Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.08.2018, Side 34
Þetta er David Crosby – hvernighefurðu það?“ spyr maðurinnsem hringir bjartri og klingj-
andi röddu; röddu sem þeir sem hlýtt
hafa á bandaríska dægurtónlist frá
sjöunda áratugnum kannast mæta
vel við. Söngvarinn og gítarleikarinn
Crosby gekk í hljómsveitina The
Byrds árið 1964 og ári síðar náði
hljómsveitin fyrsta sæti vinsældalist-
ans vestra með flutningi á lagi Bobs
Dylan, „Mr. Tambourine Man“. Árið
1968 var hann einn stofnfélaga ann-
arrar goðsagnakenndrar sveitar,
Crosby, Stills & Nash, ásamt Steph-
en Stills og Graham Nash, og ekki
löngu seinna var Neil Young farinn
að koma reglulega fram með þeim og
bættist eftirnafn hans þá við nafna-
rununa. Og Crosby, sem er orðinn 77
ára gamall, hefur verið á kafi í tónlist
allar götur síðan, að semja, leika og
syngja, með hinum ýmsu sveitum.
Hann hefur hlotið fjölda verðlauna,
verið tekinn inn í frægðarhallir
rokksins og söngvaskálda, hefur
fengið nýja lifur og glímir við sykur-
sýki eftir sukksamt líferni, en nú er
hann í fínu formi á leið til Íslands að
halda tónleika í Háskólabíói ásamt
hljómsveit sinni á fimmtudagskvöldið
kemur, og hringir í mig til að spjalla.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég
hringi í einhvern á Íslandi,“ tilkynnir
hann glaðlega. „Ég hef komið til nær
allra landa Evrópu að spila og syngja
en þetta verður fyrsta heimsóknin til
Íslands, ég hlakka til.
Ég veit lítið um Ísland annað en þá
gömlu sögn að Íslands sé grænt og
Grænland ísi lagt. Ég er viss um að
það er fallegt hjá ykkur núna.
En heyrðu,“ segir hann ákafur.
„Ég verð að spyrja þig að svolitlu. Er
það satt að silungsveiði á Íslandi sé
jafn góð og ég heyri?“
– Heldur betur. Og ef ekki betri!
Einhver sú besta sem þú getur kom-
ist í.
„Ég vildi gjarnan ná að veiða urr-
iða á Íslandi en veit ekki hvort það
tekst, ég verð bara í tvo daga á land-
inu. Ég var fyrir stuttu að eltast við
regnbogasilung í Montana, er ekkert
mjög flinkur en finnst það stórkost-
lega gaman. Það er töfrum líkast að
standa við fallega á í morgunsárið.“
Get enn sungið
David Crosby er á tónleikaferð sem
kann kallar Sky Trail, en það er einn-
ig heiti nýjustu sólóplötu hans, sem
kom út í fyrra.
„Ég kem fram með rafmögnuðu
hljómsveitinni minni, hún byggir á
gömlu hljómsveitinni minni CPR.
Auk mín er James Raymond sonur
minn í henni og spilar á hljómborð,
vinur minn Jeff Pevar leikur á gítar,
Michelle Willis á hljómborð og radd-
ar með mér, Mai Leisz er frábær
djassbassaleikari frá Eistlandi og þá
er Steve DiStanislao, sem leikur líka
með David Gilmour, á trommum.
Við munum spila nokkur lög frá
Crosby, Stills & Nash-tímabilinu og
önnur af Crosby, Stills, Nash &
Young-efnisskránum. Þá verður eitt-
hvað af lögum sem við Graham Nash
fluttum saman, nokkur af sólóplötum
mínum, og einhver ný.“
– Þú hefur verið svo lengi í brans-
anum að þú átt nokkrar kynslóðir
aðdáenda og þeir hljóta að eiga sér
ólík eftirlætislög.
„Svo sannarlega. Ég býð fólki iðu-
lega upp á að nefna óskalögin sín á
netinu og það koma vissulega upp
hundruð uppástunga. Við breytum
lagaskránni alltaf eitthvað milli tón-
leika.“
– Og þið komið fram á fjölda tón-
leika í hverri tónleikaferð, er það ekk-
ert erfitt? Ég heyri þó vel að röddin
er enn syngjandi tær.
„Ég skil ekki hvers vegna ég get
enn sungið en sú er svo sannarlega
raunin,“ segir Crosby og hlær.
Eins og að fá tíkall í kaup
– Þú leggur enn upp í langar tónleika-
ferðir um heiminn í stað þess að
liggja heima í hengirúminu með
tærnar upp í loft?
Hann hlær. Segir svo að í raun
neyðist hann til þess. „Gleðin er
vissulega blendin. Sá hluti ferðalag-
anna þegar ég er á sviðinu og syng, í
tvo til þrjá klukkutíma, er einskær
ánægja. Og skemmtilegri en ég get á
nokkurn hátt lýst með orðum. Hinn
hlutinn, hinir rúmlega 20 tímarnir í
sólarhringnum, er ekki eins skemmti-
legur. Maður er að heiman og býr á
hótelum, borðar misgóðan mat… ég
sakna þess að vera ekki heima hjá
fjölskyldunni. En sá tími þegar ég
syng fyrir tónleikagesti gera erfiðið
þess virði.“
– Færðu jafn mikið út úr því nú og
til dæmis á sjöunda áratugnum?
„Ég fæ líklega enn meira út úr því
núna, það er dásamlegt!
En svo er hitt að nú þurfum við
tónlistarmenn að ferðast helmingi
meira en áður því við fáum ekkert
greitt lengur fyrir plötur. Streymis-
veiturnar borga okkur ekkert. Fyrir
vikið hafa tekjur mínar minnkað um
helming; áður fór ég tvisvar á ári í
tónleikaferðir, nú fer ég fjórum sinn-
um. Þetta er fíflalegt en samt blá-
kaldur veruleiki sem ég fæ ekki
breytt.
Ein helsta breytingin í þessum
bransa á þessum langa tíma er líklega
þessi, að áður gátum við haft ágætar
tekjur af plötusölu. Nú fáum við ein-
hvern þúsundhluta af dal fyrir hvert
lag sem er spilað. Það er ekki neitt,
eins og ef maður ynni í viku og fengi
tíkall í kaup!
Þetta er heppilegt fyrir alla nema
tónlistarmennina sem skapa tónlist-
ina og lifa af henni. Vandamálið fyrir
okkur er að fyrirtækin hafa milljarða
dala í tekjur – en borga okkur smán-
arlega lítið fyrir tónlistina. Það er
ekki sanngjarnt.
En svo er hin hliðin sú að ég er
heppinn að geta enn ferðast um og
sungið á tónleikum.“
Alltaf að semja
„Tónlistin hefur fært mér bæði gleði
og tilgang í lífinu. Hún hefur gefið
mér ástæðu til að lifa, svo ég segi eins
og er; hún hefur reynst mér frábær-
lega,“ segir Crosby og hann kveðst sí-
fellt vera að semja ný lög.
„Ég er alltaf að semja. Stundum
einn, stundum með James syni mín-
um eða með vinum og öðrum meðspil-
urum. Hinn aðilinn kemur alltaf með
eitthvað nýtt í samspilið og það víkk-
ar möguleikana svo mikið út. Og það
er rosalega gaman.“
Crosby er auðheyrilega glaður og
hlakkar til að koma til Íslands. En
tónninn í röddinni harðnar þegar
hann fer að lokum að tala um stjórn-
mál í heimalandinu og er ekki sáttur.
„Ástandið hér er slæmt sem stend-
ur. Það er erfitt að vera bandarískur í
dag. Við skömmumst okkar fyrir
þennan náunga,“ segir Crosby og er
að tala um Donald Trump.
„Hann er hræðilegur, hefur skað-
leg áhrif á lýðræðið í þessu landi, á
samband okkar við umheiminn og
fólk sem við viljum samsama okkur
með. Við Bandaríkjamenn viljum
vera stoltir af landinu okkar en sem
sakir standa skömmumst við okkar
fyrir það,“ segir hann ergilega.
„Ég er heppinn að geta enn ferðast
um og sungið á tónleikum,“ segir
David Crosby. Hann er orðinn 77
ára gamall en nýtur þess að syngja.
Ljósmynd/Anna Webber
Tónlistin færir gleði og tilgang
Goðsögnin David Crosby kemur fram ásamt hljómsveit í Háskólabíói á fimmtudag og á efnisskránni verða meðal annars lög sem
Crosby, Stills, Nash & Young gerðu fræg. Crosby segist enn njóta þess að koma fram, meira en hálfri öld eftir að ævintýrið hófst.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
’ Sá hluti ferðalagannaþegar ég er á sviðinuog syng, í tvo til þrjáklukkutíma, er einskær
ánægja. Og skemmtilegri
en ég get á nokkurn hátt
lýst með orðum.
Hin víðfræga hljómsveit Crosby, Stills, Nash &Young í kynningarmynd frá 1970.
LESBÓK Borghildur Indriðadóttir verður með gjörninginn Hei Maey fyrirframan skipið Cape Race í Reykjavíkurhöfn á Menningarnótt kl.
18.08. Branislav Jovancevic leikur þar tónlist frá kl. 18.08 til 18.38.
Gjörningur við höfnina
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.8. 2018