Morgunblaðið - 30.08.2018, Qupperneq 53
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Undanfarna mánuði hafa staðið yfir
framkvæmdir við Sæbrautina í
Reykjavík, rétt austan við hið
sögufræga hús Höfða. Þar hefur
verið mótað umhverfi fyrir nýjan
innsiglingarvita fyrir Reykjavíkur-
höfn.
Innsiglingarviti við Sæbraut hef-
ur verið lengi á áætlun Faxaflóa-
hafna.
Hann kemur í stað vita í turni
Sjómannaskólans sem þjónaði hlut-
verkinu allt fram á síðustu ár, eða
þar til háhýsin við Höfðatún fóru
að skyggja á hann. Þrátt fyrir að
skip og bátar séu í dag með full-
komnustu siglingatæki þykir hafn-
aryfirvöldum samt sem áður þörf á
að hafa innsiglingarvita til að vísa
leiðina inn Engeyjarsund. Þá hafi
vitinn einnig þýðingu fyrir umferð
um Sundahöfn.
Áður en Sjómannaskólinn var
byggður var notaður viti við Vita-
stíg, skammt frá Vitatorgi.
Á stjórnarfundi Faxaflóahafna í
febrúar voru kynntar tillögur Yrkis
arkitekta að umhverfi innsigling-
arvita við Sæbraut. Hafnarstjórn
bókaði að hún óskaði eftir því að
Reykjavíkurborg lyki gerð deili-
skipulags vegna vitans sem fyrst
og varð borgin við því.
Spöng ehf. hefur séð um að færa
út sjóvarnargarð og laga að steypt-
um palli þar sem vitanum verður
komið fyrir. Stefnt er að því að
koma vitanum fyrir í lok sept-
ember. Gert er ráð fyrir u.þ.b.
mánuði í frágang og að allt verði
tilbúið í lok október.
Tillaga Yrkis arkitekta byggist á
því að vitinn verði með sama útliti
og innsiglingarvitarnir í Gömlu
höfninni, sem hafa litið eins út frá
byggingu hafnarinnar á árunum
1913 til 1917. Vitinn er tilbúinn og
er í geymslu í bækistöð Faxaflóa-
hafna í Örfirisey. Áætlaður kostn-
aður við verkið er 75 milljónir
króna og þar af mun borgin greiða
50 milljónir og Faxaflóahafnir 25
milljónir.
Reiknað er með að þessi staður
við Sæbraut verði fjölsóttur af
ferðamönnum, líkt og listaverkið
Sólfarið er í dag. Sólfarið, verk
Jóns Gunnars Árnasonar, hefur
lengi fangað athygli ferðamanna og
er vel sóttur viðkomustaður í borg-
inni.
„Þegar verkinu lýkur verður
leiðarmerkingin í innsiglingunni til
Reykjavíkur aftur eins og á að
vera,“ segir Gísli Gíslason hafnar-
stjóri..
Morgunblaðið/Eggert
Nýr áfangastaður Verk-
takar hafa unnið að því
í vor og sumar að færa
grjótgarðinn og gera
undirstöður fyrir nýja
vitann, sem settur verður
upp í haust. Hið fræga
hús Höfði er efst til
vinstri.
Ljósin brátt tendruð á nýjum vita
Tölvumynd/Yrki arkitektar
Innsiglingarvitinn Svona mun vitinn líta út þegar hann verður kominn á sinn stað, væntanlega í októberlok.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sólfarið á sólardegi Stanslaus straumar ferðamann er að hinu þekkta listaverki alla daga ársins. Nýi vitinn mun eflaust draga að sér ferðamenn.
Nú styttist í það að ljós-
in verði kveikt á nýjum
vita í Reykjavík. Það er
innsiglingarviti fyrir skip
sem koma til hafnar, en
hann verður staðsettur
við Sæbrautina.