Morgunblaðið - 29.08.2018, Page 19

Morgunblaðið - 29.08.2018, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 2018 Réttir frá öllum heimshornum Svonefndur Alþjóðadagur var í Háskólanum í Reykjavík í gær og áhersla var lögð á að kynna skiptinám, starfsnám, styrki og önnur alþjóðleg tækifæri fyrir nem- endum skólans. Enginn fór svangur af kynningunni því að erlendir nemendur við háskólann buðu upp á rétti frá heimalandi sínu eins og venja hefur verið á Alþjóðadegi í skólanum síðustu ár. Kristinn Magnússon Við Íslendingar get- um verið hreykin af heilbrigðiskerfinu, sem þrátt fyrir alla sína galla er meðal þess besta sem þekkist í heiminum. Við höfum byggt upp þjónustu þar sem reynt er að fremsta megni að tryggja jafnan aðgang landsmanna óháð efna- hag. Tvöfalt heilbrigðiskerfi, þar sem hinir efnameiri geta keypt betri og skjótari þjónustu hefur verið eitur í beinum okkar. Ég hef í ræðu og riti haldið því fram að yfirgnæfandi meirihluti okkar Íslendinga líti svo á að í gildi sé sáttmáli – sáttmáli þjóðar sem ekki megi brjóta: Við höfum sam- mælst um að fjármagna sameigin- lega öflugt heilbrigðiskerfi þar sem allir geta notið nauðsynlegrar þjón- ustu og aðstoðar án tillits til efna- hags eða búsetu. Ég óttast að það sé að molna hratt undan sáttmálanum. Hægt en örugglega er tvöfalt heilbrigðiskerfi að verða til á Íslandi. Öfugsnúið og bogið Fréttastofa Ríkisútvarpsins greindi frá því 23. júní síðastliðinn að 600 manns séu á biðlista eftir lið- skiptaaðgerð hjá Landspítalanum og þar af hefðu 125 beðið lengur en í eitt ár. Á síðasta ári fóru hins veg- ar 60 einstaklingar í liðskiptaaðgerð á Klíníkinni, sem er einkarekin. Yfirvöld heilbrigðismála hafa komið í veg fyrir að Sjúkratryggingar Ís- lands geri samning Klíníkina og því þurfa sjúklingar að greiða fyrir þjónustuna sjálfir. Þeir sem ekki hafa efni á því þurfa að sætta sig við bíða mán- uðum saman eftir að fá nauðsynlega þjónustu. Íslensk heilbrigðisyf- irvöld hafa talið betra að senda sjúklinga til annarra landa í að- gerðir á einkasjúkra- húsum, en semja við íslensk einkafyrirtæki á sviði heilbrigðisþjón- ustu. Er nema furða þótt Ísólfur Gylfi Pálmason, fyrrverandi alþingismaður og sveit- arstjóri, velti því fyrir sér hvort eðlilegra sé „að skipta við einka- sjúkrahús á EES-svæðinu en á Ís- landi“. Hann fór í liðskiptaaðgerð sem gerð var á einkasjúkrahúsi í Halmstad í Svíþjóð. Í Morgunblaðs- grein síðastliðinn laugardag segir Ísólfur Gylfi tilgang skrifanna ekki að gagnrýna heilbrigðiskerfið held- ur vilji hann aðeins benda á „að á meðan til er mannskapur, kunnátta, tæki og tól til að gera aðgerðir hér á landi á að vera óþarfi að leggja það á sjúklinga að ferðast um lang- an veg til að fá bót meina sinna“. Hann bætir við: „Fólk sem hefur alla tíð greitt sína skatta hér á landi á heldur ekki að þurfa að greiða aðgerðir úr eigin vasa, þótt margir geri slíkt. Það er eitthvað bogið við það að heilbrigð- isráðherra og stjórnvöld skuli ekki hlusta á nein rök í þessu sambandi.“ Auðvitað er eitthvað öfugsnúið við þetta allt. Á sama tíma og hundruð landsmanna bíða eftir lið- skiptaaðgerðum neita yfirvöld heil- brigðismála að nýta þjónustu einka- aðila hér á landi og telja rétt, þrátt fyrir mun hærri kostnað, að senda fólk fremur úr landi til að gangast undir nauðsynlega aðgerð. Í apríl sagði Ragnar Hall hæstarétt- arlögmaður í grein sem birtist í Fréttablaðinu: „Hver maður sér að ekki er vit- glóra í svona kerfi.“ Þannig voru leikreglurnar þegar núverandi heilbrigðisráðherra tók við en ólíkt forverum sínum hefur hann tækifæri til að rétta af kúrsinn þannig að „vitglóra“ nái yfirhönd- inni. Hið sama á við um þjónustu sjálfstætt starfandi sérfræðilækna. Tvöfalt kerfi og biðlistar Þjónusta sjálfstætt starfandi sér- fræðilækna byggist á rammasamn- ingi Læknafélags Reykjavíkur við Sjúkratryggingar Íslands en samn- inginn má rekja allt aftur til ársins 1909 þegar fyrsta sjúkrasamlagið var stofnað. Að óbreyttu rennur samningurinn út um komandi ára- mót. Án hans fellur greiðsluþátt- taka ríkisins niður og þeir sem þurfa á þjónustu sérfræðilæknanna að halda verða að greiða fyrir hana úr eigin vasa. Þeir sem ekki hafa fjárhagslega burði til að nýta þjón- ustuna neyðast til að leita á náðir opinberra sjúkrahúsa og annarra ríkisrekinna heilbrigðisstofnana. Það er útilokað fyrir opinberar heil- brigðisstofnanir að taka yfir þjón- ustu sérfræðilækna sem sinna um og yfir 500 þúsund heimsóknum á ári. Eina leið „kerfisins“ verður að búa til nýja biðlista og lengja þá sem fyrir eru. Heilbrigðisþjónustan versnar, kostnaðurinn eykst og lífs- gæði landsmanna verða lakari. Ágúst Kárason og Ragnar Jóns- son, bæklunarlæknar, lýstu því ágætlega í Morgunblaðinu síðasta laugardag hvað gerist ef samningar við sérfræðilækna verða ekki end- urnýjaðir: „Líklegast munu læknastöðvar starfa áfram í svipaðri mynd en í gjörbreyttu kerfi. Tvískipt kerfi myndast. Þeirra sem hafa efni á þjónustunni og hinna sem ekki hafa ráð á henni. Þörf á einkatrygg- ingum mun strax koma fram.“ Þeir Ágúst og Ragnar eru langt í frá þeir einu sem vara við þeirri vegferð sem við erum lögð af stað í. Stjórn Læknafélags Íslands lýsti fyrr á þessu ári þungum áhyggjum af stöðu sérhæfðrar heilbrigðisþjón- ustu utan sjúkrahúsa. Án samninga við sérfræðilækna „er hætta á að á Íslandi þróist tvöfalt heilbrigð- iskerfi, þekking og þjónustustig dali og upp komi viðvarandi læknaskort- ur á mikilvægum sviðum nútíma læknisfræði“. Sviptir sjúkratryggingum En jafnvel þótt rammasamningur sé enn í gildi hafa yfirvöld heil- brigðismála komið í veg fyrir nauð- synlega nýliðun meðal sér- fræðilækna, jafnvel á sviðum þar sem þörfin er mikil. Sigurður Björnsson, krabbameinslæknir, seg- ir í Morgunblaðsgrein 4. ágúst að verið sé að bregða fæti fyrir „unga lækna sem lokið hafa sérnámi og hyggjast koma til starfa á Íslandi með nýjustu þekkingu og hefja störf innan heilbrigðisþjónustunnar með sama hætti og forverar þeirra hafa gert til þessa“. Verið sé að svipta sjúklinga sem þurfa á þjón- ustu að halda, sjúkratryggingum „sem þeir hafa greitt iðgjöld fyrir frá unglingsaldri“: „Með þessu eru yfirvöld að inn- leiða mismunun þar eð trygging- arnar taka þátt í greiðslu fyrir þjón- ustu hjá sumum læknum en ekki fyrir sömu þjónustu hjá öðrum læknum. Þetta eru nýmæli, sem ganga þvert á vinnureglur trygg- inganna og yfirlýsta stefnu yf- irvalda til þessa. Ég fæ mig ekki til að rökræða þessa aðför yfirvalda að heilbrigðisþjónustunni, ég trúi því einfaldlega ekki að við þessa ákvörðun verði staðið.“ Öll höfum við keypt sjúkratrygg- ingu með sköttum og gjöldum til ríkisins, en mörg okkar þurfa að bíða vikum og mánuðum saman til að fá bót meina okkar. Á sama tíma er grafið undan einkarekstri – rekstri sem er mikilvæg og nauð- synleg stoð til að hægt sé að standa við fyrirheit um að allir eigi jafnan og greiðan aðgang að heilbrigð- isþjónustu óháð efnahag. Óskilgetið afkvæmi Þingmenn og ráðherrar geta ekki virt að vettugi þau varnaðarorð sem óma, jafnt frá leikum sem lærðum. Fjölbreytt rekstrarform, nýsköpun og nýliðun er ekki aðeins spurning um jafnræði og tryggan aðgang allra að heilbrigðisþjónustu heldur atvinnufrelsi heilbrigðisstarfsmanna og öryggi sjúklinga. Hugsjónin sem liggur að baki ís- lenska heilbrigðiskerfinu um að- gengi allra að góðri og nauðsynlegri þjónustu verður merkingarlaus þeg- ar almenningur situr fastur á bið- listum ríkisins og horfir á þá efna- meiri kaupa þjónustu einkaaðila. Óskilgetið afkvæmi ríkisvæðingar allrar heilbrigðisþjónustu er tvöfalt kerfi. Gegn því mun ég berjast. Eftir Óla Björn Kárason » Óskilgetið afkvæmi ríkisvæðingar allrar heilbrigðisþjónustu er tvöfalt kerfi. Gegn því mun ég berjast. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Tvöfalt heilbrigðiskerfi verður til

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.