Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.08.2018, Side 12
VIÐTAL
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.8. 2018
Þrátt fyrir ungan aldur er hinn 18 áragamli Már Gunnarsson ekki aðeins einnfremsti sundmaður Íslendinga, þar sem
hann slær hvert Íslandsmetið á fætur öðru í
lauginni, heldur er hann í ströngu tónlist-
arnámi þar sem hann er núna að vinna að út-
gáfu sinnar fyrstu plötu. Már er einn þeirra
fjögurra íslensku íþróttamanna sem „stefna að
hinu ómögulega“ með því að komast á ólymp-
íumót fatlaðra í Tókýó í Japan árið 2020, en
Morgunblaðið og mbl.is munu fylgja þessum
íþróttamönnum eftir næstu árin fram að
keppni. Már og hinir íþróttamennirnir eru ný-
byrjuð í herferð með Íþróttasambandi fatlaðra
og Toyota sem ber yfirskriftina „Start your
impossible“, en Már á möguleika á að komast á
ólympíumót fatlaðra eftir tvö ár.
Blaðamaður ekur sem leið liggur suður með
sjó, til að hitta Má sem býr í Keflavík ásamt
foreldrum sínum og systkinum. Heimilið hefur
listrænt yfirbragð enda móðir hans Lína Rut
Wilberg listakona. Faðir hans, Gunnar Már
Másson flugmaður, hefur lagt flugið á hilluna
og ferðast um allt með Má.
„Pabbi sér um að „pikka“ í höfuðið á mér
með priki þegar ég nálgast bakkann svo ég
klessi ekki á hann. Það verður að vera einhver
á sitthvorum bakkanum með prik,“ segir Már
en hann er með eins prósents sjón. Már fædd-
ist með aðeins betri sjón, 7-8 prósent, en hún
hefur minnkað með aldrinum. Orsökin er sjúk-
dómur í augnbotnum, Leber congenital amau-
rosis, LCA.
Gunnar býður upp á kaffi og við tyllum okk-
ur í bárujárnshúsi í einum fallegasta bæjar-
hluta Keflavíkur.
„Ég hef búið nokkuð víða en hefur held ég
hvergi liðið jafn vel. Ég fæddist í Reykjavík og
við bjuggum svo meðal annars í Lúxemborg í
sex ár en hér í Keflavík hef ég búið frá 12 ára
aldri. Fyrir utan að það er frábært að vera ná-
lægt flugvellinum þar sem ég ferðast mikið út
af sundmótum þá er frábært sundlið hérna,
góð laug, tónlistarskólinn mjög góður og góður
andi í bæjarfélaginu.“
Má langaði alltaf til að æfa íþróttir. Hann
hafði gaman af fótbolta og segir glettnislega að
hann fljótlega áttað sig á því þegar hann var að
leika sér með boltann úti í garði að það væri
betra að vita hvert hann væri að skjóta til að
geta lagt boltann fyrir sig.
„Þegar við fluttum heim frá Lúxemborg fór
ég beint í að æfa sund og fann strax að það
hentaði mínum karakter og líkama vel. Í sundi
þarf mikla einbeitingu og þar sem ég hef hana
og er mikill markmiðamaður fann ég að það að
geta stefnt að einhverju var frábært. Fyrir ut-
an Ólympíuleikana 2020 stefni ég núna á að
komast á heimsmeistaramótið í Malasíu á
næsta ári og komast þar í úrslit í hverri grein.“
Nýjustu met Más eru frá Evrópumóti fatlaðra
í Dublin í ágúst en þar setti hann alls sex Ís-
landsmet.
Bóka- og tungumálamaður
Sundæfingarnar eru stífar, níu æfingar á viku,
en í kringum æfingarnar smíðar hann aðra
dagskrá; tónlistaræfingarnar, en Már er nemi
í tónlistarskólanum í bænum og píanónámi hjá
Þóri Baldurssyni. Ný plata Más, Söngur fugls-
ins, verður jafnframt útskriftarverkefni hans
frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
„Ég er mjög ánægður með að FS tók vel í að
útskriftarverkefni mitt yrði ekki hefðbundin
ritgerð, enda gagnast það mér lítið fyrir það
nám sem ég ætla í; skapandi nám í tónlistarhá-
skóla erlendis. Enda er svo margt sem lærist í
því ferli að skipuleggja plötuútgáfu og útgáfu-
tónleika, bæði skapandi hliðin og svo allt sem
tengist viðskiptahlutanum og skipulagi.“
Á plötunni eru 14 lög. Már sér um lagasmíð-
arnar og vinur hans í Lúxemborg, Tómas Eyj-
ólfsson, er textahöfundur. Auk þess sem Már
syngur sjálfur mikið á plötunni syngja systir
hans, Ísold Vilborg, Salka Sól, Villi Naglbítur
og Ívar Daníelsson. Einnig syngur ein þekkt-
asta söngkona Póllands, Natalia Prybysz, á
plötunni. Útgáfutónleikar verða bæði í
Reykjavík og Keflavík.
Hið óvenjulega er að öll vinnan fer fram í
Póllandi en á síðasta ári keppti Már í al-
þjóðlegri söngvakeppni í Kraká á vegum
Lionsklúbbsins fyrir blinda og sjónskerta.
Már lenti þar í þriðja sæti og öðlaðist dýrmæt
tónlistarsambönd þar ytra í kjölfarið, meðal
annars við einn þekktasta útsetjara Póllands,
Hadrian Tabecki, sem núna stjórnar upp-
tökum og útsetur plötu Más. Söngur annarra
söngvara plötunnar var tekinn upp í Keflavík
og sendur út. Már fór aftur til Póllands í sumar
og spilaði á stórri útihátíð í Kraká. Þess má
geta að hann tók einnig þátt í góðgerðartón-
leikum á vegum einnar þekktustu leikkonu
Pólverja, hinnar margverðlaunuðu Önnu
Dymnu. Hún var svo ánægð með söng hans að
hún óskaði eftir því að Már kæmi að ári og
spilaði aftur.
Hvernig gengur að finna tíma til að sinna
þessu öllu, sundinu, tónlistarskólanum og
menntaskólanum? Ertu framkvæmdaglaður?
„Þetta er meira en 100 prósent vinna en ég
er á þeirri skoðun að ef maður hefur gaman af
því sem maður gerir þá sé allt í lagi að vera
önnum kafinn. Um leið og ég kom heim af síð-
asta móti fór ég að undirbúa tónleika fyrir
Ljósanótt þar sem ég spila með átta drengjum
við smábátahöfnina 31. ágúst kl. 19.30. Eins og
Georg Bjarnfreðarson myndi segja þá er ég
bæði „doer og thinker“, segir Már og hlær.
„Hafi maður gaman af því sem maður gerir þá
verður erfiðið ósjálfrátt auðvelt.“
Blaðamaður fær einkatónleika þegar Már
sest við píanóið og spilar og syngur. Röddinni
er erfitt að lýsa á prenti en þvílík rödd, þvílík
lög er það sem fer um hugann, þarna er aug-
ljóslega á ferð framtíðarstjarna. Tónlist Más
er afar fjölbreytt, popp og rokk í grunninn en
inn í það slæðist alls konar, allt frá þungarokki
upp í létt og kósí lög, instrúmental tónlist og á
nýju plötunni er meira að segja þungt þjóðlegt
víkingalag sem kallast Vigdís og er tileinkað
fyrrverandi forseta landsins.
Ertu alæta á tónlist sjálfur?
„Ég hlusta nánast ekkert á tónlist! Ég
hlusta aðallega á bækur, algjör lestrarhestur,
er núna að hlusta á Game of Thrones.“
Faðir Más skýtur inn í þar sem hann ber
fram karamellur að Már sé mikill tungumála-
maður, afar góður í íslensku, sem heyrist vel á
orðfærinu, hann kann frönsku, lúxemborgsku,
þýsku og dönsku. Áhugamálin eru heldur alls
ekki upptalin því Már veit nákvæmlega allt um
flugsögu Íslendinga. Sem barn flugmanns ólst
hann upp við að fara í flugskýli og skoða flug-
vélar og blaðamaður reynir að reka hann á gat,
það er einfaldlega ekki hægt. Hann kann öll
ártöl og staðreyndir um hver flaug fyrst hvaða
flugvél og hvert og hann veit meira að segja í
hvaða röð íslensk flugfélög hafa verið stofnuð
og farið á hausinn! Og ekki er lítið að vita þar.
„Hljóðheimurinn hefur auðvitað komið inn
hjá mér í stað sjónarinnar og ég þarf auðvitað
að reiða mig á það í mínum ferðum og það
gengur vel. Nú er reyndar svolítil hætta af raf-
bílum sem lítið heyrist í og ég varð næstum
fyrir einum um daginn. Að vera blindur sund-
maður þýðir líka að það er ákveðinn galli að ég
hef aldrei séð neinn synda bringusund, flug-
sund eða baksund en þjálfararnir útskýra
þetta fyrir mér og sýna mér hreyfingarnar á
bakkanum með því að grípa í hendur og fætur.
Þannig finn ég hvernig þetta er gert. Sundið
hefur gert mikið fyrir mig andlega og lík-
amlega og frábært fólk sem ég hef kynnst.“
Már segir að þegar kemur að sjóninni líti
hans þó alls ekki á sig sem fatlaðan ein-
stakling. „Ég vil helst henda öllum þessum
orðum út úr kerfinu, að vera blindur, fatlaður,
heyrnarlaus, samkynhneigður, gagnkyn-
hneigður, svartur, hvítur, fjólublár … nei það
er víst ekki til, en við erum öll bara fólk að tak-
ast á við lífið eins og það er og það er best að
einblína á það. Vissulega er ég sá Már sem ég
er meðal annars vegna þess að sjón mín hefur
verið slæm. En allt sem ég hef gert hefur gert
mig að þeim persónuleika sem ég er, tónlistin,
sundið, að búa erlendis. Maður hefur lent í
ýmsu en það hefur styrkt mig.“
Einn fremsti sundmaður Ís-
lands er ekki aðeins með hæfi-
leika í lauginni heldur er hann
vonarstjarna í tónlist og
skipuleggur sína fyrstu sóló-
plötu og útgáfutónleika.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Már er ótrúlegur
söngvari, píanóleikari
og lagahöfundur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Erfiði er auðvelt ef það er gaman
Már sló sex Íslands-
met í Dublin í ágúst.
„Ég er á þeirri skoðun að ef maður hefur
gaman af því sem maður gerir þá sé allt í lagi
að vera önnum kafinn. Um leið og ég kom
heim af síðasta móti fór ég að undirbúa tón-
leika fyrir Ljósanótt þar sem ég spila með
átta drengjum við smábátahöfnina. Eins og
Georg Bjarnfreðarson myndi segja þá er ég
bæði „doer og thinker,“ segir Már.