Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.08.2018, Side 16
Það tók mig í rauninni svolítið langantíma að átta mig á þessu. Ég var allt-af „strákastelpa“ þegar ég var að
alast upp en var ekkert mikið að kippa mér
upp við það að ég vildi vera í strákalegum
fötum, það var bara eðlilegt. Ég hafði aldrei
heyrt um trans fólk fyrr en á unglingsárun-
um þegar ég fór á youtube og tumblr, og því
meira sem ég aflaði mér fræðslu um hvað
þetta var og sá annað fólk sem var í sömu
aðstöðu og ég, fór ég að hugsa að kannski
væri ég trans. Það tók mig samt alveg mjög
langan tíma að sætta mig við að ég væri
trans og að viðurkenna það fyrir sjálfum
mér. Þegar ég var 12 eða 13 ára, tók ég
svona stelputímabil, eins og ég veit að
margir gera; setti á mig maskara, fór í kjól
og var rosalega stelpuleg, og hugsaði að
kannski yrði ég bara þannig, en það óx fljótt
af mér sem betur fer, haha!
Það leið alveg frekar langur tími á milli
þess að ég var alveg fastur á því að ég væri
trans, og þangað til að ég kom út úr skápnum
fyrir öllum. Ég gat talað um þetta við nánustu
vini mína, þegar ég var að byrja að finna mig,
en síðan leið mjög langur tími. Ég fór að efast;
Hlakkar til að fara á hormóna
Ég heitir Óliver Elí og ég
er trans strákur. Það þýð-
ir að mér var úthlutað
kvenkyni við fæðingu en
ég er og skilgreini mig
sem karlmann í dag
„Það tók mig mjög langan tíma
að sætta mig við að ég væri
trans og viðurkenna það fyrir
sjálfum mér,“ segir Óliver Elí.
HINSEGIN KYNSEGIN
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.8. 2018
Kynhneigðir eru flæðandi
Ég heiti Sonja og ég skilgreini
mig sem eikynhneigða en það
þýðir að ég finn ekki fyrir
kynferðislegri aðlöðun
„Eftir að ég fann þetta orð hefur
mér fundist svo gott fyrir sjálfa
mig að geta skilgreint mig. Ég þarf
ekki lengur að lifa í einhverri
óvissu um hvað ég er,“ segir Sonja.
Ég skilgreini mig líka sem sís konu, en þaðþýðir að mér var úthlutað kvenkyni viðfæðingu og ég get samsamað mig því
kyni.
Ég hef í langan tíma vitað, eða mig hefur að
minnsta kosti grunað, að ég væri einhvern
veginn hinsegin, svo fór ég að grennslast að-
eins meira fyrir um þetta í gegnum samfélags-
miðla. Þar var oft minnst á orðið „asexual“ og
eftir því sem ég fór meira að lesa mér til um
það fann ég að þetta var ég. Eftir að ég fann
þetta orð hefur mér fundist svo gott fyrir
sjálfa mig að geta skilgreint mig. Ég þarf ekki
lengur að lifa í einhverri óvissu um hvað ég er.
Ég get sagt: ég er tvíkynhneigð, eikynhneigð
manneskja. Ég er ekkert mikið að flagga kyn-
hneigð minni, mér finnst hún ekki skipta það
miklu máli. En mér finnst ágætt að geta haldið
í þetta orð, því þetta var fyrsta alvöru hinsegin
orðið sem ég gat samsamað mig við. En svo
eru kynhneigðir náttúrlega flæðandi þannig að
hver veit nema ég geti mögulega fundið mig
einhvern tímann aftur í framtíðinni?
Þegar ég segist vera eikynhneigð og tvíkyn-
hneigð þýðir það að ég sé „bi-romantic“, róm-
antískt tvíkynhneigð, þannig að ég get hugs-
að mér að vera í sambandi og orðið skotin í
bæði stelpum eða strákum. Ég finn ekki fyrir
kynferðislegri aðlöðun, heldur meira fyrir
rómantík, tengingu, vináttu og svoleiðis. Ei-
kynhneigð er alls ekki samheiti við skírlífi.
Persónulega hef ég ekki áhuga á kynlífi og það
myndi kannski eiga betur við mig að vera í
sambandi við aðra eikynhneigða manneskju,
en sumt eikynhneigt fólk getur alveg hugsað
sér að stunda kynlíf, hvort sem það væri bara