Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.08.2018, Side 2
Hvað ertu að gera á Íslandi?
Breiða út beikon-boðskapinn og fara á
matarhátíðina hér. Ég er stofnandi
Beikon-kirkjunnar (United Church
of Bacon).
Hvernig datt þér í hug að
stofna beikon-kirkju?
Þetta hófst árið 2010 þegar ég sat á
spjalli við vini mína sem eru töfra-
menn og við ræddum að hægt væri
að sanna að beikon væri raunveru-
legt og ákváðum að stofna kirkju í
kringum það. Nú eru 23.0000 með-
limir út um allan heim, þar af eru
100 Íslendingar. Við tökum ekki við
neinum peningum en meðlimir okkar
gefa beint til góðgerðarmála í nafni
kirkjunnar og hafa milljónir dollarar
safnast. Það eru milljarðarmæringar og
Hollywood-leikarar og -leikstjórar í kirkj-
unni en ég má ekki gefa upp hverjir.
Eru flestir meðlimir kirkjunnar
trúlausir?
Mjög margir en ég spyr ekki fólk. Það er
ekki vinsælt í Bandaríkjunum að vera trú-
laus. En ég er sjálfur kaþólskur af því þeir
neita að hleypa mér úr kaþólsku kirkj-
unni, maður þarf sérstakt leyfi frá páf-
anum.
Af hverju beikon?
Af því beikon er vinsælt og það er hægt
að sanna tilvist þess.
Þetta hljómar eins og brandari.
Er það tilfellið?
Fjórða boðorð okkar er að við eigum að
skemmta okkur, og við erum óhrædd við
að gera grín að okkur sjálfum. Við trúum
ekki í raun að beikon sé guð.
Hvernig gekk að gifta á og hrút í
Húsdýragarðinum?
Brúðurin missti kjarkinn og hljóp í burtu en
þetta gekk að lokum og þau kysstust. Þetta var
mjög skemmtilegt.
Morgunblaðið/Ásdís
JOHN WHITESIDE
SITUR FYRIR SVÖRUM
Guð er ekki
beikon
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.8. 2018
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Á dögunum birti lögreglan á höfuðborgarsvæðinu færslu á Facebook-síðu sinni um hjólreiðafólk og kvartanir sem lögreglu berast vegnaþeirra sem hjóla. Í færslunni, sem birt var fyrsta dag ágústmánaðar,
segir meðal annars: „Mikið hefur verið kvartað undan reiðhjólafólki á höf-
uðborgarsvæðinu í sumar, en margir hjólreiðamenn eru sagðir virða allar
umferðarreglur að vettugi og skeyta í engu um aðra vegfarendur í umferð-
inni. [...] Þeir sem kvarta undan hjólareiðamönnum segja þá m.a. glannalega
og hjóla í veg fyrir aðra vegfarendur, ýmist á akbrautum eða göngustígum.
Eru þessir sömu hjólareiðamenn sagðir tillitslausir með öllu að mati þeirra
sem hafa kvartað, en þeim síðarnefndu hefur oft verið mikið niðri fyrir þegar
þeir hafa hringt í lögregluna og bent á þá miklu slysahættu sem þessu fylgir.“
Færslan vakti skiljanlega mikil og hörð viðbrögð, enda ekki á hverjum degi
sem svona furðufréttir eru bornar
fram af lögreglunni. Færslan fjallaði
í raun aðeins um að margir kvört-
uðu, ekki kom neitt fram um það
hvort slysum hefði fjölgað, hvort
hjólreiðamenn yllu einhverjum
skaða eða hvort þessar kvartanir
væru til marks um eitt né neitt nema
það að fólk gæfi sér tíma í að kvarta.
Auk þess var færslan skrifuð þannig
að vitnað var í þá sem kvarta og því
ábyrgðin á frásögninni færð frá lög-
reglunni yfir á meinta innhringj-
endur, samanber orðalagið „en
margir reiðhjólamenn eru sagðir...“
án þess að styðja málið frekar.
Kannski er það að bera í bakkafullan lækinn að lýsa frati á þessa færslu,
enda virðist löggan nú hafa séð eitthvað að sér. Að minnsta kosti er reynt að
bæta fyrir þessi kjánalegu skrif í athugasemdum undir færslunni þar sem
löggan skrifar til dæmis: „Langflestir eru til algerrar fyrirmyndar.“
En burtséð frá hvað þetta eru ábyrgðarlaus skrif þá er það þessi flokkun á
vegfarendum sem þarna birtist sem er eiginlega hvað vandræðalegust fyrir
lögregluna. Lögreglan ber jafnmikla ábyrgð gagnvart öllum þegnum, einnig
þeim sem velja sem reiðhjól sem fararskjóta. Að tala um hjólreiðafólk eins og
það sé einhver sérstakur þjóðflokkur sem hefur dólgshátt og dónaskap sem
aðalsmerki, og vitna í reiða innhringjendur sem sönnun, er út í hött.
Vonandi var löggan ekki að meina neitt slæmt í garð hjólreiðafólks og von-
andi verður löggan bara full af gleði um helgina. Og vonandi láta hinir reiðu
innhringjendur það ekki trufla sig þótt þjóðflokkurinn hjólreiðafólk spari
ökumönnum mínútur í umferðinni með því að hjóla í miðbæinn um helgina.
Hjólreiðafólk
er fólk sem
hjólar. Þegar
hjólreiðamaður
er undir stýri á
bíl kallast hann
ökumaður.
Þetta eru ekki
tveir ólíkir
flokkar fólks.
Morgunblaðið/Eggert
Flokkar fólks
í umferðinni
Pistill
Eyrún
Magnúsdóttir
eyrun@mbl.is
’Kannski er það aðbera í bakkafullanlækinn að lýsa frati áþessa færslu, enda virðist
löggan nú hafa séð eitt-
hvað að sér.
Gróa Laufey Eyþórsdóttir
Já. Ég elska Pál Óskar.
SPURNING
DAGSINS
Ætlar þú í
Gleðigöng-
una?
Karl Jóhann Stefánsson
Nei, ég held ekki. Ég hef farið, þeg-
ar ég var lítill.
Morgunblaðið/Ásdís
Ólöf Sigþórsdóttir
Já, það er svo skemmtilegt og algjör-
lega þess virði. Ég stend með þeim.
Gylfi Jónsson
Já, ég var að spá í það. Sýna málefn-
inu stuðning.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndir tók
Arnþór Birkisson
John Whiteside, sem nú er staddur á Íslandi, er stofnandi United
Church of Bacon. Hann er fyrrverandi hermaður og flugmaður.
Beikonhátíðin sem nú heitir Reykjavík Food Festival fer fram á
Skólavörðustíg laugardaginn 11. ágúst og í ár er margt annað á
boðstólnum en beikon.