Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.08.2018, Blaðsíða 25
Skerið kjúklinginn í bita og kryddið með
salti og pipar. Hitið olíu á pönnu og steikið
kjúklinginn á pönnunni.
Setjið kjúklinginn í ofnfast mót og beik-
onbitana yfir. Skerið banana í sneiðar og
setjið yfir.
Hellið chilírjómasósunni yfir allt og stráið
salthnetum yfir.
Setjið í 200°C heitan ofn í 15 mínútur.
Í þennan rétt er hægt er að kaupa tilbú-
inn kjúkling og rífa niður til að flýta fyrir.
Frá fallegtogfreistandi.is
26.8. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
Bananaostakaka
Botn
300 g kex með vanillukremi (ca 25 kexkökur)
120 g smjör
Bræðið smjör og myljið kex í matvinnsluvél.
Blandið þessu saman og setjið í bökunar-
form með lausum botni. Þrýstið blöndunni í
botninn og aðeins upp í hliðar á forminu.
Setjið inn í ísskáp á meðan fyllingin er búin
til.
Ostakaka
400 g rjómaostur, við stofuhita
2⁄3 dl sykur
½ dl maízenamjöl eða önnur sterkja
3 egg
1 vanillustöng, klofin í tvennt og kornin innan
úr báðum helmingunum skafin úr með beitt-
um hníf
1 dl rjómi
3 meðalstórir mjög vel þroskaðir bananar,
stappaðir
Borin fram með
karamellusósu (t.d. dulce de leche)
þeyttum rjóma
Stillið ofn á 160°C við undir/yfirhita. Þeytið
rjómaost þar til hann verður mjúkur, og
smátt og smátt er sykri og sterkju bætt út í.
Þá er eggjum bætt út í, einu í senn. Því næst
er banönum og vanillukornum bætt út í. Að
lokum er rjómanum smátt og smátt bætt
við og þeytt á meðan. Hellið blöndunni yfir
kexbotninn. Bakið við 160°C í 45-55 mín-
útur, eða þar til að kakan er bökuð að öllu
leyti nema hún má vera dálítið blaut í miðj-
unni. Þá er slökkt á ofninum og henni leyft
að standa í ofninum í a.m.k. hálftíma í við-
bót. Notið álpappír yfir kökuna ef hún fer
að dökkna mikið þegar líður á bökunartím-
ann. Athugið að ostakakan verður ekki
beint stíf þegar hún er tilbúin heldur getur
hún „dansað“ svolítið í miðjunni þótt hún
sé tilbúin. Síðan sígur kakan dálítið og jafn-
ar sig. Það koma oft sprungur í yfirborðið
en það er algengt og skiptir litlu fyrir bragð-
ið. Ostakakan er látin kólna í forminu og
sett í ísskáp yfir nótt eða helst í 6-8 tíma áð-
ur en hún er borin fram. Borin fram með
karamellusósu og þeyttum rjóma og
skreytt með bananasneiðum.
Frá eldhussogur.com
Í banana-
stuði
Bananar eru sætir, mjúkir og saðsamir og henta vel þegar
hungrið sverfur að. Alls konar réttir innihalda þennan
suðræna ávöxt, bæði aðalréttir, salöt, kökur og ís.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
1 banani, skorinn í litla bita og frystur
½ tsk vanilluextrakt
½ dl mjólk
frosin bláber til skrauts
rifið dökkt súkkulaði til skrauts
Skerið niður banana og látið í frysti í
nokkrar klukkustundir.
Setjið allt í blandara í nokkrar mínútur.
Þegar þetta er orðið silkimjúkt þá er ísinn
klár. Gott er að bæta við nokkrum blá-
berjum og rífa dökkt súkkulaði ofan á ís-
inn.
Einnig er hægt að setja smá hnetusmjör
saman við ísinn.
Frá evalaufeykjaran.is.
Bananahamingja
Fyrir 4
900 g kjúklingabringur
200 g beikon
2 bananar
200 ml chilísósa, extra sterk
500 ml rjómi
1½ dl salthnetur
salt
pipar
Blandið chilísósu og rjóma saman í skál og
blandið vel. Steikið beikon þar til stökkt og
skerið í bita.
Kjúlli með rjómasósu,
bananasneiðum og beikoni