Jökull


Jökull - 01.01.2004, Page 133

Jökull - 01.01.2004, Page 133
Jöklarannsóknafélag Íslands Vatnajökli. Vinna og rannsóknir eru auðveldari vegna bættrar lýsingar og tryggs aðgangs að rafmagni, eins og strax kom í ljós í vorferðinni sem farin var viku eftir að verkinu lauk. Að þessu verkefni komu margir og ekki rúm til að telja þá upp alla hér. Hins vegar er á engan hallað þó það komi fram að Guðmundur Þórðarson átti stærsta þáttinn í koma þessu verkefni í höfn. Nýja rafstöðin inni í vélageymslunni. – The generator that was installed at Grímsfjall in May 2003. Ljós- mynd/Photo. Magnús T. Guðmundsson. BÍLAMÁL Fordinn sem félagið keypti haustið 2002 var notaður í vinnuferðir félagsins, bæði til rannsókna og í skála- viðhald. Hann reyndist vel en ákveðið var að fara út í breytingar á fjöðrunarbúnaði síðastliðið haust og setja bíllinn á loftpúða. Því verki lauk um áramót. Nú í haust flutti bílanefnd aðstöðu sína úr Eldshöfða í Hjallahrauni 9 í Hafnarfirði, í mun hentugra húsnæði til viðhalds. Skálanefnd aðstoðaði bílanefndina við lagfæringar á nýja húsnæðinu. ÁRSHÁTÍÐ Árshátíð félagsins var 15. nóvember og hófst hún með fordrykk í boði Artic Trucks á Nýbýlavegi. Síðan var haldið út í óvissuna og endað í húsi Kívanisklúbbsins Geysis í Mosfellssveit. Þar var góður matur og góð stemning og dansinn stiginn fram eftir nóttu. Á há- tíðina mættu tæplega 80 manns og þótti hún heppnast mjög vel enda undir öruggri stjórn skemmtinefndar. HUGMYNDIR UM ÞJÓÐGARÐ NORÐAN VATNAJÖKULS Auk áætlunar Ríkisstjórnarinnar um að stofna Vatna- jökulsþjóðgarð, hefur stjórnskipuð nefnd kannað hug- myndir að þjóðgarði norðan jökulsins. Fulltrúar fé- lagsins mættu á fund í Umhverfisráðuneytinu vegna þessarar vinnu síðastliðið vor. Áætlanir þessar snerta starfsemi félagsins tiltölulega lítið. Þó þarf félag- ið að huga að því að tekið sé tillit til helstu öku- og gönguleiða á Vatnajökul úr norðri í skipulagningu slíks garðs ef af verður. Mun stjórnin halda áfram að fylgjast með þessum hugmyndum og gefa ráð í ljósi þeirrar reynslu og þekkingar sem félagið býr yfir. LOKAORÐ Mjög mikilvægur þáttur í starfi Jöklarannsóknafélags- ins er hin sterka arfleifð. Jón Eyþórsson veðurfræð- ingur stofnaði félagið 1950 og kom þannig af stað öflugum jöklarannsóknum með samstarfi við bestu ferða- og fjallamenn þess tíma. Sigurður Þórarinsson hefur gert fyrstu áratugi félagsins ódauðlega með sín- um snjöllu söngtextum, en þá syngjum við á góðum stundum enn þann dag í dag. Á þessum fyrstu ár- um var lagður grunnurinn að starfi félagsins en hann byggist á samstarfi áhugamanna og vísindamanna við rannsóknir á jöklum og ferðum um jökla. Þar er það leiðarljós sem við reynum að vinna eftir. Tryggð gam- alla félagsmanna við Jöklafélagið er ein sönnun þess hve sterk bönd voru bundin á fyrstu árunum. Einn af heiðursfélögum okkar, Árni Kjartansson, sem tekið hefur þátt í starfinu í yfir 50 ár hefur unnið töluvert að því að koma arfleifðinni til skila. Í haust færði Árni fé- laginu skannaðar kopíur af myndum úr fyrstu ferðum félagsins og eru þær myndir ómetanleg heimild. Vil ég fyrir hönd félagsins þakka Árna fyrir þessa gjöf. Nú eru liðin sex ár síðan ég tók að mér for- mennsku í félaginu. Þessi tími hefur liðið hratt. Frek- ar ókyrrt hefur verið í náttúrunnar ríki þessi ár. Gríms- vatnagos kom í kjölfar Gjálpargoss, framhlaup varð í Dyngjujökli og nú síðustu árin hefur óróa gætt í JÖKULL No. 54, 2004 133
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.