Fréttablaðið - 27.10.2018, Qupperneq 8
Grikk
eða GOTT?
599 kr.stk.
Grasker Halloween
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl.
VR óskar eftir orlofshúsum
VR óskar eftir að leigja vönduð sumar hús eða
orlofsíbúðir til framleigu fyrir félagsmenn sína.
Leitað er eftir húsnæði á landsbyggðinni fyrir
næsta sumar.
Áhugasamir sendi upplýsingar á vr@vr.is
fyrir 20. nóvember 2018.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa
að fylgja:
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS
• Lýsing á eign og því sem henni fylgir
• Ástand íbúðar og staðsetning
• Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár
• Lýsing á möguleikum til útivistar og
afþreyingar í næsta nágrenni
Öllum tilboðum verður svarað.
HEILBRIGÐISMÁL „Ég held að það sé
skynsamlegt skref að kerfið sjálft
passi upp á að stoppa í götin sín
megin. Svo verðum við að sjá hverju
það skilar,“ segir Hildur Sverrisdótt-
ir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins, sem hefur lagt fram þingsálykt-
unartillögu um stofnun starfshóps
sem geri tillögur um hvernig auka
megi hlutfall bólusetninga barna.
Gerir tillagan ráð fyrir að starfs-
hópurinn hugi sérstaklega að úrbót-
um á verklagi við framkvæmd og
utanumhald bólusetninga á heilsu-
gæslustöðvum, meðal annars hvað
varðar upplýsingagjöf og eftirfylgni.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir segir það mjög gott að menn
vilji leita leiða til að bæta þátttöku
í bólusetningum sem mest. „Á móti
kemur að það er þegar starfshópur í
gangi sem er að vinna að þessu. Það
yrði skrýtið ef skipaður yrði annar
hópur um sama efni því þetta gæti
orðið tvíverknaður. Þetta er samt
jákvætt framtak.“
Hann segir að flutningsmenn til-
lögunnar hafi ekki haft samband við
sig til að athuga hvað væri að gerast
í þessum málum.
Í umræddum starfshópi sitja full-
trúar frá sóttvarnalækni, heilsu-
gæslunni, rafrænni sjúkraskrá og
hugbúnaðarfyrirtækinu Origo.
„Þessi hópur á að skoða alla þessa
þætti, bæði skráningu bólusetninga
í grunninn og kerfið svo við getum
merkt þá sem eru óbólusettir og
kallað þá fram. Þannig að það er í
rauninni verið að vinna þetta eins
og tillagan gengur út á.“
Hvort þessi vinna skili árangri
komi í ljós í árlegri skýrslu sótt-
varnalæknis.
Hildur segist vita að þessi mál
séu til skoðunar innan afmarkaðra
embætta. „Ég taldi mikilvægt að
þungi þingsins myndi standa að
baki þeim lausnum sem verða
fundnar innan kerfisins. Sérstak-
lega í ljósi þess að það hafi orðið
átök á pólitískum vettvangi um
leiðir í þessu. Við þurfum að senda
þau þverpólitísku skilaboð að það
sé mikilvægt að auka hlutfall bólu-
setninga barna.“
Bólusetningar barna hafa verið
töluvert í umræðunni en sjálf lagði
Hildur fram tillögu í borgarstjórn
2015 um að bólusetningar yrðu skil-
yrði fyrir leikskóladvöl. „Sú tillaga
fékk ekki hljómgrunn og heldur
ekki þegar nafna mín Hildur Björns-
dóttir lagði hana fram í sumar. Það
spannst mikil umræða um bólu-
setningarnar þegar ég lagði tillög-
una fram á sínum tíma. Nokkrum
vikum síðar lögðu þingmenn VG
fram tillögu um að þessi mál yrðu
skoðuð en hún dagaði uppi.“
Hildur segir að eftir að tillaga
nöfnu hennar var felld í borgar-
stjórn hafi hún hugsað að nú væri
mikilvægt að reyna að gera það
sem hægt væri innan kerfisins til að
reyna að auka hlutfall bólusetninga.
„Það kom fram í umræðunum
að það væri hægt að gera ýmislegt
innan kerfisins. Til dæmis að auka
eftirlit heilsugæslunnar sem ætti
þá að geta gripið þá sem eru ekki
á móti bólusetningum en það ferst
fyrir af einhverjum ástæðum.“
sighvatur@frettabladid.is
Þverpólitísk
skilaboð um
bólusetningar
22 þingmenn vilja að starfshópur skoði leiðir til að
auka hlutfall bólusetninga barna. Sóttvarnalæknir
segir framtakið jákvætt en að vinna sé þegar í gangi.
Ég taldi mikilvægt
að þungi þingsins
myndi standa að baki þeim
lausnum sem verða fundnar
innan kerfisins.
Hildur Sverris dóttir,
varaþingmaður
Sjálfstæðis-
flokksins
DÓMSMÁL Karlmaður á fimmtugs-
aldri var í Héraðsdómi Reykjaness
í gær dæmdur í 45 daga skilorðs-
bundið fangelsi fyrir kynferðislega
áreitni í garð kvenkyns leigubíl-
stjóra á Þjóðhátíð árið 2015.
Maðurinn var sakfelldur fyrir að
hafa káfað á brjóstum og klofi kon-
unnar utanklæða og fyrir að hafa
spurt bílstjórann „hvernig hún væri
í henni“, spurt hana hvernig hún
væri í bólinu og kallað hana tussu.
Maðurinn og konan voru ein
til frásagnar um það sem gerðist
í bílnum en konan hafði að vísu
haldið niðri takkanum á talstöð bif-
reiðarinnar svo aðrir leigubílstjórar
heyrðu hluta af því sem fram fór.
Maðurinn neitaði sök og sagðist
hafa verið drukkinn en ekki svo
mjög að hann myndi ekki eftir atvik-
um. Þó gæti vel verið að hann hafi
kallað hana tussu „enda ætti hann
það til að vera ljótur í kjaftinum“.
Auk refsingarinnar var maðurinn
dæmdur til að greiða konunni alls
350 þúsund krónur í miskabætur.
– jóe
Dæmdur fyrir að káfa á leigubílstjóra
Áreitti kvenkyns leigubílstjóra á Þjóðhátíð í Eyjum 2015. Fréttablaðið/Óskar
2 7 . o k t Ó B E R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R8 f R é t t I R ∙ f R é t t A B L A Ð I Ð
2
7
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
3
3
-F
8
0
C
2
1
3
3
-F
6
D
0
2
1
3
3
-F
5
9
4
2
1
3
3
-F
4
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
1
2
s
_
2
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K