Morgunblaðið - 29.08.2018, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 2018
JÓN BERGSSON EHF
RAFMAGNSPOTTAR
Einstaklega meðfærilegir og orkunýtnir pottar sem
henta jafnt í bústaðinn sem og í þéttari byggð
Kletthálsi 15 | 110 Reykjavík | Sími 588 8881 | www.jonbergsson.is | jon@jonbergsson.is
AFP
Herveldi Rússnesk herskip á siglingu við
Sankti Pétursborg í síðasta mánuði.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Stjórnvöld í Rússlandi vinna nú að því að styrkja
hernaðarstöðu sína á Miðjarðarhafi nærri Sýr-
landi. Fréttaveita AFP greinir frá þessu og seg-
ir líkur á því að stjórnarher Bashars al-Assads
Sýrlandsforseta muni á næstunni gera stórsókn
inn í héraðið Idlib og að sveitirnar muni njóta
aðstoðar rússneskra hersveita. Héraðið er undir
stjórn vopnaðra sveita uppreisnarmanna í Sýr-
landi.
Stjórnvöld í Kreml segja uppreisnarmenn
ætla að setja á svið eiturefnaárás í norðvest-
urhluta héraðsins sem myndi þrýsta mjög á
vestræn ríki til að bregðast við með herafli.
Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir Banda-
ríkjaher nú vera að auka getu sína til loftárása í
Mið-Austurlöndum. „Þessari ögrun, sem fram-
kvæmd er með aðstoð frá breskum leyniþjón-
ustum, er ætlað að styðja við flugskeytaárásir
Bandaríkjanna, Bretlands og Frakklands á sýr-
lenska ríkið,“ segir Igor Konashenkóv, hers-
höfðingi og talsmaður varnarmálaráðuneytis
Rússlands, í samtali við rússneska ríkisfjölmið-
ilinn RT.
Þá sagði John Bolton, þjóðaröryggisráðgjafi
Bandaríkjaforseta, að ef ríkisstjórn Sýrlands
myndi beita efnavopnum myndu Bandaríkin
„bregðast mjög harkalega“ við og að Sýrlands-
stjórn ætti að taka það til rækilegrar umhugs-
unar. Ummælin lét hann falla fyrir um viku.
Viðbúnaður aukinn á Miðjarðarhafi
Fréttaveita AFP segist hafa heimildir fyrir
því að stjórnvöld í Rússlandi hafi nú sent tvö
herskip til viðbótar inn á Miðjarðarhaf auk öfl-
ugs loftvarnarkerfis. Eru Rússar nú sagðir hafa
alls tíu herskip og tvo kjarnorkuknúna kafbáta
við strendur Sýrlands, en herafli þessi mun vera
sá öflugasti á svæðinu frá því að Rússar hófu að
veita Bashar al-Assad Sýrlandsforseta hernað-
araðstoð í september árið 2015. Þá eru rússnesk
stjórnvöld sögð hafa í hyggju að senda enn fleiri
herskip upp að ströndum Sýrlands á næstunni.
Bandaríkin, Bretland og Frakkland gerðu um
miðjan apríl sl. sameiginlegar loftárásir gegn
sveitum Sýrlandsforseta. Voru þær svar við
efnavopnaárás sem gerð var í Douma, en henni
var beint gegn almennum borgurum Sýrlands.
Stjórnvöld í Rússlandi stóðu þá við hlið Sýr-
landsstjórnar og héldu því fram að Hvítu hjálm-
arnir svonefndu, sem þekktir eru fyrir björg-
unar- og hjálparstarf í landinu, hefðu staðið að
baki árásinni.
Umfangsmikil heræfing á næstunni
Í næsta mánuði mun rússneski herinn standa
fyrir umfangsmestu heræfingu Rússa frá lokum
kalda stríðsins. Greinir breska ríkisútvarpið frá
því að um 300.000 manns muni taka þátt í æfing-
unni sem haldin verður í mið- og austurhluta
Rússlands. Meðal þeirra sem taka þátt eru her-
sveitir frá Kína og Mongólíu. Varnarmálaráð-
herra Rússa segir æfinguna í anda þeirrar sem
haldin var 1981 þegar Sovétríkin æfðu árás á
Atlantshafsbandalagið.
Senda fleiri herskip til Sýrlands
Tíu rússnesk herskip og tveir kafbátar lóna við strendur landsins Mesti herstyrkur Rússa á Mið-
jarðarhafi frá upphafi aðstoðar þeirra við Bashar al-Assad Bandaríkin sögð auka getu sína til árása
Ekki
Þýskalandi
sæmandi
Angela Merkel,
kanslari Þýska-
lands, segir ekk-
ert rými vera
fyrir hatur á göt-
um landsins, en
ummælin koma í
kjölfar átaka sem
brutust út eftir að
Þjóðverji, 35 ára
karlmaður, var
stunginn til bana
í borginni Chemnitz. Lögreglan
handtók tvo menn í tengslum við
morðið og eru þeir frá Sýrlandi og
Írak. Þeir eru báðir um tvítugt.
Fréttaveita AFP greinir frá.
„Það sem við höfum horft upp á er
eitthvað sem ekki samræmist lýð-
ræðisríkjum,“ sagði Merkel á fundi
sínum við blaðamenn. „Við búum yf-
ir myndbandsupptökum sem sýna
fólk elta uppi annað fólk, óeirðir og
hatur á götu úti. Þetta á ekkert er-
indi í okkar lýðræðisríki.“
Minnst 20 manns særðust sl.
mánudag í átökum í Chemnitz. Tók-
ust þar á öfgamenn og andstæðingar
þeirra, en hátt í 1.000 manns mættu
á mótmælin sem fram fóru við minn-
isvarða Karls Marx. Að sögn innan-
ríkisráðherra Þýskalands var álagið
á lögreglulið bæjarins svo mikið að
nauðsynlegt var að senda þangað
alríkislögreglumenn til aðstoðar.
Angela
Merkel
Merkel kanslari
gagnrýnir mótmælin
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, sótti í
gær Danmörku heim ásamt eiginkonu sinni, Bri-
gitte. Er þetta í fyrsta skipti í 36 ár sem forseti
Frakklands kemur til Danmerkur í opinbera
Því næst var haldið til Amalíuborgar þar sem
Margrét Þórhildur Danadrottning tók á móti
forsetanum. Macron og eiginkona hans halda
aftur til Frakklands í dag.
heimsókn. Flugvél forsetans lenti í Kaupmanna-
höfn, en þaðan fór Macron á fund Friðriks krón-
prins Danmerkur og Mary eiginkonu hans og fór
hópurinn að minnisvarða um fallna hermenn.
AFP
Fyrsta opinbera heimsóknin til Danmerkur í 36 ár
Forseti Frakklands og eiginkona hans sóttu Kaupmannahöfn heim í gær