
samanburði á fasteignagjöldum er
reiknað út heildarmat, samanlagt
verðmat fasteignar og lóðar, á sömu
viðmiðunarfasteigninni á 26 þéttbýlis-
stöðum á landinu. Sambærilegir út-
reikningar hafa verið gerðir frá árinu
2010.
Heildarmat á viðmiðunarsvæðum í
Reykjavík er frá 46 milljónum króna í
Úlfarsárdal upp í 99 milljónir króna í
Suður-Þingholtum. Nemur hækkunin
þar rúmum 20%. Annað árið í röð var
matið lægst í Bolungarvík, 14,5 millj-
ónir, en þar á eftir komu Patreks-
fjörður, Seyðisfjörður og Hólmavík.
Munur á hæsta og lægsta mati er því
tæpar 85 milljónir króna.
Hæsta matið utan höfuðborgar-
svæðisins er á Akureyri, 42,15 millj-
ónir króna, en mesta hækkunin milli
ára varð á Húsavík. Hækkunin nam
alls 43% frá 2017-2018, úr 22 millj-
ónum í rúma 31. Í Grindavík hækkaði
matið um rúm 19% milli ára og er nú
rúmar 30 milljónir. Hólmavík var eini
staðurinn þar sem matið lækkaði á
milli ára. Nam lækkunin 2,9%.
Keflavík trónir á toppnum
Annað árið í röð eru hæstu fast-
eignagjöldin í Keflavík eða 389 þús-
und kr. að því er segir í skýrslunni um
þéttbýlisstaðina. Gjöldin eru næst-
hæst í Borgarnesi annað árið í röð,
378 þúsund nú en voru 364 þúsund ár-
ið áður. Lægstu fasteignagjöldin eru
á Hólmavík, 234 þúsund krónur, sem
eru 60% af hæstu gjöldunum. Næst-
lægst eru fasteignagjöldin í Bol-
ungarvík og þau þriðju lægstu á
Vopnafirði. Í þessum útreikningum er
miðað við öll svokölluð fasteignagjöld;
fasteignaskatt, lóðarleigu, fráveitu-,
vatns- og sorpgjald.
85 milljóna
munur á
heildarmati
Fasteignagjöldin
hæst í Keflavík