Morgunblaðið - 30.08.2018, Síða 65
DÆGRADVÖL 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ræktaðu rómantíkina. Samstarfs-
fólki liggur mikið á hjarta og sumir vita ekki
hvenær þeir eiga að þegja. Þú veist það
hins vegar.
20. apríl - 20. maí
Naut Yfirboðari veitir þér þá viðurkenningu
sem þú hefur verið að bíða eftir til þess að
setja tiltekið verkefni á laggirnar. Forðastu
að vera með stóryrt/ar yfirlýsingar um líf
annarra.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Sérhver manneskja finnur til lík-
amlegrar eða andlegrar vangetu á ein-
hverjum tímapunkti. Til að verða góð/ur í
að biðja um hluti þarf að gera það sem oft-
ast.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er ekki stórmannlegt að geta
ekki beðist afsökunar á mistökum sínum.
Vertu til taks fyrir börnin þín og leyfðu
hæfileikum þeirra að njóta sín.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér finnst hægt miða með starfsfram-
ann en vertu róleg/ur. Ekki flýta þér um of
og farðu varlega í umferðinni.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert að hugsa um of mörg mál í
einu og missir við það alla starfsorku. Pen-
ingar hafa aldrei verið vandamál hjá þér og
munu ekki verða það.
23. sept. - 22. okt.
Vog Dómharka er hættuleg. Námskeið gæti
hjálpað þér við að tileinka þér nýja færni
sem sparar þér tíma. Þér eru allir vegir fær-
ir.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er engin ástæða til þess
að vera afbrýðisamur/söm út í vini sem
fara í ferðalag og kanna nýja heimshluta.
Leggðu áherslu á jákvætt hugarfar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Fólkið í kringum þig leggur sitt
af mörkum til þess að auka gæfu þína og
félagslíf. Nú þarftu að gera það upp við þig
hvaða starfi þú vilt sinna næstu árin að
minnsta kosti.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er margt sem þú getur lært
af vinum og kunningjum í dag. Hrapaðu ekki
að neinu og hafðu hugfast að þetta er ekki
síðasta tækifærið sem þér býðst.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Of mikil áhersla á peningaöflun
er þreytandi til lengdar. Farðu í reisu eða
sestu aftur á skólabekk. Eitthvað óvenjulegt
gerist hjá vini eða í hópi sem þú tilheyrir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Gættu þess að láta ekki sjást hversu
mikið aðfinnslur vinnufélaganna fara í taug-
arnar á þér. Þér verður boðið í veislu.
Ólafur Stefánsson þýðir margt velog lætur Leirinn njóta þess – og
svo á hann það til að koma með orð
eða orðasambönd sem sérkennileg
eru fyrir Suðurland eins og „gýligjaf-
ir“ = „gjafir til að tæla þiggjandann“:
„Þá er það Álfakóngurinn sjálfur eft-
ir Goethe eða það sem Heinz Erhardt
gerir úr honum. Valdimar Briem
þýddi Álfakónginn á sínum tíma en
það er mjög sorglegt kvæði um föður
sem ríður með veikt barn sitt til að
reyna að bjarga lífi þess. Barnið er
með óráði, sér sýnir og heyrir raddir
og segir föðurnum að álfakóngurinn
vilji fá það til sín og bjóði allskyns
gýligjafir. Erhardt sér þetta allt
öðruvísi og ekki eins tragískt.
Hver ferðast svo síðla um frosið hjarn,
það er faðir á hesti með lítið barn.
Í sæng er það dúðað, og sést varla’ í nef,
því sonurinn hafði nælt sér í kvef
Nóttin hún líður, og loks verður bjart,
ljósgráu merinni er riðið enn hart.
Til bæjar svo ná þeir með brauki og
nauð.
Barnið það lifði, en hryssan er dauð.“
Ekki veit ég hvort það samir að
fylgja þessu ljóði eftir með Hall-
mundi Kristinssyni á Boðnarmiði:
Yfir mörgu flestir geta fárast.
Fáir eru þeir sem aldrei tárast.
Eitt veit ég að sumum þykir sárast;
sumarið er um það bil að klárast.
Pétur Stefánsson segir að nú líði
að hausti:
Blíðviðrisdagana þörf er að þakka,
þeir voru góðir. Í skýjum ég svíf.
Sumarið líður, til haustsins ég hlakka,
er helvítis geitungar enda sitt líf.
Og yrkir síðan „Haust“:
Sumartíðin senn er frá,
sólargeislar dofna.
Björt og fögur blómin smá
blikna nú og sofna.
Framundan er frost og hríð,
flest vill hrörna og dvína.
Loksins hefur haustsins tíð
hafið innreið sína.
Ingólfur Ómar Ármannsson
bregður upp myndum í sínum vís-
um:
Sumar líður senn á braut
sölnar blómaflétta.
Roðna brekkur lyng og laut
lauf af greinum detta.
Þetta endurspeglar þann haust-
hug sem verið hefur í hagyrðingum
eftir helgina. Helgi Ingólfsson yrkir:
Allan daginn eigi þerrði.
Árstíð þó á mörgu lumar.
Held ég því að haustið verði
heldur betra’ en liðið sumar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Álfakóngurinn
og geitungarnir
„ERTU BÚINN AÐ BÍÐA LENGI?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hún endar
stundum í tárum.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HÉR KEMUR
JÓN
ÞYKJUMST VERA
UPPTEKNIR
ÁTTU PANTAÐAN
TÍMA?
HRÓLFUR, ÍBÚARNIR HAFA SETT
UPP VARÚÐARSKILTI! HVERJUM ER
EKKI SAMA?
FLÝJUM SEM FÆTUR TOGA!!
ÉG VAR ALINN UPP
SAMKVÆMT BÓKINNI.
Nú ber vel í veiði fyrir stuðnings-menn íslensku karla- og kvenna-
landsliðanna í knattspyrnu, þar sem
fram undan er fjöldi landsleikja hér á
Laugardalsvellinum. Víkverja finnst
ánægjulegt að heyra að mikill áhugi
sé á því að sjá kvennalandsliðið tak-
ast á við Þýskaland um helgina, en
eins og alþjóð ætti að vita skipta úr-
slit leiksins umtalsverðu máli í bar-
áttunni um sæti í heimsmeistara-
keppninni. Uppselt er á leikinn og er
þá ekkert annað í boði en að hrópa
„Áfram Ísland“ innan sem utan vall-
ar um helgina.
x x x
Þá er Þjóðadeildin svokallaða aðfara af stað hjá karlalandsliðinu
og bíður landsleikur við Belga, sem
enduðu í þriðja sæti á HM í sumar,
rétt handan við hornið. Nýr þjálfari,
Svíinn Erik Hamrén, þreytir þar
frumraun sína með liðið. Vonast Vík-
verji til þess að leikmenn taki vel á
móti nýja þjálfaranum, helst með því
að „Hamrén“ í netið ögn oftar en
Belgar.
x x x
Víkverji fagnar þessum miklaáhuga á landsliðunum okkar.
Ekki síst vegna þess að hann er nógu
gamall til þess að muna eftir þeim
tíma þegar það var auðveldara að fá
miða á leiki íslenska landsliðsins en
að panta sér pizzu. Þegar „gamla“
stúkan á Laugardalsvellinum, með
öllum sínum stólpum í sjónlínunni,
var málið og þeir sem hrópuðu í stúk-
unni liði sínu til stuðnings voru litnir
hornauga.
x x x
Víkverji man til dæmis eftir þvísem kalla mætti fyrsta „Víkinga-
klappið“. Og það var sko ekki neitt
sem var innflutt frá Skotlandi. Ó nei.
Þá sjaldan að fólkið var í stuði til að
styðja landsliðið var hægt að fá það
til þess að klappa saman í takt eftir-
farandi runu: „klapp, klapp, klapp-
klapp-klapp, klapp-klapp-klapp-
klapp, Ísland!“ Þetta var svo endur-
tekið eftir þörfum, og þótti bara
býsna gott að þarna væri klappað al-
veg níu sinnum í röð. Það kallar Vík-
verji sko almennilegan stuðning við
sitt lið. Áfram Ísland! vikverji@mbl.is
Víkverji
Eins og faðir sýnir miskunn börnum
sínum, eins hefur Drottinn sýnt mis-
kunn þeim er óttast hann.
(Sálm: 103.13)