Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.08.2018, Qupperneq 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.08.2018, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.8. 2018 Þrívíddarprentarar hafa ver- ið til í meira en þrjá áratugi og eiga rætur sínar að rekja til Japans, en það var engu að síður Bandaríkjamaður að nafni Chuck Hull sem sótti um fyrsta einkaleyfið af þrí- víddarprentara og stofnaði 3D Systems, sem hefur síðan verið leiðandi á sviði þrívídd- arprentunar. Aðferðin fólst í því að prenta þunn lög af annað hvort vökva eða dufti ofan á hvert annað og bræða þau saman. Hefur aðferðin verið notuð til að framleiða allt frá raftækj- um til líffæra. Í maí 2013 voru leiðbeiningar umframleiðslu á þrívíddarprent-aðri plastskammbyssu sem bar nafnið Frelsarinn (e. The Libera- tor) gerðar aðgengilegar á netinu. Með hjálp leiðbeininganna væri hægt að þrívíddarprenta starfhæfa, nær órekjanlega skammbyssu, sem mögulegt yrði að að lauma í gegn- um málmleitartæki, heima í stofu. Maðurinn á bak við leiðbeining- arnar heitir Cody Wilson, fyrrver- andi laganemi og stofnandi vefsam- takanna Defense Distributed, en síðan leiðbeiningarnar voru birtar fyrir rúmum fimm árum hefur Wil- son staðið í harðri lagalegri baráttu við bandaríska ríkið fyrir rétti sín- um til að deila leiðbeiningunum á netinu. Fimm ára lagadeila Skömmu eftir að leiðbeiningarnar voru birtar var Wilson skipað af ut- anríkisráðuneyti Bandaríkjanna að taka þær niður þar sem dreifing þeirra væri á skjön við lög um tak- mörkun á vopnaútflutningi og reglugerðir um alþjóðleg vopna- viðskipti. Var dreifing leiðbeininganna sögð annars vegar gera meinfýsn- um aðilum of auðvelt fyrir að nálg- ast órekjanleg vopn sem meðal annars hægt yrði að smygla um borð í flugvélar, og hins vegar að hægt yrði að nálgast leiðbeining- arnar í löndum sem Bandaríkin selja ekki vopn. Í kjölfarið kærði Wilson utanrík- isráðuneytið Bandaríkjanna fyrir að brjóta á fyrstu breytingu stjórn- arskráar Bandaríkjanna sem trygg- ir frelsi til tjáningar. Segist hann ekki vera að selja skotvopn, heldur væri hann einungis að deila kóð- anum svo aðrir geti prentað þau. Í júní náðist samkomulag milli Wilson og utanríkisráðuneytisins og átti leiðbeiningum Wilsons að vera hlaðið upp á ný. Fyrsta ágúst steig dómari frá Washingtonríki fram og hindraði dreifinguna tíma- bundið. Þó eru skiptar skoðanir um hvort hindrun þessi muni vera ár- angursrík. Erfitt að hamla dreifingu Gríðarlega erfitt er að hamla dreif- ingu gagna á netinu. Sama hvort um er að ræða leiðbeiningar um þrívíddarprentuð skotvopn, kvik- myndir, tónlist eða einkaskilaboð, er nær ómögulegt að stjórna dreif- ingu þeirra. Áður en leiðbeiningar Wilsons voru teknar niður árið 2013 höfðu allt að 100 þúsund að- ilar hlaðið þeim niður. Dreifing upplýsinga á netinu virðir auk þess engin landamæri, þótt þrívídd- arprentuð skotvopn séu mikið hita- mál í Bandaríkjunum gætu þau valdið enn meira fjaðrafoki í lönd- um þar sem skotvopn eru ólögleg, þar sem þrívíddarprentun gæti ver- ið eina leiðin til að koma höndum á byssur. Ekki er þó fordæmalaust að upplýsingar sem dreift er í gegnum netið séu gerðar ólöglegar, harðar refsingar liggja við dreif- ingu ýmissa gagna sem stjórnvöld telja að hafi alvarlegar afleiðingar, til dæmis barnaklám. Í Bandaríkj- unum segja engin lög til um að ólöglegt sé að framleiða eigin skot- vopn. Rík hefð er í landinu fyrir framleiðslu skotvopna í heima- húsum og á sú hefð rætur að rekja þar til fyrir banda- rísku byltinguna. Gæti þrívídd- arprentun á skotvopnum valdið frekari vandamálum í þeim ríkjum þar sem byssueign er ekki eins algeng. Þrívíddarprent til heilla Þrívíddarprentun hefur gjörbylt framleiðslu á fjölmörgum sviðum. Þar sem hægt er að prenta með mismunandi efni, frá stáli til líf- rænna vefja, hefur verið hægt að framleiða aukahluti í þyrlur, flug- vélar og bíla á hagkvæmari hátt en áður, auk þess að hægt hefur verið að þrívíddarprenta líffæri á borð við eyru, lifur og nýru. Hefur þrívíddarprent einnig ver- ið notað við líknarstarf eftir nátt- úruhamfarir. Eftir skæða jarð- skjálfta í Nepal árið 2015 voru þrívíddarprentarar notaðir til að framleiða hluti í snatri sem ekki var hægt að flytja inn eða fram- leiða, svo sem aukahluti í rafala og þeytivindur. Í framtíðinni munu þrívídd- arprentarar eflaust leika stórt hlut- verk í ýmiss konar framleiðslu og eru möguleikarnir nánast endalaus- ir. Skotvopn prentuð í stofunni Síðan leiðbeiningar um þrívíddarprentaða byssu rötuðu á netið fyrir fimm árum hefur hatrömm umræða geisað um ágæti þrívíddarprents Pétur Magnússon petur@mbl.is Þrívíddarprentaða byssan Frelsarinn. Þrjátíu ára aðferð FP Cody Wilson hefur staðið í lagadeilum við utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna í fimm ár. Ég trúi ekki að aðgangur að upplýsingum sé nokkurn tímann gríðarlega neikvæður eða slæmur. Ég veit að fólk getur notað upplýsingar til slæmra hluta. En það er ekki réttlæting á að þagga niður í þeim sem tala.“ Cody Wilson, stofnandi Defense Distributed ERLENT PÉTUR MAGNÚSSON petur@mbl.is ARGENTÍNA Lagafrumvarp sem átti að afl étta banni á fóst- ureyðingum á fyrstu fjórtán vikum með- göngu var slegið niður af argentínska þinginu í vikunni. Frumvarpið var samþykkt í neðri deild þingsins, en kos- ið var á móti því með 38 atkvæðum gegn 31 í öldungadeild þingsins. Málsvarar frumvarpsins segjast ekki ætla að gefast upp og þeir muni leggja fram nýtt frumvarp árið 2019. ÁSTRALÍA Fjöldi Ástrala hefur beðið um að fá mynd af Elísabetu II. Breta- drottningu eftir að fjölmiðlar hafa fjallað um rétt ástralskra ríkisborgara til að fá slíka mynd endur- gjaldslaust. Frétta- miðillinn Vice vakti fyrst athygli á rétti þessum, en Ástralía er meðlimur Breska sambandsveldisins og Elísabet II. því einnig þjóðhöfðingi Ástralíu. ÍRAK Breska þjóðminjasafnið mun skila átta tæplega 5.000 ára gömlum íröksk- um fornmunum til írakska sendiráðsins í vikunni. Munirnir voru gerðir upptækir árið 2003 þegar þeir fundust hjá fornmuna- sala í London, en talið er að þeim hafi verið stolið. Ekki hafði tekist að staðfesta uppruna þeirra fyrr en nákvæmlega eins munir, leirkeilur með súmerísku letri, fundust við fornleifauppgröft í Írak. ÞÝSKALAND Banni á Nasistatáknum í tölvuleikjum hefur verið afl étt í Þýskalandi, en ákvörðunin var tekin eftir deilur í kring- um tölvuleikinn Wolfenstein 2, þar sem leikmenn berjast við sveitir Þriðja ríkisins. Nasistatákn eru að staðaldri bönnuð í landinu, en undanþága er gefi n þegar tákn eru notuð í listrænum, sagn- fræðilegum eða vísindalegum tilgangi, til dæmis í kvikmyndum eða kennslubókum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.