Morgunblaðið - 24.08.2018, Síða 36

Morgunblaðið - 24.08.2018, Síða 36
FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 236. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Arna Dís fær tækifæri 2. „Ég var rosalega reið“ 3. Fékk ekki húsnæði og svaf á göngum … 4. Íslenskur fararstjóri sektaður »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Sýningin Skúlptúr/ Skúlptúr verð- ur opnuð í Gerðarsafni í kvöld kl. 20 og er hún hluti af sýningaröð sem ætlað er að skoða skúlptúrinn í sam- tímanum. Sýningin er sú þriðja í röð- inni og með öðru sniði en þær fyrri því fjórir starfandi listamenn ganga nú til móts við Gerði í yfirstandandi sýningu sem opnuð var fyrr í sumar. Listamennirnir eru Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir, Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir, Steinunn Önnudóttir og Styrmir Örn Guðmundsson og við opnunina mun Styrmir fremja gjörn- inginn Organ Orchestra. Gjörningur við opnun  Söngkonan Guðrún Óla Jóns- dóttir, kölluð Gógó, heldur ein- söngstónleika í Lindakirkju í kvöld kl. 20. Með henni leika Óskar Einarsson á píanó og Páll Elfar Páls- son á bassa. Á efnisskránni verða ýmis dægurlög sem Aretha Franklin, Whitney Houston, The Carpenters, Abba, Elton John o.fl. hafa gert fræg. Gógó í Lindakirkju  Gagnrýnandi óperutímaritsins Opera, Amanda Holloway, fer lof- samlegum orðum um óperu Daníels Bjarnasonar, Brothers, eða Bræður, sem sýnd var hjá Íslensku óperunni 9. júní sl. í leikstjórn Kaspers Hol- tens og hljómsveitar- stjórn Daníels. Segir hún m.a. að hún hafi ekki séð jafnsannfær- andi túlkun á áfalla- streituröskun í listaverki áður og sjá megi í óp- erunni. Lofsyngur Bræður Á laugardag Hæg norðlæg átt og stöku skúrir um landið norðan- og austanvert, en léttskýjað suðvestanlands. Hiti 5 til 13 stig, hlýj- ast á Suðurlandi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg norðanátt, skýjað með köflum og stöku skúrir sunnan- og vestanlands. Súld eða rigning um land- ið norðan- og austanvert. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast á Suðurlandi. VEÐUR Róbert Geir Gíslason, fram- kvæmdastjóri HSÍ, segist vera vongóður um að Hand- knattleikssamband Evrópu, EHF, veiti undanþágu og heimili íslenska landsliðinu að leika í Laugardalshöll í undankeppni Evrópumóts- ins. EHF hefur hins vegar sett Færeyingum stólinn fyrir dyrnar vegna þess að íþróttahallir þeirra uppfylla ekki kröfur sem gerðar eru til keppnishúsa. »1 Fær væntanlega undanþágu „Það er of snemmt að segja til um það núna hvað tekur við, hvort ég held áfram eða fer eitthvað annað. Nýr þjálfari tekur við þjálfun liðsins á næsta sumri og hver veit hvað hann vill gera,“ segir handknattleiks- maðurinn Alexander Petersson sem var í sigurliði Rhein- Neckar Löwen í meistara- keppninni í Þýskalandi í fyrrakvöld. Samningur Al- exanders við félagið rennur út um mitt næsta ár en hann hef- ur verið í her- búðum Löwen í sex ár. »4 Óljóst hvað framtíðin ber í skauti sér „Ég er ekki að æfa með liðinu eins og er. Þessi meiðsli hafa eiginlega verið að plaga mig frá því í apríl. Ég von- aðist til þess að það myndi jafna sig í sumarfríinu en þegar ég byrjaði að æfa hjá Augsburg eftir fríið var ég lít- ið skárri,“ sagði Alfreð Finnbogason, landsliðsmaður í knattspyrnu, sem verður fjarri góðu gamni í fyrstu leikjum Augsburg á tímabilinu. »2 Alfreð hefur ekki jafnað sig af meiðslum í kálfa ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Axel Helgi Ívarsson axel@mbl.is „Ég hef verið með í nánast öll skipt- in sem mótið hefur verið haldið. Í fyrra náði ég þriðja sæti og hafði þá ekki komist á pall áður, þannig að það er óhætt að segja að mér hafi farið fram, eða vonandi hefur það verið þannig,“ segir Ragnar Braga- son, bóndi á Heydalsá og nýkrýndur Íslandsmeistari í hrútadómum, en síðustu helgi fór fram sextánda Ís- landsmeistaramótið í hrútadómum við Sauðfjársetrið á Ströndum. Ragnar segir aðspurður að hann stefni aftur á mótið að ári til þess að verja titilinn. „Allavega að vera með. Ég hef gríðarlega gaman af þessu. Það er sérstakt áhugamál að þukla og skoða hrútana og spá í hver þeirra sé bestur,“ segir Ragnar, sem er öllu vanur þegar kemur að sauðfé, en hann er með 750 fjár á sínu búi. Krefst mikillar þjálfunar „Reynslan kemur með árunum. Það krefst margra ára þjálfunar að vera góður í hrútaþukli vegna þess að matið er huglægt og með árunum verður maður betri,“ segir Ragnar. Vegna þess að þuklið byggist á hug- lægu mati kemur fyrir að fólk verður ósammála um gæði hrútanna. „Það er það skemmtilega, menn geta ver- ið ósammála og haft misjafnar skoð- anir. Þetta er ekki meitlað í stein,“ segir Ragnar um hrútaþuklið. Margir keppendur Rúmlega 50 manns tóku þátt á Íslandsmeistara- mótinu í hrútadómum og var nokkuð um nýja keppendur í bland við þá sem hafa áður tekið þátt. Ragn- ar tók þátt í flokki vanra en í flokki óvanra bar Elín Þóra Stefánsdóttir sigur úr býtum. Mikill fjöldi gesta fylgdist með keppninni og ríkti góð stemning á staðnum, segir Ragnar. „Þetta er viðburður sem sumir hlakka til vik- um saman. Það eru þeir sem mæta árlega, svona mestu hrútaspeking- arnir,“ segir Ragnar um mótið í hrútadómum. Á meðal gesta voru Englendingar sem miðuðu Íslandsferðina sér- staklega við Íslandsmeistaramótið. „Hingað komu Englendingar, sem höfðu komið daginn eftir hrútaþukl- ið í fyrra og miðuðu Íslandsferðina þetta árið við mótið í hrútadómum. Þeir ætluðu ekki að missa af því aft- ur og voru ofsakátir með þetta,“ segir Ester Sigfúsdóttir, fram- kvæmdastjóri Sauðfjársetursins, í samtali við Morgunblaðið. Ætlar að verja titilinn að ári  Sextánda Ís- landsmeistaramót- ið í hrútadómum Ljósmynd/Dagrún Ósk Jónsdóttir Hrútadómar Ragnar Bragason efstur á palli með verðlaunagripinn Horft til himins, sem er í varðveislu sigurvegara í eitt ár. Í öðru sæti var Elvar Stefánsson í Bolungarvik og Guðmundur Gunnarsson á Kjarlaksvöllum varð þriðji. „Ráðunautur byrjar á skoða hóp hrúta og velur fjóra hrúta til þess að vera viðfangsefni keppn- innar. Ráðunauturinn gefur hrútunum stig eftir bygg- ingarlagi, mælir þá, t.d. fót- legg, og vigtar þá. Svo eig- um við keppendur að gera það sama,“ segir Ragnar aðspurður og heldur áfram: „Við fáum að sjá hvað þeir eru þungir, hve langur fót- leggurinn mældist og ómmæl- inguna á bakvöðvanum. Svo gefum við stig fyrir byggingareiginleik- ana. Sá sem kemst næst stigagjöf ráðunautarins vinnur keppnina. Við þurfum líka að raða hrútunum upp eftir gæðum, það er að segja hver er númer eitt, tvö, þrjú og fjögur. Sú röð þarf að passa við gæðamat ráðunautarins,“ segir Ragnar um keppnina í hrúta- dómum. Út á hvað gengur keppnin? HUGA ÞARF AÐ ÝMSU VIÐ MAT Á GÆÐUM HRÚTA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.