Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.08.2018, Blaðsíða 6
Allar aftökur eru skelfilegaren að fara fram á dauða-refsingu yfir aðgerðasinna
eins og Israa al-Ghomgham, sem
er ekki einu sinni sökuð um of-
beldisfulla hegðun, er ómennska.“
Þessi orð er að finna í yfirlýs-
ingu sem Sarah Leah Whitson,
framkvæmdastjóri Mannréttinda-
vaktarinnar í Mið-Austurlöndum,
sendi frá sér í vikunni, en sam-
tökin mótmæla harðlega áformum
ríkissaksóknara í Sádi-Arabíu um
að fara fram á dauðadóm yfir téð-
um aðgerðasinna sem setið hefur
bak við lás og slá frá árinu 2015.
Hún var þá handtekin ásamt eigin-
manni sínum fyrir friðsamleg mót-
mæli, að sögn Mannréttinda-
vaktarinnar, sem óttast
fordæmisgildi málsins, en fjöldi
kvenna situr í fangelsi í landinu
fyrir þær sakir að hafa talað fyrir
mannréttindum.
Mannréttindavaktinni þykir líka
út úr korti af réttað sé í máli
Ghomgham á vettvangi hryðju-
verkadómstóls landsins.
Sömu örlög bíða eiginmanns
Ghomgham, Moussa al-Hashem, og
þriggja annarra karlmanna verði
þeir fundnir sekir. Ekki eru heim-
ildir fyrir því að kona hafi í annan
tíma verið dæmd til dauða fyrir
störf sín í þágu mannréttinda í
landinu.
Að minnsta kosti þrettán manns
sem barist hafa fyrir mannrétt-
indum og auknum réttindum kon-
um til handa hafa verið teknir
höndum í Sádi-Arabíu síðan í maí,
sakaðir um aðgerðir sem ógna
þjóðaröryggi. Sumir hafa verið
leystir úr haldi en aðrir sitja enn
inni án þess að þeim hafi verið birt
ákæra, að því er fram kemur á vef
breska ríkisútvarpsins, BBC.
Brotin ekki refsiverð
Mannréttindavaktin segir meint
brot Ghomgham ekki refsiverð, en
henni er meðal annars gefið að sök
að hafa tekið þátt í mótmælum, að
kyrja slagorð sem eru yfirvöldum í
Sádi-Arabíu andsnúin, að reyna að
hafa áhrif á skoðanir almennings
og að taka upp mótmæli og sýna
frá þeim á samfélagsmiðlum.
Ghomgham tilheyrir minnihluta
sjíamúslíma í landinu og hefur bar-
átta hennar fyrir réttindum þeirra
í Qatif-héraði verið súnníska meiri-
hlutanum, ekki síst stjórnvöldum,
þyrnir í augum. Sjíar njóta ekki
sömu réttinda og súnníar í Sádi-
Arabíu og hafa ekki sömu mögu-
leika á því að brjótast til mennta
og finna sér störf við hæfi. Arab-
íska vorið sneiddi ekki hjá Sádi-
Arabíu og gaf sjíum byr undir
báða vængi. Barátta þeirra fyrir
auknum réttindum hefur verið virk
síðan og var Ghomgham framar-
lega í flokki meðan hún gat enn
um frjálst höfuð strokið.
Málið þykir hafa varpað skugga
á hinn unga krónprins Sádi-
Arabíu, Mohammed bin Salman,
en hann hefur gefið sig út fyrir að
vera „nútímalegur umbótasinni“.
Hann hefur raunar fylgt þeim orð-
um eftir í verki; til dæmis með
efnahagsumbótum, með því að
opna kvikmyndahús, með því að
hneppa suma af ættingjum sínum í
varðhald vegna spillingar og síðast
en ekki síst með því að losa um
hömlur gagnvart konum, sem
mega nú til dæmis eftir langa
mæðu setjast undir stýri í landinu.
Á sama tíma hefur bin Salman
ekki farið í grafgötur með þá sann-
Kosta
mótmælin
hana lífið?
Israa al-Ghomgham situr í fangelsi í Sádi-Arabíu
og gæti átt á hættu að verða dæmd til dauða fyrir
aðild sína að mótmælum gegn stjórnvöldum.
Engin kona hefur verið tekin af lífi í landinu fyrir
aðkomu sína að baráttu fyrir mannréttindum.
AFP
Öll spjót standa nú á Mohammed bin Salman, krónprinsi Sádi-Arabíu, en hann hefur sagst vera maður umbóta.
færingu sína að Sádi-Arabía eigi
áfram að vera konungdæmi, þar
sem farið verði að hans forskrift.
Ekkert heyrst í prinsinum
Hvorki bin Salman né aðrir ráða-
menn í landinu hafa tjáð sig um
mál Ghomgham þrátt fyrir áskor-
anir, meðal annars frá Mannrétt-
indavaktinni. „Sé krónprinsinum í
raun og veru alvara með umbótum
ætti hann þegar í stað að láta til
sín taka og tryggja að engum að-
gerðasinna sé haldið að tilefnis-
lausu fyrir störf sín í þágu mann-
réttinda,“ segir Sarah Lea
Whitson í yfirlýsingu sinni.
Hún telur ekki ástæðu til bjart-
sýni. „Skýlaus valdníðsla kon-
ungdæmisins gerir almannatengl-
unum sem það hefur á sínum
snærum stöðugt erfiðara fyrir þeg-
ar kemur að því að sannfæra
bandamenn og hinn alþjóðlega við-
skiptaheim um það að ævintýrið
um „umbætur“ sé í raun og veru
að eiga sér stað.“
Ghomgham kemur næst fyrir
dóm 28. október næstkomandi.
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.8. 2018
Ekki liggur fyrir hvenær Israa al-
Ghomgham er fædd en talið er að hún
sé um þrítugt. Ekki hefur gengið vel að
afla upplýsinga um handtöku hennar og
fangavist en talið er að hún hafi verið
tekin höndum síðla árs 2015. Aðgerða-
sinnar í Sádi-Arabíu halda því fram að
hún hafi ekki haft aðgang að lögmanni fyrr en nú í sumar. Það
fæst þó ekki staðfest. Stuðningsmenn hennar birtu í vikunni
meðfylgjandi mynd af Ghomgham en þar er hún á barnsaldri.
Israa al-Ghomgham
Enginn lögmaður?
’
Ég hef áhyggjur af því hversu vítt hryðjuverk
eru skilgreind og notkun Sádi-Arabíu á
hryðjuverkalöggjöfinni frá 2014.
Ben Emmerson, talsmaður Sameinuðu þjóðanna,
eftir heimsókn til Sádi-Arabíu á síðasta ári.
ERLENT
ORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is
BANDARÍKIN
BAKERSFIELD
Jonathan Davis, söngvari
nýmálmbandsins Korn,
hefur tjáð sig opinberlega
um andlát fyrrverandi
eiginkonu sinnar en Deven
Davis lést 17. ágúst sl. 39
ára að aldri. Davis segir
Deven, sem var fyrrver-
andi fyrirsæta, hafa verið
einstaka eiginkonu, móður
og vin en hún hafi glímt
við alvarleg andleg veikindi
undanfarinn áratug, auk
þess sem lyfjafíkn hafi fært
hana í fjötra. „Hún hafði
risastórt hjarta.“
BRETLAND
LUNDÚNIR Eid
Aljazairli var ósyndur
þegar hann fl úði frá
Sýrlandi til Bret-
lands fyrir tveimur
árum. Nú æfi r hann
sund í fjórar klukku-
stundir á dag og
hefur sett stefnuna á
Ólympíuleikana. Fyrir-
myndin er bandaríska
goðsögnin Michael
Phelps, sem unnið
hefur fl est ólympíugull
allra, en Aljazairli, sem
er 24 ára, heillaðist
af honum eftir að
hafa séð myndbönd á
YouTube. Áður
en hann féll
fyrir sundinu
nam Aljaza-
irli endur-
skoðun.
INDÓNESÍA
SÚMATRA 44 ára gömul kona sem aðhyllist búddisma hefur verið dæmd í 18
mánaða fangelsi fyrir að biðja húsbændur í mosku í grennd við heimili sitt að lækka í
bænakallinu, eða adzan eins og það nefnist. Hefur dómurinn vakið hörð viðbrögð og
kallað hefur verið eftir breytingu á umdeildum guðlastslögum í landinu, meðal annars
af hálfu trúarleiðtoga múslíma, sem sjá ekki að hatur hafi búið að baki beiðni konunnar.
JAPAN
TÓKÍÓ Hirohito keisari sýndi iðrun og
hafði misst alla lífslöngun síðustu árin sem
hann lifði, ef marka má dagbókarfærslur
sem nýlega voru gerðar opinberar. „Það
hefur engan tilgang að draga úr vinnuálagi
og lifa lengur. Það myndi bara auka líkurnar
á því að ég heyrði eitthvað sem nístir inn
að beini,“ skrifar Hirohito árið 1987 og á þar við árásina á Pearl Harbor og þátttöku
Japana í seinni heimsstyrjöldinni. Keisarinn sálaðist tveimur árum síðar.