Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.08.2018, Side 8
Í PRÓFÍL
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.8. 2018
HJARTAKNÚSARI Redford hefur löngum þótt afar
myndarlegur maður, með sín fagurbláu augu og
ljósa, liðaða lokka.
Í kvikmyndinni Barefoot in the Park frá árinu
1967 lék Redford á móti leikkonunni Jane Fonda. Í
viðtali sagðist hún hafa verið gagntekin af honum.
Hún hefði verið ástfangin af honum en ekkert hefði
gerst þeirra á milli. Það hefði verið ótrúlega gott að
kyssa hann og hún beðið spennt eftir atriðunum þar
sem þau áttu að kela. Verst hefði þó verið að Red-
ford vildi ekki leika í kynlífssenum.
Barbara Streisand lék á móti Redford í kvikmynd-
inni The Way We Were árið 1976 og ef marka má
það sem fram kemur í ævisögu hennar frá 2016,
Barbra Streisand: Redefining Beauty, Femininity,
and Power, var hún bálskotin í leikaranum. Í bókinni
segir meðal annars að samkvæmt heimildum af
tökustað hafi Streisand átt erfitt með hafa hemil á
tilfinningum sínum og hún hafi hreinlega slefað yfir
honum þegar þau léku á móti hvort öðru.
Redford og Fonda árið 2017, fimmtíu árum eftir að þau léku
fyrst saman og kysstust á hvíta tjaldinu.
AFP
Kossaflens en
ekki kynlífssenur
ROBERT REDFORD fagnar áttatíu og tveggja ára afmælinu innan skamms
og lýsti því nýlega yfir að hann ætlaði að leggja leikarastarfið á hilluna eftir
sextíu ára feril. Nýjasta kvikmynd Redford, The Old Man & the Gun, verður
frumsýnd vestanhafs í september næstkomandi og Redford sagði í viðtali við
Entertainment Weekly fyrir stuttu að þetta væri sitt síðasta leikhlutverk.
Hann sagðist þó ekki útiloka að hann tæki að sér fleiri leikstjórnarverkefni
en hann hefur einnig notið mikillar velgengni sem leikstjóri.
Redford, sem heitir fullu nafni Charles Robert Redford Jr., fæddist í Kali-
forníu í Bandaríkjunum 18. ágúst 1936. Faðir hans vann mikið og var lítið
heima og móðir Redford lést þegar hann var átján ára. Hann kom sér gjarn-
an í vandræði á yngri árum og hefur sjálfur sagst hafa verið erfiður nemandi
sem hafði meiri áhuga á listum og íþróttum heldur en skólabókunum. Hann
spilaði hafnabolta og fékk námsstyrk út á það til að stunda nám við háskóla í
Colorado. Hann missti styrkinn og var rekinn úr
skólanum vegna drykkjuskapar og þjófnaðar en
hann stal áfengi frá skólafélögum sínum.
Eftir að hann hætti í háskólanum þvældist hann
um Bandaríkin og vann meðal annars við olíuvinnslu.
Hann safnaði sér fyrir ferð til Evrópu og stundaði
listnám í París og Flórens. Þegar hann sneri aftur til
Bandaríkjanna lærði hann myndlist við Pratt Insti-
tute í Brooklyn og tók tíma í American Academy of
Dramatic Arts í New York.
Redford byrjaði leikferil sinn á sviði Broadway árið
1959. Hann lék fyrst í sjónvarpi árið 1960 og kom
fram í mörgum aukahlutverkum í ýmsum sjónvarps-
þáttum; þar á meðal í þáttunum The Twilight Zone og
Perry Mason. Hann var tilnefndur til Emmy verð-
launa fyrir besta leik í aukahlutverki í þáttunum The
Voice of Charlie Pont. Fyrsta hlutverk Redford á
hvíta tjaldinu var lítið hlutverk í kvikmyndinni Tall
Story sem frumsýnd var árið 1960. Fyrsta stóra hlut-
verk Redford var í myndinni Butch Cassidy and the
Sundance Kid þar sem hann lék á móti Paul Newman.
Fyrsta kvikmyndin sem Redford leikstýrði var
myndin Ordinary People sem hlaut fern Ósk-
arsverðlaun árið 1981, þar á meðal fyrir bestu leik-
stjórn og sem besta myndin. gudruno@mbl.is
EINKALÍFIÐ Redford kvæntist
Lolu Van Wagenen árið 1958.
Þau eignuðust fjögur börn: Scott
Anthony, sem lést úr vöggu-
dauða tíu vikna gamall, Shauna
Jean, David James og Amy Hart.
Redford og Lola skildu árið
1985.
Í júlí 2009 giftist Redford Si-
bylle Szaggars, en þau hafa verið
saman frá því á tíunda áratugn-
um.
Börn Redford hafa öll lagt fyrir
sig einhvers konar listir. Shauna
er málari, Jamie er rithöfundur
og framleiðandi og Amy er leik-
kona, leikstjóri og framleiðandi.
Barnabörn Redford og Lolu
eru sjö.
Tvíkvæntur
Redford ásamt núverandi eiginkonu sinni Sibylle Szaggars. Þau giftu sig árið
2009 en höfðu þá verið saman í nokkur ár.
AFP
SORGIN Robert Redford hefur
lítið viljað tjá sig opinberlega
um einkalíf sitt. Hann hefur þó
sagt að fólk haldi að lífið hafi
farið mjúkum höndum um
hann en það sé fjarri sannleik-
anum og sárt að heyra.
Þegar Redford var níu ára lést
frændi hans, David, af slysförum.
David hafði verið föðurímynd
Redford þar sem faðir hans var
mikið að heiman. Móðir hans lést
svo aðeins fertug að aldri eftir að
hafa fætt andvana tvíbura.
Árið 1959 eignuðust Redford og
þáverandi kona hans, Lola, dreng
sem þau skírðu Scott. Í nóvember
sama ár lést Scott úr vöggudauða,
aðeins tíu vikna gamall. Redford
hefur sagt að örið eftir svona lífs-
reynslu grói aldrei að fullu.
Systurnar gleði og sorg hafa bankað
upp á hjá Redford og fjölskyldu hans.
Reuters
Ör sem
aldrei grær
Vandræðapési
sem rættist úr
AFP
Kvikmyndin All the
President’s men frá
árinu 1976 var til-
nefnd til átta Ósk-
arsverðlauna og
hreppti fjögur.
Myndin var sann-
söguleg og fjallaði
um blaðamenn við
Washington Post
sem rannsökuðu
ráðgátuna bak við
Watergate innbrotið.
Redford fór með eitt
hlutverkanna ásamt
Dustin Hoffman.
’ Faðir hans vann mikið og varlítið heima. Móðir Redfordlést þegar hann var átján ára.
Redford og Jane Fonda í hlutverkum sínum í kvik-
myndinni Barefoot in the Park frá árinu 1967.