Morgunblaðið - 30.08.2018, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 30.08.2018, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018 3ja laga Gore-tex filma. Stillanleg hetta. 9 geymsluvasar. Verð 74.900 Mörkinni 6 - Sími 568 7090 - veidivon@veidivon.is - veidivon.is G3 Guide Tactical jakki Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Akureyrarbær hefur lagt fram tillögu að áætlun vegna mats á umhverfis- áhrifum landmótunar og stækkunar golfvallarins að Jaðri. Golfvöllurinn er nálægt vaxandi byggð á Akureyri og felur fram- kvæmdin í sér haugsetningu og land- mótun á jarðvegi sem fellur til vegna gatna- og húsagerðar við fram- kvæmdir í nágrenninu og nýtingu hans við stækkunina. Gert er ráð fyrir haugsetningu á um 500.000 rúmmetrum af ómenguðum jarðvegi. Framkvæmdatíminn er áætl- aður um 20-30 ár, allt eftir hraða fram- kvæmda í bænum. Nýr níu holu golfvöllur Framkvæmdasvæðið er um 8,5 hektarar og er allt svæðið ætlað undir stækkun núverandi 18 holu golfvallar og nýs níu holu golfvallar. Hinn nýi völlur verður vestan megin við núver- andi golfvöll. Landsvæðið er í eigu Akureyrarbæjar en rekstraraðili Jaðarsvallar er Golfklúbbur Akur- eyrar. Golfvallarsvæðið afmarkast af reið- götu í vestri og suðri, við Naustaborgir, Miðhúsabraut í norðri og verslunar- og íbúðalóðum í austri. Lóð Golfklúbbs Akureyrar er um 90 hektarar að stærð. Gildandi deiliskipulag fyrir Jaðars- völl gerir ráð fyrir stækkun golfvall- arins en unnið er að breytingu á því sem tekur tillit til haugsetningar og landmótunar. Allt frá árinu 2007 hafa verið áform um stækkun Jaðarsvallar samkvæmt samningi milli Akureyrar- bæjar og GA. Á Jaðri hefur verið starfræktur golf- völlur frá 1970 en áður var svæðið nýtt undir landbúnað. Akureyrarbær eign- aðist jörðina Jaðar árið 1964 og tveim- ur árum síðar var byrjað að breyta tún- um og bithögum í golfvöll. Dregur golfvöllurinn nafn sitt af bænum. Auk þess eru á svæðinu æfingasvæði, fé- lagsheimili og vélageymslur. Stefnt er að því að stækka félagsheimilið í fram- tíðinni. Drög að matsáætluninni, sem unnin er af verkfræðistofunni Eflu, voru kynnt almenningi í sumar. Engar at- hugasemdir bárust. Í samræmi við lög hefur matsáætlunin verið til kynn- ingar hjá Skipulagsstofnun, sem sendi hana ýmsum stofnunum til umsagnar. Samkvæmt upplýsingum frá Skipu- lagsstofnun hafa umsagnir borist frá Náttúrufræðistofnun Íslands, sem gerir ekki athugasemdir, og Minja- stofnun Íslands, sem kom með ábend- ingu um að mikilvægt væri að útlínur fornleifa sæjust á korti. Beðið er um- sagna Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra, Umhverfisstofnunar og Ak- ureyrarbæjar. Að lokinni yfirferð og að fengnum umsögnum tekur Skipu- lagsstofnun ákvörðun um matsáætlun- ina. Áforma að stækka Jaðarsvöll  Akureyrarbær hefur kynnt matsáætlun vegna stækkunar á golfvelli  Landið mótað úr jarðvegi sem fellur til vegna gatna- og húsagerðar  Gert er ráð fyrir 500.000 rúmmetrum af jarðvegi Jaðarsvöllur Gula línan sýnir fyrirhugaða stækkun vestan við núverandi golfvöll að Jaðri. Þarna er m.a. stefnt að því að komi nýr níu holu golfvöllur. Morgunblaðið/Rúnar Þór Miðnætursól Golfkeppnin Arctic Open hefur farið fram á Jaðarsvelli um árabil. Mótið hefur verið mjög vinsælt meðal innlendra og erlendra golfara. Dýralíf á svæðinu er mjög háð gróðri og öðrum náttúruskilyrðum, að því er fram kemur í matsáætluninni, sem unnin er af Eflu. Þar kemur ennfremur fram að fuglalíf er einstaklega fjölbreytt og auð- ugt á og við Akureyri vegna fjölbreyttra aðstæðna. Þar sé að finna ýmis kjörlendi fugla, svo sem hólma, tjarnir, ár, móa og skóglendi. Með endur- gerð tjarna og aukinni tjárækt á golfvallarsvæðinu megi búast við að fuglalíf aukist með tímanum. Gróðurfar svæðisins er að mestu leyti tún og graslendi sem hafa í gegnum tíðina verið notuð til landbúnaðar og fuglalíf taki mið af því. Ljóst sé að haugsetning og landmótunin muni hafa áhrif á núverandi gróður, vistlendi og fuglalíf á svæðinu. Því þurfi að huga vel að frágangi haugsetningarinnar. Ástæða þyki því til þess að skoða nánar þau um- hverfisáhrif, sem framkvæmdin muni hafa á gróður og vistlendi, fuglalíf, landslag og ásýnd lands. Skoða þarf nánar umhverfis- áhrif framkvæmdarinnar FUGLALÍF ER EINSTAKLEGA FJÖLBREYTT OG AUÐUGT
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.