Jökull


Jökull - 01.01.2004, Page 122

Jökull - 01.01.2004, Page 122
erum til og fer sínu fram án tillits til athafnagleði stjórn- málamanna með tímaskyn að hámarki fjögur ár. Það skiptir máli vegna þess sköpunarsaga landsins greinir frá viðburð- um sem eru stórbrotnari en nokkuð mannlegt auga hefur skynjað. Það skiptir máli vegna þess að enginn getur spáð hvar sístarfandi skapari landsins tekur næst til hendi. Það skiptir máli vegna þess að það eru örlög okkar að lifa í þessu landi og við neyðumst til að hliðra til fyrir landinu því land- ið mun ekki hliðra til fyrir okkar. Sambúð okkar við landið hlýtur því að verða flókin og áhættusöm, en við getum ekki lifað af án þess að taka áhættu. Þess vegna reynum við að minnka áhættuna með margumtöluðu tímaskyni, með því að læra af sögunni. Lausnarorðið er nákvæmlega það sama og gengur og gerist á markaðstorgi hlutabréfa, við dreifum áhættunni. Fjárfesting til virkjunar við Kárahnjúka verð- ur að minnsta kosti 100 milljarðar, sennilega meiri þegar öll kurl koma til grafar, og allar reglur um dreifingu áhættu eru þverbrotnar. Ákvörðunin að virkja við Kárahnjúka er sennilega gálausasta fjárfesting á heimsbyggðinni miðað við fjölda fólksins, sem þarf að borga brúsann ef illa fer. Ofan á þetta bætist að einstæðum náttúruverðmætum verður fórnað til þess eins að misvitrir stjórnmálamenn geti lofað leikjum og brauði fyrir næstu kosningar. Sannleikurinn er sá að öll álitamála, sem með einhverj- um hætti snerta verklega framkvæmd auka áhættu fjárfest- ingarinnar. Þeim mun fleiri sem álitamálin eru þeim mun meiri verður áhættan. Og álitamálin varðandi Kárahnjúka- virkjun hrannast upp. Ég hefi minnst á hættur vegna hegð- unar furðulegs lands. Þar við bætist röskunin sem virkjunin veldur á landinu með stórkostlegum flutningi jökulvatna í nyja farvegi og rykmakkar frá víðáttumiklu lóni með breyti- legri vatnshæð. Þegar öll þessi álitamál koma saman að viðbættum efa- semdum um byggingarkostnað og arðsemi virkjunarinnar og þau eru metin í tengslum við áætlaða 100 milljarða fjár- festingu þá fáum við hugmynd um áhættuna sem er tek- in. Þá fer okkur líka að skiljast af hverju við, skattborgarar þessa lands, verðum knúin til að ábyrgjast lánin sem verða tekin til að fjármagna mestu herför gegn landinu á okkar tímum. Guðmundur E. Sigvaldason Publications – ritaskrá Scientific papers – greinar í vísindatímaritum Sigvaldason, G. E. 2002. Volcanic and tectonic processes coinciding with glaciataion and crustal rebound: an early Holocene rhyolitic eruption in the Dyngjufjöll volcanic centre and the formation of the Askja caldera, north Iceland. Bull. Volcanol. 64, 192–205. Sigvaldason, G. E. 1996. Precursors to the Krafla rift- ing episode and human reactions. A case history. In: Barberi et al. (eds.) The mitigation of volcanic hazards 443–449. ECSC-EC-EAEC, Brussels. Werner, R., H.-U. Schmincke and G. Sigvaldason 1996. A new model for the evolution of table mountains: volcanological and petrological evidence from Herdu- breid and Herdubreidartögl volcanoes (Iceland). Geol. Rundsch. 85, 390–397. Gudmundsson, O., B. Brandsdottir, W. Menke and G. E. Sigvaldason 1994. The crustal magma chamber of the Katla volcano in south Iceland revealed by 2-D seismic undershooting. Geophys. J. Int. 119, 277–296. Oskarsson, N., K. Grönvold and G. E. Sigvaldason 1994. Compositions of basalts above the Iceland mantle plume. Mineralogical Mag. 58A, 676–677. Helgason, Ö., N. Oskarsson and G. E. Sigvaldason 1992. Oxygen fugacity stratification of a magma chamber revealed by Mössbauer spectroscopy: Evidence from the 1875 Askja eruption, N. Iceland. Hyperfine In- teractions 70, 989–992. Sigvaldason, G. E. 1992. Recent hydrothermal explosion craters in an old hyaloclastite flow, central Iceland. J. Volcanol. Geotherm. Res. 54, 53–63. Sigvaldason, G. E., K. Annertz and M. Nilsson 1992. Ef- fect of glacier loading/deloading on volcanism: post- glacial volcanic production rate of the Dyngjufjöll area, Central Iceland. Bull. Volcanol. 54, 385–392. Bergh, S. G. and G. E. Sigvaldason 1991. Pleistocene mass-flow deposits of basaltic hyaloclastite on a shallow submarine shelf, South Iceland. Bull. Volcanol. 53, 597–611. Sigvaldason, G. E. 1989. International Conference on Lake Nyos Disaster, Yaoundé, Cameroon 16–20 March, 1987: Conclusions and Recommendations; The Lake Nyos Event and natural CO2 degassing. J. Volcanol. Geotherm. Res. 39, 97–107. Le Guern, F., and G. E. Sigvaldason 1989. The Lake Nyos Event and natural CO2 degassing. J. Volcanol. Geot- herm. Res. 39, 97. Sigvaldason, G. E. and N. Óskarsson 1986. Fluorine in basalts from Iceland. Contrib. Mineral. Petrol. 94, 263–271. Oskarsson, N., S. Steinthorsson and G. E. Sigvalda- son 1985. Iceland Geochemical Anomaly: Origin, volcanotectonics, chemical fractionation and isotope 122 JÖKULL No. 54, 2004
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.