Morgunblaðið - 30.08.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum
Megi raforkan verameð þér.
4.250.000 kr.
Verð frá
e-Golf á betra verði. Góð ástæða
til að skipta um orkugjafa.
Volkswagen e-Golf dregur allt að 300 km* og er fyrsti rafmagnsbíllinn með hreyfistýrðu
upplýsinga- og afþreyingarkerfi. Þú þarft aldrei aftur að fara inn í kaldan bíl eða leita að honum
á bílastæðinu. Komdu og finndu kraftinn í þessum magnaða bíl sem gengur 100% fyrir rafmagni.
www.volkswagen.is
Við látum framtíðina rætast.
*Skv. NEDC staðlinum. 5 ára ábyrgð fylgir fólksbílum HEKLU að uppfylltum ákvæðum ábyrgðarskilmála. Þá er að finna á www.hekla.is/abyrgd
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Rúmur fimmtungur þátttakenda í
þolendakönnun lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu og ríkislög-
reglustjóra varð fyrir tilraun til net-
brots árið 2016 og 1,5 prósent töp-
uðu fé vegna slíkra brota. Einn
svarenda kvaðst hafa tapað yfir
einni milljón króna.
Könnunin var lögð fyrir 4.000
íbúa, 18 ára og eldri, gegnum net-
panel Félagsvísindastofnunar, 11.
maí til 21. júní 2017. Helmingur var
af höfuðborgarsvæðinu og helming-
urinn af landsbyggð. Svarhlutfall
var 63%.
Munur eftir menntun svarenda
Marktækur munur var á milli ald-
urshópa og menntunar, en hlutfalls-
lega flestir sem urðu fyrir netbroti
eða tilraun til þess voru á aldrinum
36-45 ára. Tæplega þrjú prósent
höfðu orðið fyrir fjárhagslegu tjóni
og 35% greindu frá því að gerð hafi
verið tilraun til að svíkja eða kúga af
þeim fé á netinu. Um tvö og hálft
prósent þátttakenda sem lokið höfðu
námi á háskólastigi sögðust hafa
orðið fyrir fjárhagslegu stjóni vegna
netbrota árið 2016, samanborið við
0,4% í flokki grunnskólamenntaðra.
Rúmlega fjórðungur hafði orðið fyr-
ir tilraun, samanborið við 17,3%
grunnskólamenntaðra.
Í könnuninni var spurt sér-
staklega um tegundir netbrota, ann-
ars vegar um fjársvik eða tilraunir
til svika, hins vegar um fjárkúgun,
eða tilraun til kúgunar. Flestir urðu
fyrir því að tilraun var gerð til að
svíkja af þeim fé gegnum net eða
síma af hálfu einhvers ókunnugs,
18,2%. 0,3% urðu fyrir því að tapa
fjármunum vegna slíkra brota. 4,4%
urðu fyrir tilraun til netbrots þannig
að kreditkortanúmer viðkomandi
væri notað á ólögmætan hátt. 0,6%
töpuðu fé vegna slíkra brota. 1,8%
urðu fyrir tilraun til brots þegar þeir
voru að kaupa vöru/r á netinu og 1%
varð fyrir fjártjóni af slíku broti.
5% sögðu að tilraun hefði verið
gerð til að kúga af þeim fé til þess að
valda þeim fjárhagslegu tjóni með
tölvuvírusi/um. 0,1% urðu fyrir fjár-
tjóni af þeim sökum. 0,2% sögðu að
tilraun hefði verið gerð til kúgunar
með hótun um dreifingu klámfeng-
inna mynda eða myndbanda gegnum
netið. Enginn varð fyrir fjártjóni
vegna slíks brots. 0,1% sögðu að þeir
hefðu orðið fyrir annars konar net-
broti.
Ástæða til að fylgjast vel með
Í umræðukafla niðurstöðu rann-
sóknarinnar segir að undanfarin ár
hafi einstaklingar og fyrirtæki í
auknum mæli orðið vör við ýmis brot
þar sem net eða sími eru notuð til að
svíkja út fé eða gera tilraun til þess.
Fyrirtæki voru þó ekki hluti rann-
sóknarinnar. Jafnframt segir að um-
hverfi netsins bjóði upp á aukna
möguleika til að villa á sér heimildir
og beita blekkingum. Brotamenn
hafi nýtt sér þessa nýju leið. Íslend-
ingar séu almennt miklir netnot-
endur í samanburði við margar Evr-
ópuþjóðir og nær allir fullorðnir
Íslendingar séu virkir notendur, en
það auki jafnframt líkur á brotum á
netinu. „Líklegt má ætla að brota-
menn muni halda áfram að reyna að
finna nýjar leiðir til að nýta upplýs-
ingatækni til að svíkja og kúga fé af
fólki. Það er því mikilvægt að fylgst
sé vel með þróun í þessum brota-
flokki. Þá er ekki síður mikilvægt að
forvarnir gegn þessum tegundum
brota nái til notenda, að notendur
séu upplýstir jafnóðum um nýjar að-
ferðir brotamanna við að ná pen-
ingum af einstaklingum gegnum net
og síma,“ segir í niðurstöðunni.
Netþrjótar reyndu við fimmtung fólks
Lögreglan rannsakar fjársvik og fjárkúgun á netinu 21% varð fyrir tilraun til netbrota árið 2016
Einn svarenda kvaðst hafa tapað yfir einni milljón króna Flestir létu til leiðast við kaup á vörum
Netbrot Lögreglan telur mikilvægt að forvarnir nái til netnotenda og að
þeir séu upplýstir um nýjar aðferðir brotamanna gegnum net eða síma.
Þolendakönnun um netbrot árið 2016
Fjárhagslegt tjón
Fjöldi þolenda
H
ei
m
ild
: E
m
bæ
tt
i r
ík
is
lö
gr
eg
lu
st
jó
ra
og
lö
gr
eg
la
n
á
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
nu
Urðu fyrir netbroti með fjárhagslegu tjóni
Urðu fyrir tilraun til netbrots
Urðu ekki fyrir netbroti
0,9%
0,3% 0,3%
1,5%
20 þús. kr.
eða minna
21-100
þús. kr.
Yfir 100
þús. kr.
Fjöldi
þolenda
netbrota
21,4%
77,1%