Morgunblaðið - 30.08.2018, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 30.08.2018, Qupperneq 40
40 FRÉTTIRTónlist MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018 SMÁRALIND www.skornirthinir.is Kíktu á verðið Tilboðsverð 3.995 verð áður 7.995 stærðir 36-41 Scandi kvenskór SVIÐSLJÓS Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Hálf öld er í dag liðin frá því að Bítlalagið Hey Jude kom út í Bret- landi. Það varð fljótlega eitt af eftir- minnilegri lögum Bítlanna, en það dvaldi í níu vikur á toppi bandaríska vinsældalistans og í tvær vikur á toppi þess breska. Það er einnig lengsta lag Bítlanna sem náði að verma efsta sæti vinsældalistanna, en það er rúmlega sjö mínútur að lengd. Paul McCartney, bassaleikari sveitarinnar, samdi lagið þegar hann var að keyra heim til Cynthiu, eigin- konu Johns Lennons, sem hafði þá nýlega tilkynnt henni að hann vildi skilnað. McCartney samdi lagið upp- haflega sem nokkurs konar hugg- unarorð til Julians, sonar þeirra hjóna, sem var þá fimm ára. McCartney sagði síðar að hann hefði viljað gera sitt til þess að hugga bæði Cynthiu og Julian og hefði byrjað að raula á leiðinni til þeirra „Hey Jules“. Paul breytti svo Jules í Jude, þar sem það var einfaldara að syngja lagið þannig. Texti sem höfðar til allra Endanlegur texti lagsins breyttist um líkt leyti í nokkurs konar hvatn- ingu til þessa Jude um að taka gleði sína á ný og sækjast eftir hinni einu sönnu ást lífs síns. McCartney spil- aði lagið svo fyrir Lennon, sem sagði síðar frá því að hann hefði á einum tímapunkti stöðvað Paul og sagt: „Þetta er um mig.“ Paul svaraði þá: „Nei, þetta er um mig.“ John Lennon sagði í einu af síð- ustu viðtölunum sem hann fór í að hann hefði alltaf talið að textinn væri ómeðvituð hvatning Pauls til sín um að „fara frá sér“ og byrja samband með japönsku listakonunni Yoko Ono. Þó að Lennon væri ekki höfundur lagsins hafði hann sín áhrif á endan- lega mynd þess en McCartney hafði sett inn á einum stað textalínuna „The movement you need is on your shoulder“. Þegar Paul söng hana fyrir vin sinn sagði hann að hún væri bara til bráðabirgða og að hann myndi skipta textanum út fyrir eitt- hvað annað. Lennon sagði þá: „Nei, það gerirðu ekki, þetta er besta lín- an í laginu.“ McCartney sagði síðar að hann hugsaði alltaf til Lennon þegar hann syngi þessa laglínu og ætti það jafnvel til að fá smákökk í hálsinn þá. Brestir farnir að myndast Um þetta leyti voru Bítlarnir að taka upp samnefnda plötu sína, sem síðar fékk heitið Hvíta albúmið. Ljóst var af upptökunum að brestir voru komnir í samstarf fjórmenning- anna, og komu þeir berlega í ljós þegar Bítlarnir æfðu Hey Jude í lok júlí 1968, þar sem George Harrison, gítarleikari sveitarinnar, vildi at- huga hvernig það kæmi út að bæta gítartónum við laglínuna. McCart- ney var hins vegar þegar kominn með nokkuð mótaða hugmynd um það hvernig lagið ætti að vera og hafnaði hugmyndum Harrisons, sem jók ekki kærleika á milli hans og McCartney. Lagið var tekið upp í Trident- upptökuverinu og spilaði Paul þar á Bechstein-flygil sem var meira en hundrað ára gamall. Þess má geta að sami flygill var einnig notaður við upptökur á nokkrum lögum Davids Bowie og einnig hinu vel þekkta lagi rokkhljómsveitarinnar Queen, Bo- hemian Rhapsody. Fyrsta upptakan reyndist sú sem notuð var í endanlegri útgáfu lags- ins, en McCartney hóf upptökuna án þess að gæta að því að Ringo Starr, trommari Bítlanna, hafði laumast á salernið. „Meðan ég var að spila fann ég allt í einu Ringo tipla um á tánum fyrir aftan mig og flýta sér að trommunum,“ sagði McCartney síð- ar og bætti við að tímasetningin hjá Ringo hefði verið óaðfinnanleg. Hann hefði þá þegar vitað að þetta væri upptakan sem yrði að nota þeg- ar lagið væri hljóðblandað. Niðurlagið ekki allra Líklega er þekktasti hluti lagsins niðurlag þess, sem þykir óvenjulega langt, um fjórar mínútur af þeim sjö sem lagið tekur. Þar eru sömu þrír hljómarnir endurteknir í sífellu á meðan Bítlarnir kyrja í sífellu „na na na nananana“. Auk Bítlanna spilaði 36 manna sinfóníuhljómsveit undir. Þegar meðlimir sveitarinnar höfðu lokið hljóðfæraleik sínum af var þeim boðið að tvöfalda laun sín með því að taka undir með Bítlunum í niðurlaginu. Flestir þáðu boðið, nema einn sem strunsaði út og sagði reiðilega: „Ég ætla ekki að klappa og syngja þetta bölvaða lag Pauls McCartney!“ Þegar upptökum var lokið var einn þröskuldur eftir að mati George Martin, upptökustjóra Bítlanna. Lagið væri allt of langt til þess að verða vinsælt. „Ég sagði að enginn plötusnúður í útvarpi myndi spila lagið ef það væri svona langt,“ rifjaði Martin síðar upp. John Lennon svaraði hins vegar um hæl: „Þeir munu gera það ef það erum við.“ Lennon reyndist þar sannspár, enda voru Bítlarnir þá löngu búnir að sanna sig sem vinsælasta rokk- hljómsveit sjöunda áratugarins, ef ekki allrar 20. aldarinnar. Reiði nágrannanna vakin Hey Jude var fyrsta smáskífan sem hið nýja fyrirtæki Bítlanna, Apple, gaf út undir sínum merkjum, en á B-hliðinni var lag Lennons, Re- volution, sem talaði beint til tíðar- andans árið 1968. Smáskífan seldist vel en eftir að Bítlarnir birtust óvænt í skemmtiþætti Davids Frost í byrjun september og fluttu lagið þaut það í efsta sæti vinsældalistans beggja vegna Atlantsála. Sat Hey Jude á toppi vinsældalista Billboard- tímaritsins í Bandaríkjunum í níu vikur samfleytt, lengur en nokkurt annað Bítlalag. Það var þó ekki eintóm gleði sem fylgdi útgáfu lagsins, því að McCart- ney reitti óvart nágranna Apple til reiði með því að mála með stórum stöfum HEY JUDE/REVOLU- TION á verslunarglugga fatabúðar Apple í Baker Street, en búðin var þá nýlega búin að loka dyrum sínum fyrir fullt og allt. Það uppátæki tókst ekki betur til en svo að einhver þeytti múrsteini í gegnum gluggann og minntust einhverjir þess að út- sendarar Þriðja ríkisins hefðu merkt búðir gyðinga á sínum tíma með því að mála þýska orðið fyrir gyðing, Jude, á gluggana. McCartney baðst afsökunar og viðurkenndi síðar að hann hefði ekki haft hugmynd um þessi tengsl. Vinsælt lokalag Á þeim fimmtíu árum sem liðin eru frá útgáfu Hey Jude hefur það fengið sífellt meiri sess í hugum al- mennings. Lengd lagsins, niðurlagið fræga og skilaboð textans, sem flest- ir geta tengt við einhvern tímann á lífsleiðinni, hafa gert lagið að einu vinsælasta lagi Bítlanna. Paul McCartney notar lagið óspart sjálf- ur til þess að ljúka tónleikum sínum. Þegar opnunarhátíð Ólympíu- leikanna í Lundúnum árið 2012 lauk kom ekkert annað til greina en að McCartney sjálfur mætti þar og tæki Hey Jude til þess að „loka“ há- tíðinni. Þó að söngurinn færi brösug- lega af stað var það löngu gleymt þegar um 10.000 íþróttamenn frá um 200 löndum hófu að kyrja „na na na“-stefið sem einn maður. Líklega gaf Lennon laginu bestu einkunn sem Paul McCartney gat óskað sér, en hann sagði einfaldlega: „Hey Jude er besta lagið hans.“ Skjáskot/Youtube Gleðigjafi Bítlarnir tóku upp sérstakt kynningarmyndband fyrir Hey Jude, sem birtist í þætti Davids Frost í september 1968. Það var þá fyrsti opinberi flutningur Bítlanna frá því að þeir hættu tónleikaferðum árið 1966.  „Hey Jude“ hálfrar aldar gamalt um þetta leyti  Lengd lagsins sat illa í George Martin  Sú smá- skífa Bítlanna sem sat lengst á toppnum í Bandaríkjunum  Brestir voru komnir í samstöðu Bítlanna Hreyfingin sem þarf er á öxlinni AFP Dýrmætur texti Árið 2002 ætlaði Christie’s að selja handskrifaðan texta lagsins, og var hann verðmetinn á um 80.000 pund á þávirði. Ekkert varð hins vegar af uppboðinu, þar sem Paul McCartney kom í veg fyrir það.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.