Morgunblaðið - 30.08.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
Frá kr.
77.395
Frá kr.
64.945
Íslensk fararstjórn,
taska og handfarangur
innifalið.
BÓKAÐU SÓL
ALLUR PAKKINN
1. SEPTEMBER Í 7 NÆTUR
SKELLTU ÞÉR TIL TENERIFE
LÁTTU EKKI VEÐRIÐ Á ÞIG FÁ
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Thinkstock.com
Í tölvunni Mikil notkun barna á
snjalltækjum er talin skaðleg.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fræðslunefnd Fjarðabyggðar legg-
ur til að öllum nemendum grunn-
skóla Fjarðabyggðar verði bannað að
mæta með snjallsíma og önnur snjall-
tæki í skóla nema með sérstöku leyfi
skólastjóra. Forsenda fyrir þessari
ákvörðun er að keypt verði fleiri
snjalltæki fyrir skólana, til afnota
fyrir nemendur í kennslustundum.
Miðað er við að breytingin geti orðið í
byrjun næsta árs.
Hugmyndin að þessum breyting-
um kom frá bæjarráði rétt fyrir
kosningar í vor. Núverandi bæjarráð
tók jákvætt í tillögu fræðslunefndar
sem felur í sér bann við snjallsímum í
öllum grunnskólunum sveitarfé-
lagsins en málið hefur þó ekki verið
afgreitt.
Slæm áhrif á heilsu barna
Sérfræðingar Skólaskrifstofu
Austurlands telja að snjallsímanotk-
un barna og ungmenna sé almennt of
mikil og að hún geti haft neikvæð
áhrif á andlega og líkamlega heilsu
þeirra ásamt því að trufla tilfinninga-
og félagsþroska. Þá er á það bent í
umsögn skólaskrifstofunnar við til-
lögu bæjarráðs að niðurstöður ný-
legra rannsókna bendi til þess að
snjallsímar eigi ekki erindi inn í
kennslustofur. Sérfræðingarnir
mæla því ekki með notkun snjallsíma
á skólatíma. Í sameiginlegri umsögn
skólastjóra grunnskólanna í Fjarða-
byggð kemur fram að snjallsímar
geti nýst nemendum, til dæmis til að
hlusta á tónlist eða í kennslufræði-
legum tilgangi. En þeir geti einnig
truflað nemendur. Fram kemur að
sveitarfélagið sé langt á eftir öðrum
sveitarfélögum í spjaldtölvuvæðingu
skólanna. Ekki sé hægt að fallast á
bann við snjallsímum nemenda fyrr
en tækjakostur skólanna verði orð-
inn viðunandi.
Fjarðabyggð rekur fimm grunn-
skóla. Þeir eru Nesskóli á Norðfirði,
Eskifjarðarskóli, Grunnskóli Reyð-
arfjarðar, Grunnskólinn á Fáskrúðs-
firði og Breiðdals- og Stöðvarfjarð-
arskóli.
Tækjakostur skólanna bættur
Þóroddur Helgason, fræðslustjóri
Fjarðabyggðar, segir að nemendum í
fyrsta til sjöunda bekk sé nú þegar
bannað að vera með snjallsíma á
skólatíma. Breytingin taki því aðeins
til unglinganna.
Hann segir mikilvægt að nýta nýj-
ustu tækni við kennslu í skólunum.
Þess vegna sé hugmyndin að bæta
tækjakost skólanna sem sé ærið mis-
jafn, allt frá því að eitt tæki (Chrome-
book eða spjaldtölva) sé á hverja
fjóra nemendur upp í það að annar
hver nemandi hafi aðgang að tæki.
Snjallsímar bannaðir í skólum
Unnið að útfærslu banns við snjallsímum í öllum grunnskólum Fjarðabyggðar Tölvum fjölgað
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
„Það hafa verið stórstígar framfarir
á síðustu árum,“ sagði Siv Friðleifs-
dóttir, formaður Velferðarvaktar-
innar, um niðurstöðu nýrrar könn-
unar sem Maskína gerði að beiðni
Velferðarvaktarinnar um kostnaðar-
þátttöku grunnskólanema í skóla-
gögnum.
Könnunin sýnir að á næsta skóla-
ári munu 99% íslenskra barna búa í
sveitarfélögum sem greiða fyrir þau
námsgögn á borð við ritföng og
pappír.
„Dropinn hefur holað steininn“
„Það er mikilvægt að bágur efna-
hagur heimilis komi ekki niður á
námi og lífi barnanna,“ sagði Siv í
samtali við
Morgunblaðið.
„Nú er búið að
spara fjölskyld-
um þessa lands
þessi ferðalög í
ritfangaverslanir
á haustin til þess
að tína eftir inn-
kaupalistum í
körfurnar. Ég hef
sjálf reynslu af
slíku og man hvernig þetta var. Mað-
ur fór á haustin með barninu og var í
kraðakinu í ritfangaversluninni og
stóð þarna í klukkutíma biðröð eftir
því að fá að greiða. Ég held að marg-
ir foreldrar hafi þessa reynslu.“
Siv segir breytinguna meðal ann-
ars hafa orðið vegna hvatningar Vel-
ferðarvaktarinnar og stofnana á
borð við Barnaheill og Heimili og
skóla. Jafnframt segir hún að miklu
hafi munað þegar Reykjavík létti á
kostnaðarþátttöku barnanna því þar
eru börnin flest. „Dropinn hefur hol-
að steininn í þessu máli,“ sagði Siv.
Öll 72 sveitarfélög Íslands svör-
uðu könnuninni sem gerð var.
Siv segir að kostnaðarþátttaka
heimilanna hafi verið mjög misjöfn,
jafnvel innan sama sveitarfélags.
Sums staðar var hún mjög lág en
annars staðar rúmar 22.000 kr. „Svo
mikill kostnaður teljum við að hafi
ekki verið í anda Barnasáttmálans
né grunnskólalaganna. Við höfum
hvatt sveitarfélögin ítrekað í þessu
máli fögnum því að langflest grunn-
skólabörn eru nú laus við kostnaðar-
þátttökuna og vonum að innan tíðar
verði þau öll komin í þann hóp.“
Kostnaðarþátttöku létt
af 99% grunnskólabarna
Flest sveitarfélög útvega nemendum almenn skólagögn
Siv
Friðleifsdóttir
„Hann hverfur bara“
Enn hefur ekkert
spurst til Jó-
hanns Gíslasonar,
Íslendings sem
síðast sást á
Spáni 12. júlí.
„Niðurstaða allra
rannsókna er að
hann hverfur
bara morguninn
13. júlí,“ sagði
Einar Gíslason, bróðir Jóhanns, í
samtali við mbl.is. „Það fréttist ekk-
ert meira af honum eftir þann tíma.“
Fjölskylda Jóhanns hefur sjálf farið
til Spánar til að rekja fótspor hans
en leit þeirra hefur engan árangur
borið. Áður höfðu ættingjar Jó-
hanns lýst yfir að hann væri í góðu
sambandi við fjölskyldu sína og að
ólíkt honum væri að hafa ekki sam-
band í svo langan tíma. Jóhann
flaug til Alicante 8. júlí en hafði ekki
átt pantað flug til baka. Tilkynnt var
um hvarf hans 16. júlí og hefur fjöl-
skylda Jóhanns verið í sambandi við
utanríkisráðuneytið og ræðismann
Íslands á Spáni um málið.
Lögreglan hefur fengið leyfi til að
kanna síma- og bankagögn Jóhanns.
Niðurstaða hennar er sú að ekki
hafi verið hróflað við bakareikningi
Jóhanns og ekki leikur grunur á að
um saknæmt athæfi hafi verið að
ræða.
„Maður hefði átt von á flestu en
ekki að fólk hyrfi svona,“ segir
Einar.
Jóhann
Gíslason
Enn ekkert spurst til Jóhanns Gísla-
sonar á Spáni Ekki talið saknæmt
„Það var búið að hengja hana og
festa ólar og bönd á hana út um
allt,“ sagði Ronja Auðunsdóttir í
samtali við mbl.is í gær. Hún setti
færslu inn á Facebook-hópinn Katta-
vaktin í gærkvöld þar sem hún ósk-
aði eftir hjálp við að koma ketti, sem
hún og fimm ára sonur hennar
fundu í Hellisgerði í Hafnarfirði,
undir læknishendur.
Loppur kattarins höfði verið
festar saman, böndum hafði verið
vafið um rófuna og líkamann og
plastband var um hálsinn þannig að
kötturinn gat ekki mjálmað. „Maður
sá greinilega að það var búið að
berja hana og meiða. Það átti greini-
lega að drepa hana,“ sagði Ronja. Á
endanum tókst að losa köttinn, sem
heitir Lísa og er örmerkt, og kom
Ronja honum á dýraspítala.
Nánar má lesa um málið á mbl.is.
Hrottalegt dýraníð í Hafnarfirði
Regína Guðmundsdóttir varð 100 ára í gær og hélt upp á
afmælið með börnum sínum þremur og afkomendum.
Hún er ein af tíu systkinum frá Egilsstöðum í Árnessýslu
og hafa nær öll þeirra náð háum aldri. Hún á eina systur
á lífi sem er 98 ára. Regína bjó lengst af í Innri-Njarðvík
með fjölskyldu sinni en maður hennar, Pétur R. Kárason,
lést fyrir 22 árum. Hefur hún alla tíð verið afkastamikil
prjónakona og prjónar enn tátiljur í stórum stíl.
Ljósmynd/Víkurfréttir
Aldarafmæli prjónakonunnar Regínu
100 ára í dag