Morgunblaðið - 29.08.2018, Side 33

Morgunblaðið - 29.08.2018, Side 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 2018 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Jóhannes Haukur Jóhannesson er einn þeirra íslensku leikara sem hafa gert það gott í erlendum kvikmynd- um og sjónvarpsþáttum en þeim hef- ur farið fjölgandi með ári hverju. Jóhannes er nýkominn heim frá Suð- ur-Afríku þegar blaðamaður nær tali af honum en þar var hann við tökur í þrjár vikur á ofurhetjumyndinni Bloodshot með Vin Diesel í aðalhlut- verki. Jóhannes fer með eitt af aðalhlut- verkunum í kvikmyndinni Alpha sem frumsýnd verður hér á landi í dag og er hlutverkið það stærsta sem hann hefur landað í erlendri kvikmynd til þessa. Leikstjóri kvik- myndarinnar er Albert Hughes og er myndin sú fyrsta sem hann leik- stýrir einn þar sem hann hefur til þessa leikstýrt kvikmyndum með bróður sínum, Allen og þá m.a. hinni vinsælu Menace II Society. Jóhannes var fyrr á þessu ári er- lendis við tökur á sjónvarpsþátt- unum Origin sem hann lýsir sem „geimdrama sem gerist meðal ann- ars um borð í geimskipi“. „Þetta er tíu þátta sería sem YouTube er að gera, þeir eru að fara að vera með streymisþjónustu um allan heim eins og Netflix,“ segir Jóhannes um Orig- in. Bloodshot er aftur á móti byggð á teiknimyndasögum Valiant Comics um samnefnda ofurhetju sem Diesel leikur. „Þetta er hermaður sem deyr og fer í gegnum eitthvert ferli þar sem hann er gerður að ofurher- manni,“ segir Jóhannes sem leikur Rússa sem Bloodshot er í nöp við. Rússi í þriðja sinn – Þú leikur ansi oft Rússa. „Já, þetta er í þriðja sinn. Ég lék Rússa í Atomic Blonde og The Good Liar sem kemur út á næsta ári og er með Ian McKellen og svo er þetta sá þriðji,“ svarar Jóhannes kíminn. – Og það er greinilega eitthvað vondukallalegt við þig, ef marka má hlutverkin sem þú hefur fengið? „Já, ég er voða mikið í því og mað- ur er nú þakklátur ef maður fær ein- hverja rullu þar sem maður er ekki vondur, eins og í þessari mynd sem á að frumsýna núna, Alpha. Ég er allt annað en vondur þar.“ Jóhannes segir Alpha fjalla um hóp veiðimanna á ísöld, fyrir um 20 þúsund árum. „Af því að þetta er á ísöld höfum við tveggja mánaða glugga á ári til að fara og veiða fyrir veturinn. Ég leik höfðingjann og við erum nokkrir veiðimenn, karlar og konur, að fara á veiðar fyrir ættbálk- inn og tökum með nokkra unga stráka, þeirra á meðal son minn sem er að fara í sína fyrstu veiðiferð. Ég er að kenna honum hvernig þetta virkar allt saman en það tekst ekki betur en svo að hann er talinn af og skilinn eftir. En hann er ekki dáinn og þarf að komast aftur heim.“ Þurfti að læra nýtt tungumál Sonur höfðingjans, Keda, hittir fyrir úlf sem orðið hefur viðskila við hjörðina sína og hefst með þeim „óvenjulegt samstarf“, eins og Jó- hannes orðar það. Keda gefur úlf- inum nafnið Alpha sem Jóhannes segir að vísu hljóma öðruvísi á því tungumáli sem talað sé í kvikmynd- inni og hafi verið búið sérstaklega til fyrir hana. Jóhannes er spurður að því hvort ekki hafi verið erfitt að læra þetta tilbúna tungumál. „Jú, það var það og sérstaklega í mínu tilfelli, ég er með lengri setningar af því að ég er að kenna stráknum svo mikið,“ segir Jóhannes. Hann hafi því lagt mikla vinnu í að læra textann sinn. „Fyrst virkaði þetta eins og óyfir- stíganlegt verkefni því þarna eru hljóð sem maður hefur aldrei heyrt áður,“ segir Jóhannes sposkur. Talið berst að sjónrænum þætti kvikmyndarinnar en gagnrýnendur hafa farið fögrum orðum um hann og sagt myndina tilkomumikla og fal- lega á að líta. Jóhannes segist vel trúa því enda hafi miklum tíma verið eytt á töku- stað í einstaka skot. „Hann heitir Martin Gschlacht sem sá um kvik- myndatökuna og hann og Albert, leikstjórinn, eru rosalega sjónrænt þenkjandi. Það er aldrei tilviljun hvernig myndavélinni er stillt upp, í hverjum einasta ramma,“ segir Jóhannes. Hann hafi fundið fyrir miklum metnaði hjá þeim félögum. Eitthvað er um tölvuteiknað lands- lag en þó ekki mikið þar sem myndin var tekin upp í ægifögru landslagi, m.a. Dinosaur Park í Kanada. „Það er ekki mikið af fjöllum þar sem við vorum en það eru íslensk fjöll þarna, þeir splæsa landslagi saman. Þú ert kannski með landslag í Kanada og í fjarska eru íslensk fjöll,“ nefnir Jó- hannes. Umboðsmaður hafði samband – Þetta útlandaævintýri þitt, hófst það eftir að þú fórst með eitt af aðalhlutverkunum í Svartur á leik? „Já, það var upphafið á þessu, má segja. Ég fékk í rauninni umboðs- menn út á þá mynd,“ segir Jóhannes. Erlendur umboðsmaður hafi séð myndina, haft samband við hann og spurt hvort hann mætti verða um- boðsmaðurinn hans. „Mér fannst það bara frábært því yfirleitt þurfa leikarar að hafa fyrir því að finna sér umboðsmenn. Ég datt í lukkupottinn með það og svo fær maður leik- prufur í gegnum þessa umboðs- menn. Ég gerði það í næstum því þrjú ár áður en fyrsta hlutverkið datt inn.“ Jóhannes segir prufunum fjölga eftir því sem hlutverkunum fjölgi í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. „Umboðsmennirnir leggja til við „casting directora“ [þá sem hafa um- sjón með vali á leikurum, innsk.blm.] einhverja leikara og þeir segja hverja þeir vilja sjá. Fyrst, þegar ég var ekki með neitt á bakinu nema Svartur á leik, var ég kannski að gera eina prufu á tveggja eða þriggja mánaða fresti en eftir að Game of Thrones datt inn, sem var að ég held þriðja verkefnið mitt, voru „casting directorar“ allt í einu miklu opnari fyrir því að sjá mig og ég fór allt í einu að gera kannski þrjár prufur á viku. Og þá fjölgar hlutverkunum sem maður fær.“ Jóhannes segist frekar geta valið og hafnað verkefnum nú en áður. „Við veljum aðeins úr og höfnum, ég og mitt teymi, eins og maður segir. Það eru fjórir gæjar úti í heimi sem fara með umboð fyrir mig,“ segir hann kíminn. Diesel ljúfur sem lamb Jóhannes hefur leikið með mörg- um heimskunnum leikurum og blaðamanni leikur forvitni á að vita hvort þessar stjörnur séu að blanda geði við hina minna þekktu leikara, hvort hann hafi mikið umgengist stjörnurnar. „Það fer eftir því hvar við erum. Ég var í tökum í Marokkó í einhverjum smábæ og það voru allir á sama hótelinu og voru þá mikið að hittast. Í sjónvarpsseríum er fólk líka að hittast meira og hanga saman því allir eru í burtu frá fjölskyldum sínum. Nema kannski þessar stærstu stjörnur eins og Vin Diesel og Charlize Theron, þær eru ekkert að blanda mikið geði við liðið. Maður hittir þau í vinnunni og í hádegismat og þau eru voða góð og svona en eru svo bara með sitt hús einhvers stað- ar og sinn bissness.“ Hvað Diesel varðar segir Jóhann- es að hann sé með sitt fólk í kringum sig sem vinni alltaf með honum, í hverri einustu mynd. „Hann er með sinn staðgengil og kokk og en er svo ljúfur sem lamb, spyr hvernig maður hafi það og talar alltaf rólega og mjúklega. Hann er alltaf að hrósa manni, hann er svo sjarmerandi að maður bráðnar alveg. Til dæmis þegar ég lék í síðasta atriðinu með honum kom hann til mín, tók létt ut- an um mig og sagði: „You got some- thing special, maaan, you’re amaz- ing“. Maður veit að hann segir þetta við annan hvern mann en finnst samt rosalega vænt um það.“ Frí fram undan – Hvað er svo framundan hjá þér? „Í september kemur út The Sist- ers Brothers, kúrekamynd sem ég leik í með Joaquin Phoenix, John C. Reilly og Jake Gyllenhaal og Where’d You Go, Bernadette með Cate Blanchett, ég held að hún verði frumsýnd eftir áramót. Svo er ég að bíða eftir því að sjá hvort gerð verði önnur sería af Netflix-þáttum sem ég leik í og voru að koma út í síðustu viku og heita The Innocents og eru með Guy Pearce í aðalhlutverki. Ef önnur sería verður gerð verð ég í henni,“ svarar Jóhannes. Næsta mánuðinn eigi hann þó frí og ætli að njóta þess í faðmi fjölskyldunnar. Lengri útgáfu viðtalsins má finna á mbl.is. Morgunblaðið/Hari Hraustur Jóhannes á leið í líkamsrækt. Hann tók upp nýja og betri lifnaðarhætti fyrir hlutverkið í Svartur á leik. Ljósmynd/Albert Hughes Veiðimenn Jóhannes Haukur með nokkrum ísaldarmönnum í Alpha. Föðurlegur ísaldarmaður  Jóhannes Haukur Jóhannesson fer með eitt af aðalhlutverkum kvikmyndarinnar Alpha  Hefur leikið í fjölda erlendra kvikmynda og sjónvarpsþátta eftir að Svartur á leik vakti athygli á honum ICQC 2018-20 PÖNTUN AUGLÝSINGA: fyrir mánudaginn 3. september SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur Börn & uppeldi Víða verður komið við í uppeldi barna í tómstundum, þroska og öllu því sem viðkemur börnum frá fæðingu til 12 ára aldurs. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 7. sept.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.