Morgunblaðið - 30.08.2018, Side 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla
fullu að kynnast nýju fólki og tengjast
því.
Frá því að Rósi útskrifaðist árið
2015 var hann um tíma í hæfingarstöð
fyrir fatlaða í Hamraborg í Kópavogi
en þeirri hæfingu var lokað. Einnig
fékk vinnu á vinnustofunni Ási en
fann sig ekki þar.
„Það átti ekki við Rósa að líma
miða á dósir og hann spurði mig oft
þegar ég keyrði hann á Ás hvenær
hann fengi alvöruvinnu. Honum
fannst gaman að hitta vinnufélaganna
en hafði ekki ástríðuna fyrir starfinu.
Eins og hann orðaði það sjálfur
„Mamma ég finn ekki eldinn inni í
mér.“
Á lista yfir draumastörf Rósa er
m.a. að vinna á bókasafni, þjónn, á
kaffihúsi, vinna hjá Domino’s, í leik-
húsi, eitthvað tengt tónlist, að vinna
hjá lögreglunni og í slökkviliðinu.
„Það væri æðislegt ef honum yrði
boðið á rúntinn með lögreglu- eða
slökkviliði. Hann myndi lifa á því
lengi, segir Ída.
Ída og Kristján segja bæði að Rósi
hafi staðnað í þroska þau ár sem hann
hefur verðir einangraður heima.
„Hann er hættur að læra eitthvað
nýtt, og þráir að taka þátt í lífinu,“
segir Ída. Hún segir að foreldar
þroskahamlaðra hafi ekki orkuna til
þess að berjast fyrir börn sín.
„Ég er búin að berjast við tvenns
konar krabbamein á síðustu árum og
afleiðingar þess, en er núna að skríða
saman. Kristján sem er flugmaður
breytti um vinnustað og flýgur nú
styttri flugferðir en áður vegna veik-
indanna og þess að Rósi er einangr-
aður heima,“ segir Ída og bætir við að
það bæti ekki ástandið að hafa
áhyggjur af framtíðinni og hvað verði
um þroskahamlaðan son þeirra ef
annaðhvort þeirra eða bæði látast.
„Rósi er búinn að bíða mörg ár eft-
ir íbúð í Hafnarfirði en hann er mjög
neðarlega á lista og lítur ekki út fyrir
að hann komist í sjálfstæða búsetu á
næstu árum,“ segir Ída og Kristján
bætir við að hann vilji að það komi
skýrt fram að það fólk sem vinnur við
málefni fatlaðra vinni ótrúlega gott
starf með allt of lítið fjármagn.
Kristján og Ída eru sammála því að
þjóðfélagið allt tapi miklu á úrræða-
leysinu sem ríkir í náms- og atvinnu-
málum fatlaðra.
„Það væri hægt að spara heilbrigð-
iskerfinu fjármuni vegna veikinda
foreldra sem eru útsettari fyrir því að
veikjast vegna langtímaálags við
umönnum. Einnig vegna heilsufars-
vandamála þroskahamlaðra sem
daga uppi einangraðir heima,“ segir
Ída og bendir á að aðstandendur
þorskahamlaðra, mæður í meirihluta
með góða menntun, fari í störf sem
séu minna krefjandi og ekki í sam-
ræmi við menntun eða getu vegna að-
stæðna heima fyrir.
„Hvað kostar slík atvinnulífið og
efnahaginn? Ef við mældum efnahag-
inn líka í velsæld en ekki eingöngu í
krónum og aurum þá myndi okkur
sem þjóð farnast betur,“ segir Ída.
Draumarnir teknir frá Rósa
„Rósi átti stóra drauma, leit aldrei
á sig sem fatlaðan og hagaði sér held-
ur ekki þannig. Í bili er búið að taka
draumanna frá honum og hann er að
átta sig á því að tilveran er svolítið
öðruvísi en hann hélt.
Í stað þess að þjóðfélagið fái að
njóta starfskrafta einstaklings sem
elskar að læra eitthvað nýtt, er sterk-
ur í félagslegum samskiptum, með
góða nærveru, glaður, húmorískur,
góður hlustandi, einlægur með mikla
samhygð og næmur á líðan fólks, sit-
ur hann heima í tilgangsleysi eins og
svo margir þroskahamlaðir ein-
staklingar,“ segja Ida og Kristján
sem bera þá von í brjósti að sam-
félagið vakni og fari að hugsa út fyrir
kassann.
Finnur ekki eldinn inni í sér
Lítið haft fyrir stafni í þrjú ár Langar að vinna á bókasafni, Domino’s, sem kaffiþjónn, í leikhúsi eða
við tónlist Einangraður og hættur að læra eitthvað nýtt Foreldrar hafa ekki orku til að berjast
Ljósmynd/Helena Stefánsdóttir
Gleði Guðbergur Rósi Kristjánsson, fullur tilhlökkunar við úrskrift árið
2015. Í stað þess að vera með í samfélaginu situr hann einangraður heima.
Áhugi Pabbi, viltu hjálpa mér að sækja um sumarvinnu, voru skilaboð sem
Rósi skrifaði til pabba síns árið 2015. Enn bíður hann eftir vinnu.
Morgunblaðið/Eggert
Áhyggjur Þórhildur Ída Þórarinsdóttir og Kristján Arnar Kristjánsson,
hafa áhyggjur af atvinnumálum, búsetu og einangrun Rósa sonar síns.
SVIÐSLJÓS
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Ímyndaðu þér að vera staddur í
miðri heimsreisu og njóta þess í botn
að læra um nýja staði, ferðast og sjá
það sem fyrir augu ber. Þegar ferðin
er rétt byrjuð ákveður flugfélagið að
henda nokkrum farþegum út á flug-
velli í Sahara-eyðimörkinni til að
spara eldsneytiskostnað. Málin eru
rædd við farþegana sem mótmæla
hástöfum en þeir sem ekki geta tjáð
sig með góðu móti eru látnir fara frá
borði,“ segir Þórhildur Ída Þórarins-
dóttir, móðir Guðbergs Rósa Krist-
jánssonar.
Rósi eins og hann er kallaður er
með Down-heilkenni og hefur lítið
haft fyrir stafni frá því að hann út-
skrifaðist glaður og kátur af starfs-
braut FB fyrir þremur árum. Ida er
með myndlíkingunni að lýsa þeim
veruleika sem bíður of margra ein-
staklinga með þroskahömlum þegar
framhaldsskóla lýkur. Ída heldur
áfram með myndlíkinguna.
„Ímyndaðu þér að þú horfir á flug-
vélina hefja sig til lofts og þú sérð
ekkert nema sandöldur svo langt sem
augað eygir og það sem þú veist ekki
er að flugrekandinn mun ekki senda
aðra flugvél eftir þér.“
Þremur árum eftir að Rósi útskrif-
aðist af starfsnámsbraut, fullur sjálfs-
trausts, í miklum félagslegum sam-
skiptum og tilbúinn að takast á við
lífið á vinnumarkaðnum hefur hann
einangrast, hefur ofan af fyrir sér í
tölvunni, vakir á nóttunni og sefur á
daginn. Ida og Kristján Arnar Krist-
jánsson, faðir Rósa, segja að tilgangs-
leysið sé farið að hafa veruleg áhrif á
Rósa.
Félagsvera sem situr einn heima
„Hreyfingarleysið hjá Rósa kom
vel í ljós þegar við hlupum í Reykja-
víkurmaraþoninu. Ég tók eftir því að
hann var í raun kominn úr þokkalegu
formi í afleitt á þremur árum,“ segir
Kristján og Ida bætir við
„Það fer ekki vel með hann frekar
en aðra að vera einn heima. Í FB var
Rósi duglegur í líkamsrækt og í mikl-
um samskiptum við ófatlaða nem-
endur. Hann hélt glærukynningar
um James Bond fyrir nemendur, tók
þátt í tískusýningu, félagsstarfi og
kynntist endalaust af nýju fólki,“ seg-
ir Ída.
Hún bætir við að Rósi hafi notið
góðs af nemendafélaginu og félagið af
því að kynnast honum og getu hans
sem einstaklingi með Down Synd-
rom. Rósi hafi stundum átt erfitt með
að mæta í tíma þar sem hann var á
Sigurður Skúli Bergsson aðstoðar-
tollstjóri hefur verið settur tíma-
bundið í embætti tollstjóra frá 1.
október þar til
skipað hefur ver-
ið í stöðuna.
Þetta kemur
fram í tilkynn-
ingu frá fjármála-
og efnahagsráðu-
neytinu.
Sigurður Skúli
lauk embættis-
prófi í lögfræði
frá Háskóla Ís-
lands árið 1984 og
B.Sc.-gráðu í rekstrarhagfræði frá
Handelshøjskole Syd í Danmörku
árið 1990.
Hann hóf störf hjá embætti toll-
stjóra árið 1998 og hefur gegnt emb-
ætti aðstoðartollstjóra frá 2006.
Snorri Olsen, sem gegnt hefur emb-
ætti tollstjóra frá 1997 tekur 1. októ-
ber við embætti ríkisskattstjóra.
Fjármála- og efnahagsráðherra
skipaði 21. júní nefnd um aukna skil-
virkni í skattframkvæmd, álagningu
og innheimtu opinberra gjalda.
Meta breytingar á skipulagi
Nefndin á einnig að greina hvaða
kostir eru fyrir hendi varðandi
breytingar á stofnanaskipulagi og
verkaskiptingu. Í því sambandi verði
m.a. litið til fyrirkomulags inn-
heimtumála í víðara samhengi og
þjónustu við gjaldendur og aðila í
inn- og útflutningsstarfsemi.
Enn fremur skal nefndin meta
hvort einhverjar breytingar kunni
að vera æskilegar fyrir stofnanir
ráðuneytisins sem sinna skyldum
eða tengdum verkefnum. Undir
þetta fellur víðtæk nýting sjálf-
virknivæðingar og gervigreindar,
aðlögun að breyttum viðskiptahátt-
um, áhættustjórnun innan skatt-
kerfisins o.fl., að því er segir í til-
kynningunni.
Nefndin mun einnig kanna kosti
þess að sameina eða samþætta að
fullu starfsemi tollstjóra og ríkis-
skattstjóra, eftir atvikum með sér-
stakri útfærslu er varðar tollaf-
greiðslu og eftirlit. Hún lagði til við
ráðherra að innheimtumál flytjist
frá tollstjóra til ríkisskattstjóra og
er gert ráð fyrir að frumvarp þess
efnis verði lagt fyrir Alþingi í októ-
ber.
Nefndin skal ljúka störfum fyrir
1. mars á næsta ári.
Sigurður settur tollstjóri
Kanna á sameiningu embætta tollstjóra og ríkisskattstjóra
Sigurður Skúli
Bergsson