Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.08.2018, Síða 23
Forréttur eða snakk fyrir 8-12
8 pítur, skornar í tvennt og opnaðar
1 bolli hvítlaukssmurostur með kryddjurtum
(eða einhvers konar smurostur að eigin vali, hægt að búa til sjálfur og bæta út í venjulegan
smurost steinselju og hvítlauk t.d.)
6 sneiðar af elduðu beikoni, skorið í litla bita
12 fersk basillauf
3 msk. olífuolía
¼ tsk. salt
¼ tsk. nýmalaður pipar
Hitið grillið þar til það hefur náð miðlungshita. Skerið pítubrauðið í tvennt og
smyrjið um 1 msk. af smurostinum inn í hvern pítuhelming.
Bætið inn í tveimur basillaufblöðum og smá beikoni.
Blandið saman ólífuolíu, salti og pipar í litla skál og penslið pítubrauðin á báðum
hliðum með blöndunni.
Setjið brauðið á grillið og grillið í u.þ.b. tvær mínútur, eða þar til það hefur aðeins tekið
á sit lit og osturinn er bráðnaður. Takið af grillinu og látið kólna í fimm mínútur. Skerið hvern
helming í tvennt og berið fram á diski með smátt skornum basillaufum.
Grillað pítubrauð með beikoni og osti
19.8. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
næstu umferð við tvo aðra kokka. Þá fengum
við kanínu til að elda, ásamt ananas, eggaldin
og smjördeigi. Ég hugsaði bara, guð minn góð-
ur! Ég borða ekki eggaldin og finnst ananas
vondur og vissi ekkert hvað ég ætti að gera við
smjördeigið. Svo var það hausverkurinn hvern-
ig ég ætti að elda kanínu á hálftíma. Bara á
meðan ég var að hugsa málið hafði kokkurinn
við hliðina á mér úrbeinað kanínurnar! Tvær
kanínur á tveimur mínútum!“ segir hann og
hlær.
„Ég var vægast sagt smeykur. Ég ákvað að
grilla lappirnar og svo brenndi ég smjördeigið.
Svo ætlaði ég að setja smá chillipipar á þetta og
þá kom vindhviða og ég sturtaði piparnum yfir
allt saman. Á meðan reyndi ég að grilla eggald-
inið. Hjá kokkinum við hliðina á mér leit allt svo
vel út, nema að hann reyndi að setja ananasinn
inn í smjördeigið. Það virkar alls ekki; það var
allt blautt. Það endaði þannig að dómararnir
sögðu kanínulappirnar mínar þær bestu, og
sögðu að ég hefði sýnt snilld við grillmennsk-
una. Þannig að þessi með blauta smjördeigið
var sendur heim. Það var að líða yfir mig þarna,
því þarna var ég kominn í úrslit en í úrslitum
átti að gera eftirmat, sem ég er ekki góður í. Við
fengum kúrbít, sykurpúða, sítrónu og eitthvert
kolamolakex. Búið til úr kolum! Þetta er hræði-
lega vont. Chopped finnst gaman að gefa manni
hráefni sem enginn borðar,“ segir hann og
brosir út í annað.
Keiles setti saman réttinn, bjó til súkku-
laðisósu og karamellusósu sem endaði á að
brenna. „Þannig að hinn kokkurinn vann og
endaði á að vinna 50 þúsund dollara. Þátturinn
er klukkutímalangur en þú sérð mig í sjö mín-
útur í heildina. En við tókum þetta upp í 17
klukkutíma! Og ég sást í sjö mínútur. En þetta
var frábær reynsla og rosalega skemmtilegt.
Þetta var fyrsta serían af Chopped Grill-
masters en nú eru þeir með þáttinn innandyra,“
segir Keiles.
Fær aldrei leið á beikoni
Mikil vinna fer í kryddblönduframleiðsluna en
auk þess rekur hann risastóran matartrukk
sem fer á milli og eldar fyrir veislur. Það er þó
ekki aðalvinnan hans því dags daglega vinnur
hann fyrir dagblaðadreifingarfyrirtæki og sér
um að þróa tæknina við að dreifa dagblöðum til
kúnnanna.
„En ég hef sem betur fer sveigjanlegan
vinnutíma og þegar ég kem heim vinn ég að
matarfyrirtækinu mínu til eitt á nóttunni. Ég
eyði svo helgunum í að grilla í veislum og til
dæmis áður en ég kom hingað var ég búinn að
vinna ellefu helgar í röð. Og það er svipað fram
undan. Ég er með mjög langan trukk fullan af
stórum grillum. Ég fer í alls kyns veislur, brúð-
kaup, afmæli, hvað sem er.“
Hvað er það besta á grillið að þínu mati?
„Ef ég ætti að velja eitt væri það sennilega
hörpudiskur, humar og rækjur með minni
kryddblöndu. En það er margt gott á grillið, ég
elska hamborgarana mína, beikon og góða
steik.“
Færðu aldrei leið á beikoni?
„Nei, það er ekki hægt.“
Fyrir 4-6
3 stórar ferskjur (má líka
nota nektarínur)
½ kg beikon (ca 24 þunn-
ar sneiðar)
2 msk. kryddblanda sem
samanstendur af 1 msk. af
púðursykri, ½ tsk. salti, ½
tsk. cajunkryddi (eða Rub
4 all BBQ rub frá Ribs
Within)
1 búnt basillauf (helming
fyrir ferskjurnar og hitt til
skreytinga)
balsamgljái (fæst í búð-
um eða hægt að búa til
sjálfur úr 1 bolla balsam-
edik, ½ bolla púðursykri,
1 tsk. smjöri, allt brætt
saman í potti og látið
kólna.)
Festið lausa enda
beikons með tann-
stöngli. Gerið þetta við
alla ferskjubitanna.
Penslið létt með smá
ólífuolíu svo að beikonið
festist ekki við grillið.
Grillið þar til beikonið
er tilbúið og munið að
snúa reglulega svo allar
hliðar grillist jafnt.
Þetta tekur um 15-20
mínútur.
Takið af grilli og setjið
á fat og takið tann-
stönglana í burtu. Hellið
yfir passlega miklu af
balsamgljáanum.
Skreytið með basil-
laufum. Berið fram
heitt eða við stofuhita.
Forhitið grillið í 10 mín-
útur og hafið það á lág-
um hita.
Bleytið eldhúspappír
með canola-olíu og
strjúkið yfir heitu grill-
grindina.
Þvoið og þerrið
ferskjurnar (eða nekt-
arínurnar).
Skerið í tvennt og
skerið svo hvorn helm-
ing fyrir sig í fjóra hluta.
Kryddið með krydd-
blöndunni.
Setjið basillauf á
hverja hlið ferskjubit-
anna. Skerið beikonst-
rimlana í tvennt. Vefjið
beikoni utan um hvern
ferskjubita með basilinu.
Beikonvafðar ferskjur
með balsamgljáa
Fyrir 8-10
1 kg kartöflur
2 msk. ólífuolía
1 teaspoon gott grillkrydd
(t.d. frá Ribs Within)
½ tsk. salt
½ Cajun-pipar (má líka nota
svartan pipar)
½ bolli majónes
½ bolli gráðostasalatdress-
ing (fæst víða í búðum, t.d.
blue cheese ranch)
(má líka nota blöndu af ½
bolla majónes og ¼ bolla
rifnum fetaosti)
1 msk. sterk sósa (hot
sauce)
¼ bolli fersk steinselja, smátt
skorin
½ rauðlaukur, smátt skorinn
120 g gráðostur, mulinn
6 sneiðar af beikoni, eldað
og mulið í litla bita
Setjið kartöflur í sjóðandi
vatn sem búið er að salta.
Sjóðið þar til þær eru
mjúkar og kælið svo. Sker-
ið þá kartöflur í tvennt og
látið á bakka.
Hitið grillið og hafið það
miðlungsheitt eða rúm-
lega það.
Penslið kartöflurnar
með olíu og kryddið með
salti og pipar eða cajun-
pipar.
Blandið saman majó-
nesi, gráðostasalatdress-
ingu og sterku sósunni.
Hrærið steinselju, gráð-
osti og beikonbitunum
saman við. Grillið kart-
öfluhelmingana með sárið
niður þar til þeir eru
komnir með smá grill-
skorpu, eða í u.þ.b. fimm
mínútur. Takið þá af grill-
inu og dreifið úr þeim og
kælið.
Setjið kartöflurnar í
stóra skál og bætið mixt-
úrunni saman við og hrær-
ið. Smakkið til með salti,
pipar og sterkri sósu. Berið
fram volgt eða við stofu-
hita.
Grillað beikon-osta-kartöflusalat