Morgunblaðið - 29.08.2018, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 29.08.2018, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Kjara-viðræðureru á næsta leiti og ljóst að þær munu ekki verða auð- veldar. Settar hafa verið fram digurbarka- legar yfirlýsingar, sem ekki eru í takti við aðstæður þessa dagana, en virðast ganga út frá því að fyrst síðast var hægt að semja um miklar kauphækkanir án þess að efnahagslífið færi úr böndum hljóti það að vera hægt aftur. Gildir þá einu að allt aðrar forsendur eru í efnahagslíf- inu þá en eru nú. Í lok liðinnar viku birtist skýrsla, sem Gylfi Zoëga, prófessor í hagfræði við Há- skóla Íslands, skrifaði fyrir stjórnvöld. Niðurstaða hans er sú að minna svigrúm sé nú til hækkana en verið hafi 2015 og því óvarlegt að ráð- ast í miklar launahækkanir yfir línuna. Í samtali við Morgunblaðið um skýrsluna sagði Gylfi að nær væri að semja um raunhæfar hækk- anir sem styðji við fram- kvæmd peningastefnu og stjórn ríkisfjármála þannig að áfram megi tryggja lága vexti, lága verðbólgu, áfram- haldandi hagvöxt og vaxandi kaupmátt launa. Segja má að skýrsla sem þessi sé tilraun til þess að skilgreina grunn eða for- sendur, sem semja megi út frá. Í Morgunblaðinu á mánudag segir Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður BHM, að skýrslan „greini vel hvaða hættur steðja að okkur og sem slík [verði] hún von- andi grundvöllur til að taka upplýsta umræðu um stöð- una“. Halldór Benjamín Þor- bergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir skýrsluna gott veganesti inn í veturinn og bætir við: „Við byrjum á að koma okkur saman um hvað sé til skipt- anna og mér finnst Gylfi hafa dregið það ágætlega fram. Það sem eftir stendur er hvernig við eigum að skipta því.“ Ekki eru þó allir sammála. Elín Björg Jónsdóttir, for- maður BSRB, segist einfald- lega ósammála því mati Gylfa að minna svigrúm sé til launahækkana nú en 2015. Sú er vissulega raunin að svigrúmið í íslensku efna- hagslífi til að standa undir launahækkunum þannig að þær skiluðu sér í auknum kaupmætti í stað þess að þær fuðr- uðu upp í verð- bólgu var meira fyrir þremur ár- um en flestir sáu fyrir. Um leið er rétt að átta sig á því að launahækkanir undanfarinna missera hafa reynt verulega á þanþol margra fyrirtækja og gerir enn. Loftvog efnahagslífsins hefur fallið verulega síðan og þarf ekki að banka fast í hana til að sjá það. Í Morgunblaðinu á mánu- dag birtist viðtal á við- skiptasíðu alls ótengt þeirri kjaramálaumræðu, sem hér hefur verið rakin. Þar lýsir Egill Fannar Reynisson, framkvæmdastjóri GER- innflutnings sem rekur versl- anir Húsgagnahallarinnar, Betra Baks og Dorma auk GER-heildverslunar, stöð- unni um þessar mundir. Hann segir að húsgagna- markaðurinn hafi náð jafn- vægi og árlegur vöxtur sé um 3-5% á ári, en bætir við: „Á sama tíma standa verslanir aftur á móti frammi fyrir ört hækkandi launakostnaði og þó svo að núna standi yfir góðæristímabil má finna merki um að handan við hornið sé meira krefjandi tímabil. Í verslunum okkar förum við því mjög varlega þegar kemur að því að bæta við fólki og ef starfsmenn söðla um þá skoðum við mjög vandlega hvort við getum komist af án þess að ráða nýja manneskju í staðinn.“ Þessi ummæli Egils Fann- ars eru ekki innlegg í kjara- viðræður. Hann lýsir einfald- lega þeirri stöðu, sem við honum blasir. Það segir sína sögu ef atvinnurekendur eru farnir að halda að sér hönd- um með þessum hætti, hika við að fjölga starfsfólki og hugsa sig um tvisvar áður en þeir ráða í staðinn fyrir þá sem hætta. Kjarabætur og kaupmátt- araukning undanfarinna ára eiga sér vart fordæmi hér á landi. Um leið hefur atvinnu- leysi verið með minnsta móti. Það hlýtur að vera mark- miðið að halda í það sem náðst hefur og reyna að bæta um betur með varanlegum hætti, frekar en að knýja fram kröfur, sem á endanum gætu leitt til þess að allir hefðu minna milli handanna. Stundum hentar að spila sóknarbolta, en varnarsigrar skipta líka máli. Stundum hentar að spila sóknarbolta, en varnarsigrar skipta líka máli} Viðkvæmt jafnvægi V ið leggjum mikla áherslu á að auka og bæta læsi, sérstaklega hjá börnum og ungmennum. Lestr- arfærni er lykill að lífsgæðum og raunar grundvöllur að flestu öðru námi. Við vitum líka að lestur er ein flóknasta hugræna aðgerðin sem börn þurfa að ná tökum á í skólanum. Þekking á grunnþáttum læsis og hvaða viðfangsefni eru best til þess að efla lestrarfærni hefur aukist mjög og hafa rann- sóknir á því sviði leitt til framfara í lestrar- kennslu, ekki síst fyrir börn sem glíma við lestrarerfiðleika. Á dögunum var haldin fróðleg ráðstefna á vegum Rannsóknarstofu um þroska, mál og læsi sem skipulögð var til heiðurs dr. Hrafn- hildi Ragnarsdóttur sem er einn merkasti fræðimaður okkar og kennari á sviði þroska- og málvísinda. Annar aðalfyrirlesara ráðstefnunnar var Vi- beke Gröver, prófessor og fyrrum forseti Mennta- vísindasviðs Oslóar-háskóla en hún kynnti meðal annars merkilega rannsókn sína á tengslum orðaforða og les- skilnings. Að sögn Gröver er hægt að sjá marktækar framfarir í orðaforða, frásagnarhæfni og skilningi á sjón- arhornum annarra með ákveðnum aðferðum og inngripi. Allt eru þetta algerir undirstöðuþættir lesskilnings. Þess- ar niðurstöður eiga erindi við alla foreldra barna sem vinna að því að auka lestrarfærni sína. Foreldrar eru fyr- irmyndir barna sinna, ekki síst þegar kemur að tungumál- inu og hvernig við notum það. Góður orðaforði gagnast vel í námi og hann er auðvelt að auka. Það er göm- ul saga og ný að orð eru til alls fyrst. Hinn aðalfyrirlesarinn á ráðstefnunni var dr. Catherine Snow, prófessor við Harvard há- skóla. Hún er meðal virtustu fræðimanna heims á sviði málþroska og læsis og hefur stýrt tímamótarannsóknum á læsi og lesskilningi barna og ungmenna sem orðið hafa leiðarljós í stefnumótun á öllum skólastigum í Bandaríkj- unum. Í sínu erindi ræddi hún mikilvægi sam- ræðunnar fyrir þróun lesskilnings og orða- forða og nefndi að ein árangursríkasta leiðin til þess að auka þá færni væri að virkja nem- endur í umræðum um alvöru málefni í skóla- stofunni. Menntarannsóknir á borð við þær sem kynntar voru á fyrrgreindri ráðstefnu eru samfélaginu afar mikilvægar. Í sínu stóra sam- hengi styðja þær við stefnumótun og áherslur við mótun menntakerfa og þar með samfélaga. Við stöndum frammi fyrir mörgum áskorunum um þessar mundir og ég tel mikilvægt að íslenskt menntakerfi sé hreyfiafl breytinga og framfara til framtíðar. Forsenda þess að verða virkur þátttakandi í lýðræðisþjóðfélagi er góð lestrarfærni; að geta lesið, skrifað og gert grein fyrir skoðunum sínum með hjálp ólíkra miðla. Það er samfélagslegt verkefni að bæta læsi og lestrarfærni á Íslandi, þar höfum við allt að vinna. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Galdur orðaforðans Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Þessi aukning í fluginu erminni en hún var árið áð-ur og mér sýnist þettavera að ná stöðugleika,“ segir Margrét Helga Guðmunds- dóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun í samtali við Morgunblaðið. Umhverfisstofnun kynnti í gær uppgjör með losunar- heimildir iðnaðar og flugrekenda í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir gróðurhúsa- lofttegunda, sem er almennt nefnt ETS (e. Emiss- ion Trading System) og gegnir lykilhlutverki í aðgerðum Evrópusambandsins gegn loftslags- breytingum. Viljum draga úr losun Alls gerðu fimm íslenskir flug- rekendur og sjö rekstraraðilar iðn- aðar upp heimildir sínar. Heildar- losun í flugi sem fellur undir kerfið var 813.745 tonn CO2-ígilda, en í iðnaði var losunin 1.831.667 tonn af CO2-ígildum. Þegar horft er til upplýsinga um losun frá flugi til og frá Íslandi ber að skoða upplýsingarnar í því ljósi að einungis er um flug innan EES-svæðisins að ræða. Ameríku- flug er ekki innan gildissviðs kerfisins enn sem komið er. Losun gróðurhúsalofttegunda frá flugi til og frá Íslandi á um- ræddu svæði jókst líkt og fyrri ár milli ára. Losun jókst um 13,2% milli áranna 2016 og 2017. Árið 2016 var losunin 718.624 tonn af CO2 en varð á síðasta ári 813.745 tonn af CO2. „Aukningin var 31% á milli ár- anna 2015-2016 svo þetta er aðeins að jafna sig,“ segir Margrét. Er þetta ekki bara í takti við aukna flugumferð hér? „Jú. Ég tók saman fjölgun ferða og þetta helst í hendur. Þetta er því ekki óeðlileg aukning.“ Hún segir þó að fullt tilefni sé til að hafa áhyggjur af þessari auknu losun gróðurhúsaloftteg- unda. „Ef flugiðnaðurinn væri ríki væri hann á topp tíu yfir þau sem nota mest af gróðurhúsaloftteg- undum. Losunin frá flugi er mjög mikil og að sjálfsögðu viljum við draga úr henni. Þessi 13% aukning mætti vel vera minni.“ Nýtt kerfi innan tíðar Eins og áður segir liggja nú aðeins fyrir upplýsingar um losun flugs innan EES-svæðisins. Að sögn Margrétar er unnið að nýju kerfi sem tekið verður í notkun innan tíðar. Með því verður hægt að kortleggja losun á stærra svæði. „Það kerfi er unnið í samstarfi við Alþjóðlegu flugmálastofnunina. Kerfið mun kallast Corsia og það kemst í gagnið árið 2021. Banda- ríkin og Kína hafa skrifað undir samninga svo að losun frá þeim ætti að falla undir það kerfi.“ Aukin losun í iðnaði Losunin í iðnaði jókst lítillega á milli ára, um 2,8%, úr 1.780.965 tonnum af CO2 árið 2016 í 1.831.667 tonn af CO2 árið 2017. Jafnmargir rekstraraðilar í iðnaði gerðu upp fyrir árið 2017 og árið á undan; sjö talsins. „Losunin frá iðnaði jókst að- eins að þessu sinni. Hún hefur ver- ið að minnka en fór upp um þrjú prósent nú. Það kom aðeins á óvart,“ segir Margrét. Losun frá flugi jókst um 13,2% milli ára Margrét Helga Guðmundsdóttir 2013 2014 2015 2016 2017 Losun gróðurhúsalofttegunda í flugi* Þúsundir tonna CO2 ígilda *Losun íslenskra flugrekenda í flugi til og frá Íslandi innan EES svæðisins 800 600 400 200 0 Icelandair WOW air Aðrir flugrekendur 814 þús. tonn Samanburður á losun í flugi og iðnaði Flug Iðnaður Árið 2017 Viðskiptakerfi ESB með los- unarheimildir gróðurhúsa- lofttegunda, ETS, virkar þannig að rekstraraðilum, iðnaðar- og flugrekendum, er úthlutað los- unarheimildum í samræmi við staðlaðar reglur sem samsvara fyrirfram ákveðnum takmörk- unum. Það sem þeir losa um- fram endurgjaldslausar los- unarheimildir þurfa þeir að kaupa heimildir fyrir á markaði og er kerfinu þannig ætlað að vera hvati til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, að því er segir á vef Umhverfisstofn- unar. Kerfið nær utan um 45% af losun gróðurhúsalofttegunda innan ESB og hefur það mark- mið að árið 2020 verði losun í þeim geirum sem falla undir kerfið 21% lægri en hún var ár- ið 2005, og 43% lægri árið 2030. Þessu á að ná fram með því að fækka endurgjalds- lausum losunarheimildum til rekstraraðila um 1,74% ár hvert. Markmið að minnka losun VIÐSKIPTAKERFI ESB

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.