Morgunblaðið - 24.08.2018, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 24.08.2018, Qupperneq 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 2018 ✝ Einar GunnarÁsgeirsson fæddist í Reykjavík 8. júní 1934 og ólst upp á Njálsgötu 69 og frá 1948 á Lang- holtsvegi 143. Hann lést 14. ágúst 2018. Einar Gunnar var kaupmaður og stofnandi versl- unarinnar Litavers. Foreldrar hans voru Ásgeir Valur Einarsson veggfóðrarameistari, f. 15. ágúst 1911, d. 25. mars 1988, og Sigríður Beinteinsdóttir, f. 26. júlí 1913, d. 1. september 2011. Einar Gunnar giftist Guðríði Guðmundsdóttur, f. 22. nóv- Gunnars er Sigrún Hjaltested, f. 8. febrúar 1936. Börn hennar eru: 1) Pétur Guðmundsson, f. 11. apríl 1957, giftur Guðrúnu K. Bachmann, f. 19. mars 1953. Eiga þau tvö börn. 2) Rúna H. Guðmundsdóttir, f. 6. ágúst 1958, gift Heimi Karlssyni, f. 18. mars 1961. Rúna á eitt barn frá fyrra hjónabandi en þau eiga tvö börn saman. 3) Bragi Guð- mundsson, f. 26. mars 1962, gift- ur Hjördísi Sævarsdóttur, f. 6. júní 1964. Eiga þau þrjú börn. 4) Snævarr Guðmundsson, f. 28. október 1963, í sambúð með Sig- ríði Guðnýju Björgvinsdóttur, f. 20. nóvember 1958. Snævarr á tvö börn frá fyrra hjónabandi. 5) Snorri Guðmundsson, f. 28. nóv- ember 1963, giftur Lindu Guð- mundsdóttur, f. 1. október 1961. Snorri á eitt barn frá fyrra hjónabandi. Útför Einars Gunnars fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 24. ágúst 2018, klukkan 13. ember 1931. Þau skildu. Börn þeirra: 1) Hannes, f. 25. apríl 1957, giftist Guðrúnu Sigurð- ardóttur, f. 3. jan- úar 1960. Þau skildu. Eiga þau eitt barn. Sambýlis- kona Hannesar er Guðrún Ólafsdóttir, f. 14. janúar 1946, og á hún tvö börn. 2) Örn, f. 29. nóvember 1959, giftur Nínu Stefánsdóttur, f. 6. apríl 1962. Þau eiga fjögur börn. 3) Ómar, f. 6. apríl 1961, giftur Höllu Magnúsdóttur, f. 2. júní 1967. Eiga þau tvö börn. Síðari eiginkona Einars Í dag kveðjum við bræður pabba okkar. Margar eru minn- ingarnar og segja má að þær skiptist í tvo kafla, þ.e. fyrir og eft- ir skilnað hans við móður okkar, Guðríði Guðmundsdóttur, árið 1973. Á uppvaxtarárum okkar stofn- aði pabbi Litaver sf. og hafði stór- tækar hugmyndir með það fyrir- tæki. Þá bjuggum við á Grensásvegi 60 og fluttum síðar í Langagerði 118. Við bræðurnir allir ásamt fleiri ættingjum og vin- um störfuðum í Litaver í lengri eða styttri tíma ýmist í sumar- vinnu eða meira. Pabbi og mamma höfðu mjög gaman af því að ferðast um landið og nokkur sum- ur í röð fórum við fjölskyldan í tjaldútilegur ásamt tíkinni Twiggy. Oft var farið austur á Laugarvatn og komið við í Laug- arási þar sem ættingjar áttu sum- arhús en einnig var Borgarfjörð- urinn vinsæll. Pabbi hafði sérstaklega gaman af því að koma við á bænum Hurðarbaki hjá hjónunum Sigríði og Bjarna. Þar var sundlaug og segja má að þar höfum við bræðurnir lært að synda. Pabbi var hugmyndaríkur og var djarfur að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd. Hann bjó til fjölmargar auglýsingar fyrir Lita- ver sem sýndar voru í sjónvarpinu og bjó m.a. til hið fræga slagorð „Ertu að byggja? Viltu breyta? Þarftu að bæta?“ Eitt árið setti hann upp gríðarlega stóran loft- belg sem staðsettur var í mikilli hæð fyrir ofan búðina á Grensás- veginum. Á loftbelgnum stóð stórum stöfum LITAVER og blasti hann við öllum sem áttu leið um Miklubrautina. Belgurinn góði endaði svo líf sitt þegar einhver skaut á hann með loftriffli svo hann sveiflaðist út og suður og reif upp fjölmörg sjónvarpsloftnet. Allt kom svo í sjónvarpsfréttunum sem var kannski stærsta auglýs- ingin fyrir Litaver. Stuttu eftir skilnaðinn við móð- ur okkar hóf pabbi sambúð með eftirlifandi eiginkonu sinni, Sess- elju Sigrúnu Hjaltested. Þau gift- ust og bjuggu allt sitt hjónaband í Grundargerði 8 í Reykjavík. Árið 1994 veiktist pabbi af kransæðastíflu og það breytti lífi hans nokkuð. Það sama ár seldi hann Litaver. Hann fór þá að hafa meira samband við okkur bræð- urna og hittumst við allir einu sinni til tvisvar í viku á gamla Litaversplaninu, þaðan sem við keyrðum upp í Litlu kaffistofu og fengum okkur súpu. Þessum sið héldum við í mörg ár og þá var mikið hlegið og margt rifjað upp. Fyrir fjórum árum var heilsa pabba orðin það léleg að hann fékk pláss á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum en fram að því hafði Sigrún kona hans sinnt hon- um af mikilli eljusemi og um- hyggju. Við bræðurnir héldum áfram að gera reglulegar ferðir til hans á Droplaugarstaði og fórum gjarnan með hann í bíltúra sem honum þótti alltaf gaman. Þess á milli naut hann frábærrar umönn- unar starfsfólksins á Droplaugar- stöðum og kunnum við því bestu þakkir fyrir. Nú kveðjum við þig, pabbi, með söknuði og geymum allar góðar minningar í hjarta okkar. Við bræðurnir erum sammála um það að lífið heldur áfram á andlega sviðinu og viljum við trúa því að vel verði tekið á móti þér og von- andi sjáumst við aftur síðar. Hannes, Örn og Ómar. Meira: mbl.is/minningar Það eru tímamót og minning- arnar streyma fram því leiðir okk- ar bræðranna, mínar og Einars Gunnars Ásgeirssonar hafa nú skilið, um sinn, við andlát hans. Við nutum öryggis og um- hyggju hjá foreldrum okkar Sig- ríði Beinteinsdóttur og Ásgeiri Val Einarssyni á Langholtsvegi 143. Eftir lifa Beinteinn sem er elstur og Valgeir sem er yngstur okkar bræðra og undirritaður Ólafur Már. Einar Gunnar var ellefu árum eldri en ég og Beinteinn bróðir þrettán árum eldri og ólst ég upp með þessum eldri bræðrum sem voru fyrirmyndir mínar eins og lög gera ráð fyrir. Lengi vel hélt ég að Einar Gunnar bróðir héti bara Gunnar því hann var aldrei kallaður neitt annað. Margir þekktu hann aðeins með því nafni og var hann því Gunnar í huga flestra vina og vandamanna. Það festist í minni mínu hvað Gunni átti erfitt með á þeim árum sem ég man fyrst eftir honum, að fara á fætur. Það gekk mikið á því hann þurfti að ná strætó á réttum tíma, því ekki vildi mamma, þessi nákvæma kona, að unglingurinn mætti of seint í vinnuna. Hún gerði ítrekaðar tilraunir til að koma honum á fætur, og ég fann að ég yrði að koma henni til hjálp- ar því ekki vildi ég að Gunni yrði okkur til skammar og sjálfum sér til vansa. Ég reif af honum sæng- ina og þá vildi hann hefna sín og eltingarleikur hófst um allt húsið og ég hljóp hálfskelkaður undan. Ég fann að Gunni bróðir var ekki ánægður með litla bróður, en þetta uppátæki vakti hann svo um munaði og hann náði réttum strætó. Gunni var til sjós á Þorkeli Mána, þeim sögufræga síðutogara og fiskurinn var seldur erlendis. Litli bróðirinn var oft í huga sjó- mannsins bróður míns í útlöndum, því þeir voru margir kappaksturs- bílarnir og trukkarnir sem hann gaf mér. Nú við þessi tímamót ylja gjaf- irnar enn, þó að langt sé liðið, því að ég man gleðina og stoltið yfir stóra bróður á sjónum sem hugs- aði heim til mín. Árin liðu og Gunnar stofnaði Litaver. Þar vantaði afgreiðslu- mann og að sjálfsögðu var ég sett- ur í það. Litaver óx hratt í hönd- unum á Gunnari. Síðar lærði ég fjölskyldufagið, veggfóðrun og dúklögn, og þannig varð samband okkar náið, því ég þurfti oft að sækja efni í búðina. Þegar á ævina leið styrkti það vináttu okkar að við fórum að spila golf saman. Við spiluðum bæði hérlendis og erlendis og ferð okk- ar til Flórída er ein af þeim skemmtilegustu. Við hlógum mik- ið og gerðum grín að hvor öðrum. Mér er minnisstætt þegar ég var búinn að slá sex högg án þess að komast upp úr sandglompu, þá sagði Gunni að ég skyldi bara halda áfram, hann kæmi eftir kvöldmat að sækja mig. Ef ég gæti ávarpað bróður minn yfir mörk lífs og dauða myndi ég segja: Elsku Gunni minn, þakka þér yndislegar minn- ingar og góða vináttu, ég mun sakna þín mikið. Þinn bróðir Ólafur Már. Í dag kveð ég mág minn, Einar Gunnar. Við hittumst fyrst þegar við Óli Már litli bróðir hans, vorum feng- in til að passa syni hans Hannes, Örn, og Ómar. Þó að Gunnar væri 11 árum eldri en Óli þá voru þeir alla tíð mjög góðir vinir, og mikill samgangur okkar á milli. Þegar Gunnar giftist Sigrúnu þá kom í ljós að við tvær áttum mörg sam- eiginleg áhugamál, og þá fórum við að ferðast meira saman innan- lands sem utan eins og t.d. til Ír- lands, Parísar og Englands. Gunnar var alltaf mikill prakkari í sér og komst fljótt í kynni við ótrúlegasta fólk, og börn urðu fljótt hænd að honum. Það eru margar yndislegar minningar eft- ir þessi ríflega 55 ára kynni og mörg gullkornin sem hægt er að rifja upp í framtíðinni. Ég þakka samfylgdina og vináttuna, minn- ingarnar munu lifa áfram. Camilla Th. Gunnar frændi var stór karakt- er. Hann var líka stór vexti, há- vaxinn og myndarlegur. Þegar ég var lítil stúlka fannst mér Gunnar besti frændi í heimi. Stundum birtist hann án fyrir- vara og bauð okkur systkinunum í ísbíltúra, sem þá var vinsæl dægradvöl. Svo man ég einnig eft- ir bíóferð í Hafnarbíó á „Gauj og Gokke“ sem endaði með stoppi í verslun hans Litaveri, þar sem við máttum velja okkur mottur til að hafa í herbergjunum okkar. Þegar ég var 12 ára réð Gunnar mig í vinnu á laugardögum til að svara í síma og hita kaffið fyrir starfsfólkið í Litaveri og fannst mér það mikil upphefð. Honum fannst hann eiga heil- mikið í mér þar sem ég var ná- frænka hans og ég man eftir nokkrum skiptum þar sem hann og pabbi tókust á um það hvor fengi að leiða mig inn kirkjugólfið ef ég nokkurn tíma tæki upp á því að gifta mig! Ég man að mér fannst erfitt að neita Gunnari um þetta þar sem hann átti þrjá myndarlega drengi en enga stelpu sjálfur og gæti þar af leiðandi aldrei leitt neinn upp að altari. Pabbi minnti mig þá á að ég væri líka eina stelpan hans! Þegar ég fór til náms í París komu Gunnar og Sigrún oft þangað og fórum við þá og fengum okkur kaffi eins og almennilegir „stórborgarar“, Gunnar frændi elskaði París. Hann var skemmtilegur og uppá- tækjasamur og oft var hlegið mik- ið og gantast. Ég mun sakna þessa stóra frænda míns, og þakka fyrir allar góðar stundir sem ég átti með honum og Sigrúnu. Hvíl í friði. María frænka (Maja). Það var árið 1974 sem ég fékk sumarstarf hjá versluninni Lita- veri og kynntist ég þá Einari Gunnari eða Gunnari eins og hann var yfirleitt kallaður. Faðir minn, Benedikt, sem Gunnar þekkti frá fornu fari, hitti Gunnar á förnum vegi og datt í hug að spyrja hvort hann hefði sumarstarf fyrir mig og gekk það eftir. Ég starfaði síðan hjá Litaveri öll sumur frá 1974 til 1980, nokkur skipti um jólin og einn vetur á menntaskólaárunum vann ég á föstudagseftirmiðdögum og laug- ardagsmorgnum. Í byrjun sinnti ég ýmsum störfum á lager, en á öðru sumri fór ég að afgreiða í málningarversluninni. Á þessum tíma var talsverður uppgangur hjá Litaveri. Velta búðarinnar var þá mest í teppum, en Gunnar var stórhuga í að ná góðri markaðs- stöðu á málningarmarkaðnum. Þetta var skemmtilegur tími. Yf- irleitt var nóg að gera en Gunnar hikaði ekki við að taka ákvarðanir sem voru oft afdrifaríkar. Starfs- fólk kom og fór og einn ágústmán- uðinn var ég eini starfsmaðurinn í málningarversluninni og þurfti að sjá um að panta, raða í hillur og af- greiða. Þetta gekk upp, en var ekki auðvelt. Gunnar hafði engar áhyggjur af því að þetta gæti ekki gengið eftir og hafði reyndar gam- an af þessu. Hann tryggði síðan með traustum ráðningum undir lok starfstíma míns að mikill stöð- ugleiki fékkst á rekstur málning- arbúðarinnar. Gunnar var litríkur persónu- leiki sem byggði upp Litaver af miklum dugnaði. Hann reyndist mér vel og var alltaf hlýr í minn garð. Vinnan hjá honum í Litaveri var mjög lærdómsrík og veitti mér reynslu sem nýst hefur mér vel. Kann ég honum miklar þakkir fyrir það. Á þessum tíma kynntist ég mörgu góðu fólki sem starfaði hjá Litaveri, þar á meðal fjölskyldu Gunnars. Ég votta Sigrúnu og fjölskyldu Einars Gunnars Ásgeirssonar innilega samúð mína. Jón Atli Benediktsson. Einar Gunnar Ásgeirsson HINSTA KVEÐJA Komið er að kveðju- stund. Erfiðri göngu er lok- ið og hvíldin kærkomin. Þú hefur margar orrustur háð en nú er stríðið á enda. Þegar dags er þrotið stjá þróttur burtu flúinn. Fátt er sælla en sofna þá syfjaður og lúinn. (Rögnvaldur Björnsson.) Innilegar samúðarkveðj- ur, elsku Lilla mín og fjöl- skylda. Guð gefi þér, Gunn- ar minn, góða ferð og góða heimkomu. Ingibjörg Björnsdóttir (Inga). Öll við færum, elsku vinur, ástarþökk á kveðjustund. Gleði veitir grátnu hjarta. guðleg von um eftirfund. Drottinn Jesú, sólin sanna, sigrað hefur dauða og gröf. Að hafa átt þig ætíð verður, okkur dýrmæt lífsins gjöf. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þökkum fyrir allt og allt. Hvíl í friði. Bragi og Hjördís. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Bróðir okkar og mágur, SKÚLI MAGNÚSSON byggingameistari, lést miðvikudaginn 1. ágúst á hjúkrunar- deild Hrafnistu, Mánateigi. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimaþjónustunar í Efri byggð og Hrafnistu fyrir aðstoð í veikindum Skúla. Þorkell Magnússon og Ásta Kristjánsdóttir Guðrún F. Magnúsdóttir Rafn Thorarensen og Guðfinna J. Th. Guðmundsdóttir Fjóla Guðlaugsdóttir Við sendum innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, ömmu og tengdamóður, HELGU S. ÞORKELSDÓTTUR. Andrés Þórðarson Þorkell Andrésson Nanna Þóra Andrésdóttir Laufey Ámundadóttir Fanney Hrafnsdóttir Andrés Þorkelsson Guðberg Hrafnsson Guðrún Lilja Þorkelsdóttir Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, BÓEL ÁGÚSTSDÓTTIR frá Svanavatni, lést á dvalarheimilinu Lundi, Hellu, þriðjudaginn 21. ágúst. Útförin fer fram frá Voðmúlastaðakapellu, Austur-Landeyjum laugardaginn 1. september, klukkan 14. Viðar Marmundsson Aðalheiður Viðarsdóttir Ottó Ólafur Gunnarsson Bjarki Viðarsson Sigurbjörg Leifsdóttir Guðbjörg Viðarsdóttir Jón G. Valgeirsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA VALGERÐUR HJARTARDÓTTIR, Hrauntungu 14, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnhlíð fimmtudaginn 16. ágúst. Útförin fer fram frá Digraneskirkju mánudaginn 27. ágúst klukkan 13. Erla Erlendsdóttir Hilmir Sigurðsson Hreinn H. Erlendsson María S. Magnúsdóttir Hjörtur V. Erlendsson Guðrún Þ. Benediktsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.