Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.08.2018, Qupperneq 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.08.2018, Qupperneq 36
Fjölmargar sjónvarpsþáttaraðirbyrja vel en verða verri eftirþví sem á líður. Lopinn er teygður til að svara vinsældum og efniviðurinn líður fyrir. Sumar hríf- andi sögur hefjast á spennandi at- burðarásum án þess að höfundarnir hafi nokkra hugmynd um hvernig þær muni enda. Það er ekki einfalt að skrifa tugi þátta sem viðhalda sama gæðastigi. Sumar þáttaraðir forðast að vatns- þynna efniviðinn með því að segja sjálfstæðar sögur sem tengjast ekki í gegnum gegnumgangandi söguþráð heldur sameiginleg þemu eða efn- istök. Þessar svokölluðu safnþátt- araðir (anthology series) eru þá af- markaðar í einni seríu, eða jafnvel einum þætti, og segja það sem segja þarf án þess að vera með málaleng- ingar. Þetta snið er gott að því leyti að hægt er að segja hnitmiðaðar sög- ur og samt svara eftirspurn aðdá- enda þáttanna. Annar kostur er að sögurnar eru í viðráðanlegri stærð. Það er minni skuldbinding að horfa á einn þátt eða seríu en að hella sér í söguþráð sem spannar hátt í hundr- að þætti. Leikstjórinn Jordan Peele vinnur nú að þriðju endurlífgun The Twi- light Zone sem eru einir þekktustu safnþættir sjónvarpssögunnar. Hver þáttur er sjálfstæð saga og sameig- inlegt stef þeirra er hið undraverða og yfirnáttúrulega – það sem verður ekki útskýrt á hefðbundinn hátt. Black Mirror eru oft kallaðir The Twilight Zone nýrrar kynslóðar þótt efnistökin séu önnur. Hver þáttur er sjálfstæð dæmisaga um mögulegar hættur sem samfélaginu stafa af tækniþróun. Báðir þættirnir fela oft í sér mis- augljósan boðskap með dökkum und- irtónum og eiga það sameiginlegt að þeir enda oftar en ekki illa. Þar sem hver þáttur er sjálfstæður geta margir leikstjórar sett fjölbreytilegt handbragð á sameiginleg þemu. Þættirnir Fargo komu fyrst út ár- ið 2014 með það að markmiði að fanga andrúmsloft kvikmyndarinnar en segja sjálfstæða sögu. Þættirnir eru stjörnum prýddir og hafa hlotið mörg verðlaun, en seríurnar þrjár sem eru komnar út tengjast aðeins lauslega og ekki er samhljómur um hver þeirra sé best. Einn kostur safnþáttasniðsins fyrir Fargo er að mikið er um dauðsföll í þáttunum og styttri sögur halda áhorfandanum í óvissu um hverjir muni lifa af. Fyrr í vikunni kom út stikla fyrir The Romanoffs sem skarta meðal annars íslensku leikkonunni Heru Hilmarsdóttur. Hver þáttur verður sjálfstæð saga um fólk sem á það sameiginlegt að það telur sig til- heyra rússnesku Romanov keis- araættinni. Þættirnir Fargo tengjast lauslega innbyrðis milli sería. Sjálfstæðar sögur Safnþáttaraðir samanstanda af sjálfstæðum sögum. Þær forðast langdregna söguþræði og einbeita sér heldur að stuttum og hnitmiðuðum sögum í viðráðanlegri lengd. Arnar Tómas Valgeirsson arnart@mbl.is Ungur William Shatner tekst á við púkann á vængnum í einum eftirminnileg- asta þætti The Twilight Zone, Nightmare at 20.000 feet. Black Mirror tekur samtímamál fyrir í dystópískri framtíðarsýn. 36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.8. 2018 LESBÓK FÓLK Hinn afkastamikli Will Smith fagnar fimmtugsafmæli í næsta mánuði og mun hann stökkva úr þyrlu í teygju yfir Miklagljúfri á af- mælisdeginum. Uppákoman er tilkomin eftir áskorun sem Smith tók með því skilyrði að stökkið yrði gert til góðgerða. Hann hefur nú efnt til leiks þar sem þátttakendur komast í pott fyrir að leggja fram rúmar þúsund krónur eða meira. Einn heppinn aðdáandi verður svo dreginn út sem fær ásamt gesti að fagna afmælisdegi Smith með fjölskyldu hans og fær að fylgjast með stökkinu í eigin persónu. Smith hefur nú leikið í næstum fjörutíu mynd- um, en á næsta ári mun hann fara með hlutverk andans í leikinni endurgerð af Disney-myndinni Aladdín. Stekkur til góðs Will Smith á HM í Rússlandi. AFP KVIKMYNDIR Leikstjórinn Quentin Tarant- ino hefur valið leikara til að fara með hlutverk kung fu-goðsagnarinnar Bruce Lee í væntan- legri mynd sinni Once Upon a Time in Holly- wood. Fyrir valinu varð hinn 34 ára gamli Mike Moh, sem segist draga mikinn innblástur frá Lee. Moh hefur áður leikið í ýmsum minni verkefnum og lék síðast í Marvel-þáttunum In- humans, sem fengu afspyrnu lélega dóma. Myndin mun eiga sér stað undir lok sjöunda áratugarins og fjallar um morð Manson- fjölskyldunnar. Aðalleikarar í myndinni verða Leonardo DiCaprio, Brad Pitt og Margot Robbie. Moh leikur Lee Mike Moh. Tessa Thompson Lafði Tessa KVIKMYNDIR Tessa Thompson mun ljá cocker-spaniel-hundinum Freyju rödd sína í endurgerð Disn- ey-myndarinnar Hefðarfrúin og umrenningurinn. Myndin verður í bland leikin og tölvugerð og er áætlað að hún verði frumsýnd á nýrri streymisveitu Disney á næsta ári. Thompson hefur verið áberandi á skjánum upp á síðkastið, einna helst í hlutverkum sínum í þátt- unum Westworld og myndinni Thor: Ragnarok. FÓLK Hinn um- búðalausi Americ- an-Idol-dómari Simon Cowell hlýt- ur á næstu dögum stjörnu í gang- stéttinni á The Hollywood Walk of Fame. Tals- maður nefndar- innar sem sér um valið segir að Cowell hafi verið valinn vegna framlags síns til hæfileikasjón- varpsþátta í gegnum tíðina, auk þess sem hreinskilin gagnrýni hans hafi unnið hug og hjarta áhorfenda um allan heim. American Idol hóf göngu sína 2002 og síðan þá hafa ótal afsprengi litið dagsins ljós. Simon Cowell Cowell fær stjörnu FASTEIGNIR Rúmlega 230 fer- metra hús í Oregon, sem var heimili Bellu Swan í Twilight-myndunum, er nú til sölu fyrir 380 milljónir króna. Eigandi hússins hefur haldið mörgu óbreyttu síðan myndirnar voru teknar, sem hann segir vera þakklætisvott hússins fyrir tíma sinn í sviðsljósinu. Kristen Stewart lék Bellu Swan. Húsið til sölu American Crime Story Creeped Out Inside No. 9 The Terror Tales from the Crypt Aðrar safnþáttaraðir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.