Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.08.2018, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.08.2018, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.8. 2018 FERÐALÖG Austur-Tímor er fyrsta þjóðin sem fékk sjálfstæði á þessari öld, árið 2002. Landið, sem er aðeins 15.410 ferkílómetrar, er í dag öruggt en allir inn- viðir eru í lamasessi og vegir lélegir. Landið var undir stjórn Portúgala frá sextándu öld fram til 1975 en eftir það laut það stjórn Indónesíu. Við tóku áratugir sem einkenndust af ófriði og ofbeldi en friður ríkir nú í þessu landi sem telur rúmlega milljón manns. Aðeins um sextíu þúsund ferðamenn koma þangað árlega. Ef þú keyrir meðfram ströndinni er ólíklegt að þú rekist á annan ferðamann, en nauðsynlegt er að leigja bíl þar sem almennings- samgöngur eru ekki góðar. Landið er mjög dýrt að heimsækja; bæði er mjög dýrt að komast þang- að og eins eru hótel og uppihald líka í hærri kant- inum. Ferðamenn eru margir hverjir að kanna undir- djúpin en landið er paradís fyrir kafara, enda í miðju kóralrifi á milli Indónesíu og Ástralíu. AUSTUR-TÍMOR Paradís kafara Í Austur-Tímor get- ur ferðamaðurinn notið þess að kafa í undirdjúpunum og ferðast um landið sem fáir heimsækja. Thinkstock Þangað sem fæstir fara Fátt er verra á ferðalögum en að vera umkringd öðrum ferðamönnum. Sem betur fer eru enn til lönd í heiminum sem bjóða upp á ævintýralega áfangastaði en eru ekki yfirfull af ferðamönnum. Hvernig væri að fara á framandi slóðir, þangað sem nærri enginn fer? Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Sómalía er ekki ferðamannaland, enda einn hættulegasti staður heims; stríðshrjáð land þar sem óöld og ofbeldi er daglegt brauð. Margar þjóðir vara þegna sína við ferðalögum þangað vegna ofbeldis og mannrána. Hins vegar er horn á Sómalíu sem öruggt er að heim- sækja og nefnist Sómalíland. Það er fyrrverandi breskt yfirráða- svæði í norðvesturhluta Sómalíu. Í Sómalíu eru nánast engir túr- istar; aðeins hermenn og blaða- menn. En í Sómalílandi, sem er ekki viðurkennt sjálfstætt ríki, finnur þú nokkra ævintýragjarna ferðalanga. Vinsælt er að skoða þar fornar hellamyndir. Þar er hægri umferð en samt sem áður eru bílar þar með stýrið hægra megin. SÓMALÍA Thinkstock Sómalíland fyrir ævintýragjarna Fornar hellamyndir heilla ferðamenn sem fara til Sómalílands. Í Kyrrahafinu er eyjaklasinn Tonga. Eyjarnar eru 169 talsins og þar af eru 96 byggðar. Þetta litla konungsríki er mitt á milli Nýja-Sjálands og Havaí. Árlega heimsækja um sextíu þúsund ferðamenn eyjarnar. Ef þú átt leið þar um skaltu ekki sleppa því að synda með hnúfubökum; það verður ógleymanleg reynsla. Einnig er hægt að snorkla, synda í hellum, sigla og veiða svo eitthvað sé nefnt. Á nokkrum af eyjunum muntu sjá sjón sem þú sérð hvergi ann- ars staðar; svín sem vaða út í sjó í leit að sjávarfangi. Svínin eru víst lunkin við veiðarnar. TONGA Thinkstock Hnúfubakar og svín Svínin á Tonga leita út í sjó eftir æti. Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is Nýjar vörur Matardiskur 2.950 Forréttardiskur 2.550 Ljós 21.000 Glas 1.550 Ljós 17.000 30-50%afsláttur afvöldumvörum

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.