Morgunblaðið - 24.08.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 24.08.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 2018 Vilt þú sitja ASÍ þing fyrir VR? VR óskar eftir frambjóðendum meðal félagsmanna á framboðslista stjórnar og trúnaðarráðs félagsins í kosningunum. Þar sem fjöldi er takmarkaður er ekki hægt að lofa að allir sem bjóða sig frammuni hljóta sæti á listanum. Einnig verður stillt upp lista varamanna sem oftar en ekki þarf að grípa til þar sem algengt er að fólk heltist úr lestinni er nær dregur. Ákveðið hefur verið að viðhafa listakosningu með allsherjar­ atkvæðagreiðslu um þingfulltrúa VR á þing Alþýðusambands Íslands dagana 24.–26. október næstkomandi. Ef þú vilt gefa kost á þér á listann sem þingfulltrúi VR á þinginu vinsamlega sendu tölvupóst á vr@vr.is fyrir kl. 12.00 á hádegi þann 29. ágúst næstkomandi með upplýsingum um nafn og kennitölu. Félag foreldra leikskólabarna í Reykjavík vill beita sér fyrir því að kjör ófaglærðs starfsfólks í leik- skólum verði bætt svo starfið verði eftirsóknarverðara. Haft var eftir Helga Þór Guð- mundssyni, stjórnarmanni í félag- inu, í Morgunblaðinu í gær að hluti mannekluvanda í leikskólum borg- arinnar væri að ófaglærðir ein- staklingar ynnu á leikskólum undir lágmörkum kjarasamninga fyrir borgina. Helgi sagði við Morgunblaðið í gær að hann hefði verið að vísa til þess hóps leikskólastarfsfólks, sem starfar á lágum launum eftir kjara- samningi Eflingar, en ekki undir mörkum kjarasamninga. Helgi seg- ir þann hóp vera reyndan og einn af burðarásum alls leikskólakerfis í Reykjavík sem þó brenni gjarnan út í starfi vegna mikils álags og lágra launa. Þá hafi það ekki mögu- leika á því að hækka laun sín, t.d. með yfirvinnu. Félagið standi þétt að baki þessum hópi og vilji beita sér fyrir því að kjör þessa starfs- fólks verði bætt svo það haldist fremur í starfi á leikskólum. Eins vildi Helgi árétta að ummæli í fréttinni í gær um sumarfrí leik- skólabarna hefðu verið sett fram í samhengi við mannekluástand sem leiddi í einhverjum tilvikum til þess að foreldrar hefðu þurft að taka launalaust leyfi yfir sumartímann eða finna börnunum pössun. Sum- arfrí væru börnum mikilvæg og nauðsynleg en þetta rýrði rétt barnanna til samverustunda með fjölskyldum sínum. Vilja styðja ófag- lært starfsfólk Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Biðin í eitt til eitt og hálft ár eftir aðgerð er glórulaus og algerlega óá- sættanleg. Ég var með kvölum, veigraði mér við að fara á mannamót og fannst ég vera að einangrast heima. Þetta er mín saga og hundr- aða annarra Íslendinga,“ segir Leif- ur Aðalsteinsson, 74 ára maður sem síðast starfaði sem rannsóknar- maður hjá Hafrannsóknastofnun. Hann tók þann kostinn að fara í mjaðmaraðgerð á einkasjúkrahús í Svíþjóð, á kostnað íslenska ríkisins, af því að hann komst ekki að á Landspítalanum og ríkið semur ekki við einkasjúkrahús hér. „Það eru tveir biðlistar. Fyrst þarf að bíða í 6-8 mánuði eftir að fá viðtal við bæklunarlækni á Landspítalanum, einungis til að fá staðfestingu á því að maður sé slit- inn og komist á hinn eiginlega bið- lista eftir aðgerð. Sú bið er átta mán- uðir eða ár og hjá flestum er biðin samtals í eitt til eitt og hálft ár,“ seg- ir Leifur. Hann segist vita um enn verri dæmi, eða bið í 22 mánuði. Fólk sé í misjöfnu ástandi. Sumir séu með óbærilegar kvalir og þurfi að bryðja verkjalyf. Ekki geta allir farið út „Það átta sig ekki allir á því hvað þetta er mikið óréttlæti. Ég hef stundum sagt við vini mína, til að út- skýra málið, að ef ég vaknaði með svæsna tannpínu og pantaði tíma á tannlæknastofu en yrði að bíða í 6-8 mánuði eftir tíma myndi mér bregða í brún. Þegar ég svo kæmi á stofuna fengi ég skoðun og þau svör að ég væri nú kominn á biðlista og hægt yrði að gera við tönnina eftir nærri ár. Ég efast um að nokkur myndi sætta sig við það,“ segir Leifur. Þegar Leifur sá fram á langa bið eftir aðgerð pantaði hann viðtal hjá Hjálmari Þorsteinssyni, yfirlækni á Klíníkinni. Hjálmar hjálpaði honum að fylla út umsókn til Sjúkratrygg- inga þar sem sótt var um endur- greiðslu á kostnaði við að fara í að- gerð í Klíníkinni og til vara að fara í aðgerð á einkasjúkrahús í Svíþjóð á kostnað ríkisins. Leifur segist hafa fengið svar skömmu síðar þar sem fram hafi komið að ekki væri samn- ingur við Klíníkina en hann gæti far- ið til Svíþjóðar. Var hann kominn þangað eftir um það bil tvo mánuði. Leifur bendir fólki einnig á að það geti beðið heimilislækni sinn að út- búa beiðni um aðgerð erlendis. Ferðin tekur um það bil viku og heimferðin getur verið erfið vegna þess að sjúklingurinn þarf að sitja á sárinu í bíl, í flughöfnum og flugvél, jafnvel þótt ríkið greiði flugmiða á Saga Class. Tekur Leifur fram að hann hafi aldrei áður keypt sér flug- miða á dýrasta farrými. „Það treysta sér ekkert allir í þetta ferðalag, sem von er. Sumir eru það illa haldnir að þeir bugast og verða að kaupa sér aðgerð hjá Klíníkinni og taka til þess bankalán til 3-5 ára. Það er sárt að vita fólk í þessari stöðu. Það er nefnilega ekki aðeins efnafólk sem lendir í þessu. Í sjálfu sér er heldur ekkert á móti því að fólk sem á peninga noti þá í þetta. Það kemur okkur ekki við. Það er já- kvætt að því leyti að þá fækkar á biðlistunum hjá Landspítalanum og aðrir komast fyrr að.“ Honum reiknast til að kostnaður Sjúkratrygginga við sjúkrahús, flug, hótel og uppihald, bílaleigubíl og fylgdarmann hafi verið um 3,5 millj- ónir króna. Peningarnir renni inn í sænska hagkerfið. Sama aðgerð á Klíníkinni kosti 1.200 þúsund kr. Inni í þeirri tölu séu laun bækl- unarlæknis, svæfingarlæknis og hjúkrunarfræðinga og þjónusta Klí- níkurinnar. Allar þessar greiðslur fari út í íslenska hagkerfið, auk þess sem 400 þúsund af heildarfjárhæð- inni renni til ríkisins í formi skatta starfsfólks. Bæði sjúkrahúsin eru einkarekin. Ríkið greiði fjölda að- gerða á einkastofum hér, til dæmis axlaaðgerðir í Orkuhúsinu og augn- steinaaðgerðir. Glórulaus afstaða ráðherra Leifur hefur þung orð um heil- brigðisyfirvöld, sem neiti samn- ingum við Klíníkina og valdi sjúk- lingum þessum erfiðleikum. „Heilbrigðisráðherra stendur á því eins og hundur á hörðu roði að ekki megi skipta við þetta fyrirtæki. Það er alveg glórulaus afstaða. Það er líka misskilningur að Sjúkratrygg- ingar neiti að semja við Klíníkina, stjórnendur þar vilja gjarnan spara fjármuni ríkisins en það eru ráða- menn sem stoppa það af. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra gæti kippt þessu í liðinn með einu pennastriki,“ segir Leifur. Ráðherra gæti kippt þessu í liðinn með einu pennastriki  Leifur Aðalsteinsson lýsir samskiptum sínum og annarra við heilbrigðisyfirvöld Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Heima Leifur Aðalsteinsson er heima að jafna sig eftir mjaðmaraðgerð í Svíþjóð. Hann gengur um á hækjum fyrstu dagana. Leifur er brattur en ósáttur við kerfið sem veldur fólki þjáningum vegna pólitískrar kreddu. Ingi Tryggvason, fyrr- verandi alþingismaður og formaður Stéttar- sambands bænda lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsa- vík aðfaranótt mið- vikudags 22. ágúst, 97 ára að aldri. Ingi fæddist 14. febrúar 1921 á Litlu- Laugum í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu, sonur hjónanna Unnar Sigurjónsdóttur hús- móður og Tryggva Sig- tryggssonar bónda. Ingi stundaði nám við Héraðsskól- ann á Laugum, tók kennarapróf frá KÍ 1942, viðbótarnám við Kenn- araskólann í Kaupmannahöfn 1946- 1947 og auk þess nám í ensku og enskum bókmenntum í London 1947-1948. Ingi stundaði kennslustörf til 1970, lengst af við Héraðsskólann á Laugum. Jafnhliða kennslu reisti Ingi nýbýlið Kárhól í Reykjadal og stundaði þar búskap jafnhliða öðrum störfum til 1985, en 1988 hóf hann ferðaþjónustubúskap á Narfastöð- um í sömu sveit auk þess að vera þar skógarbóndi til dánardags. Ingi sat í hreppsnefnd Reykdæla- hrepps 1966-1974, sat í skólanefnd Héraðsskólans á Laugum 1974-1982, formaður um tíma. Ingi var stjórn- armaður í Sparisjóði Reykdæla (síðar Þing- eyinga) 1952-1982 og lengst af einnig spari- sjóðsstjóri. Ingi sat og í stjórn Sambands ís- lenskra sparisjóða um árabil. Ingi gegndi fjölda trúnaðarstarfa fyrir bændasamtökin, sat m.a. í stjórn fram- leiðsluráðs landbún- aðarins og Stétt- arsambands bænda um árabil og formaður þess 1981-1987. Þá var hann í stjórn Landverndar 1975- 1981. Ingi kom að uppbyggingu Ferðaþjónustu bænda og gegndi þar stjórnarsetu og formennsku um ára- bil. Ingi var varaþingmaður Fram- sóknarflokksins 1971-1974 og 1978- 1979 og þingmaður Framsókn- arflokksins 1974-1978. Ingi sat á þingi SÞ haustið 1978. Eiginkona Inga var Anna Septíma Þorsteinsdóttir sem lést 1986. Þau eignuðust fimm syni, Hauk Þór og Tryggva sem báðir eru látnir, Þor- stein Helga, Steingrím og Unnstein. Barnabörnin eru átta og langafa- börnin níu. Sambýliskona Inga til tæpra þriggja áratuga var Unnur Kolbeinsdóttir en hún lést í sept- ember 2016. Andlát Ingi Tryggvason Á forsíðu Morgunblaðsins í gær mis- ritaðist föðurnafn Auðar Bjarna- dóttur bæði í texta og myndatexta. Hún var sögð Bárðardóttir en er Bjarnadóttir. Sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn Mishermt var í grein í Morg- unblaðinu í gær að Guðrún Lár- usdóttir hefði setið á þingi fyrir Íhaldsflokkinn þegar hún lést í bíl- slysi í ágúst 1938. Hún var þingmað- ur Sjálfstæðisflokksins. Beðist er velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTT Misritað föðurnafn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.