Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.08.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.08.2018, Blaðsíða 18
O ddný er sjálf fædd og uppalin í Reykjavík en segist hafa lært að meta náttúruna þegar hún stundaði viðskiptanám við Há- skólann á Bifröst og í sum- arbústaðaferðum í æsku. „Ég var á Bifröst í þrjú ár og bjó einn veturinn í bústað í Saurdal. Á hverjum morgni, á leið minni í skólann, gekk ég í gegnum óspillt hraunið og fannst það vera því- lík forréttindi. Pálmi var sendur í sveit á níunda aldursári og eftir þriðja sumarið í sveitinni ákvað hann að ílengjast þar. Hann ólst því upp á sauðfjárbúi í Suðursveit, var eitt ár í bænda- skóla og átti sér alltaf þann draum að verða bóndi,“ segir Oddný og bætir við að þau hjónin séu bæði miklir náttúruunnendur. Í Berufirðinum reka þau áfram fyrirtæki sitt, Geisla hönnunarhús, sem sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu á umhverfisvænum leikföngum, minjagripum og gjafavöru. Vörurnar eru gerðar úr viði og öðrum náttúrulegum hráefnum og eru allar framleiddar á verkstæðinu þeirra, sem nú er flutt í sveitina þar sem þau vinna að því að byggja upp draumaveröldina sína. Frá Kaliforníu til Kópavogs Oddný Anna er menntaður viðskiptafræðingur og Pálmi er iðnhönnuður. Leiðir þeirra lágu fyrst saman þegar þau störfuðu bæði hjá stoð- tækjafyrirtækinu Össuri en þar byrjaði Oddný að vinna að loknu námi. Árið 2003 fluttist Oddný til Kaliforníu þar sem hún starfaði sem mark- aðs- og almannatengslastjóri Össurar í Banda- ríkjunum en Pálmi, sem var deildarstjóri þróun- ardeildar fyrirtækisins á Íslandi, flutti út árið eftir og tók við sem deildarstjóri þróunardeild- arinnar hjá Össuri í Bandaríkjunum. Þau hjón eiga saman synina Róbert Björn (12 ára), Brynjar Örn (10 ára) og Sævar Kára (4 ára). Fyrir átti Pálmi soninn Gísla Jóhann (28 ára). Þau fluttu aftur til Íslands árið 2010 og komu sér vel fyrir í Kópavoginum. Þau höfðu byggt sér sumarbústað í Kjósinni og fóru þang- að við hvert tækifæri sem gafst. Vildu komast út í sveit Oddný segir að þau Pálmi hafi fljótlega verið farin að ræða það að flytja út í sveit. Þau hafi skoðað jarðir víða en rétta jörðin hafi þurft að uppfylla ákveðin skilyrði. „Ég var til dæmis ákveðin í því að ef ég myndi flytja út á land þá yrðu að vera há fjöll og ég vildi ekki vera lengst inni í dal því þá fengi ég innilokunarkennd. Við skoðuðum meðal annars jörð í Eyjafirði og norður í Skagafirði. Pálmi var með alls konar pælingar sem kröfðust ákveðinna jarðgæða sem hann setti fram og kynnti undir heitinu Eden- garðar Íslands og síðar Fiskaland.is, sem var ákveðinn drifkraftur í þessari leit.“ Svo leið tíminn án þess að þau væru mikið að pæla í þessu. „Þar til á föstudegi í lok apríl síð- astliðins,“ segir Oddný. Þá sendi Pálmi henni vefslóð með upplýsingum um jörðina Gautavík í Berufirði en Oddný segir að sér hafi nú ekki al- veg litist á blikuna. „Mér fannst þetta svo rosa- lega langt í burtu og spurði Pálma bara hvort hann ætlaði að flytja með mig í langt-í- burtistan,“ segir Oddný og skellir upp úr. Á sunnudeginum, tveimur dögum síðar, þegar fjölskyldan var á heimleið úr bústaðnum í Kjós- inni bað Pálmi Oddnýju að skoða aftur upplýs- ingarnar um Gautavíkina, gefa henni annað tækifæri. Hún hafi því farið að kíkja á þær í sím- anum sínum. „Allt í einu small allt saman í hausnum á mér. Við vorum stödd á þeim stað í okkar lífi að þetta var rétti tíminn til að taka stökkið. Jörðin hafði líka bara allt sem við vild- um og tikkaði í öll box. Há og tignarleg fjöll, ár, læki og fossa, er alveg niðri við sjó við sögu- fræga vík, með stór og vel hirt tún og ofboðslega fallega náttúru allt um kring. Svo hafði hún húsakostinn sem skipti líka miklu máli, því við vorum ekki tilbúin í að þurfa að byrja á því að fara út í stórfelldar framkvæmdir eins og hafði verið staðan á mörgum af þeim jörðum sem við höfðum skoðað. Það þurfti ekkert að gera í Gautavíkinni til að hægt væri að flytja inn. Þarna var lítið og sætt íbúðarhús, góð gripahús og stór hlaða að ógleymdri vélaskemmunni sem var fullkomin fyrir fyrirtækið okkar, Geisla hönnunarhús. Við gátum bara flutt beint inn.“ Oddný segir að hlutirnir hafa síðan gerst hratt. „Þessi bílferð heim úr bústaðnum var á sunnudagseftirmiðdegi og akkúrat viku síðar vorum við búin að ganga frá þessu,“ segir hún. „Á einni viku vorum við búin að setja húsið okkar í Kópavogi á sölu, fara hingað austur með strákana, skoða eignina, leikskólann og skólann, tala við nágrannana, fá bindandi tilboð í okkar eign og gera bindandi tilboð í Gautavíkina. Þetta tók sem sagt sjö daga frá því ég gaf Gautavík- inni annan séns,“ segir Oddný og hlær. Nánast allar upplýsingar sem bættust við studdu enn frekar þessa ákvörðun, til dæmis að Djúpivogur er eini Cittaslow bærinn á Íslandi og að HA- VARÍ frumkvöðlanna Svavars (sem kallar sig Prins Póló) og Berglindar á Karlsstöðum væri rétt hjá, en þar gistum við þegar við fórum aust- ur. Þau voru svo jákvæð að það var ekki nokkur vafi í mínum huga að þetta væri rétt ákvörðun þegar við skrifuðum undir kauptilboðið.“ Saknar ekki umferðarinnar Ekki var langur tími til stefnu því áætlaður flutningur var í lok júní. Næstu vikur fóru því í að pakka og undirbúa flutninginn. „Pálmi fékk leyfi eigenda til að fara austur til að hreinsa og mála vélaskemmuna svo hún væri tilbúin þegar við kæmum, því við máttum ekki við mörgum dögum þar sem starfsemi fyrirtækisins lægi niðri, sérstaklega ekki svona yfir háannatím- ann,“ segir Oddný. Hún bætir við að þetta hafi verið alveg heljarinnar mál. „Ég meina, við erum með framleiðslufyrirtæki, þrjú börn og að fara í allt annars konar líf og vildum undirbúa þetta vel.“ Fjölskyldan lagði af stað austur í Berufjörð- inn föstudagskvöldið 29. júní á tveimur smekk- fullum bílum, nokkrum klukkutímum eftir að búið var að skrifa undir kaupsamning á húsinu þeirra í Kópavoginum. „Búslóðin var þá komin í gám, 40 feta extra háan,“ segir Oddný og skellir upp úr. „Ég pantaði gám hjá Eimskip sem átti að fara sjóleiðina því þeir eru eiginlega hættir landflutningum á búslóðagámum. En skipið bil- aði og svo bilaði skipið sem hann átti að fara í í staðinn svo á endanum þurfti að keyra gáminn sem mætti á svæðið daginn á undan okkur.“ Um sjö klukkutíma akstur er á milli höf- uðborgarinnar og Gautavíkur ef lítið er stoppað. Hún segir fjarlægðina vissulega mikla en það taki aðeins klukkutíma að keyra til Egilsstaða um Öxi og um einn og hálfan út á Höfn þaðan sem hægt sé að fljúga í bæinn ef svo beri undir. Stærsti ókosturinn sé hvað það sé dýrt að fljúga innanlands og Oddný segir það vissulega hafa verið dálítið áhyggjuefni til að byrja með. En kostirnir séu svo miklu fleiri. Og talandi um akstur, þá segist Oddný ekki sakna umferð- arinnar í bænum. „Ó, nei, ég var nú alveg komin með nóg af henni. Undanfarin tvö ár var ég búin að vinna ýmis störf nálægt og í miðbænum og ef ég var ekki farin af stað fyrir klukkan fjögur þá náði ég ekki að sækja barnið í leikskólann fyrir klukkan hálffimm. Og á föstudögum sat maður kannski alveg í klukkutíma í bílnum. Fastur í mengun,“ segir Oddný og bætir við að hún hafi verið farin að þrá að komast í burtu. Út úr um- ferðinni og menguninni. „Það hefur gengið vel að koma okkur fyrir; við Pálmi erum bæði svona fólk sem er alltaf að. Við viljum klára hlutina og svo var mikil hjálp í félögum okkar sem komu með okkur hingað austur til að hjálpa okkur fyrstu dagana. Þetta hefur auðvitað verið heilmikil vinna, sérstaklega að koma fyrirtækinu og framleiðslunni fyrir á nýjum stað, en gaman, það er gaman að koma sér fyrir á stað sem mann langar að búa á. Við höfum einhvern veginn alltaf verið á leiðinni í burtu frá þeim stöðum sem við höfum átt heima á hingað til og vitað að þeir væru einhvern veg- inn ekki endanlegu staðirnir okkar. En eftir fyrstu nóttina hér fannst okkur við bara alltaf hafa átt heima hérna og við Pálmi sögðum bæði: Nú erum við komin heim! Maður sefur svo vel hérna; í kyrrðinni og hreina loftinu og svo höf- um við verið einstaklega heppin með veður.“ Oddný segir að það sé búinn að vera mikill gestagangur hjá þeim; fjölskylda, vinir og kunn- ingjar hafi komið í heimsókn og eins hafi margir úr sveitinni heilsað upp á þau og þau kíkt við á „Á ég í alvörunni heima hérna?“ Að flytja fimm manna fjölskyldu með allt sitt hafurtask og fyrirtæki úr Kópavoginum austur á Berufjörð gæti vaxið einhverjum í augum. En hjónin Oddný Anna Björnsdóttir og Pálmi Einarsson afgreiddu kaup og sölu á einni viku og fluttu um mánuði síðar. Fjölskyldan nýtur samverunnar í friðsælli sveitasælunni og stefnir á að verða sem mest sjálfbær. Guðrún Óla Jónsdóttir gudruno@mbl.is Úr einkasafni Oddný og Pálmi ásamt sonum sínum Róberti, Brynjari og Sævari. VIÐTAL 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.8. 2018

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.