Fréttablaðið - 27.10.2018, Síða 82

Fréttablaðið - 27.10.2018, Síða 82
Jón Þór Hauksson viður-kennir að það hafi komið sér í opna skjöldu þegar KSÍ hafði samband við hann og bauð honum að þjálfa kvennalandslið Íslands. „Ég get ekki annað sagt en að ég hafi komið af fjöllum þegar þetta kom upp. Ég var búinn að ákveða að taka annað ár sem aðstoðarþjálfari hjá Stjörnunni. Mér leið mjög vel þar og hlakkaði til að vinna fleiri titla með liðinu. Ég var ekkert að leita fyrir mér annars staðar,“ segir Jón Þór þegar blaða- maður Fréttablaðsins settist niður með honum á nýja vinnustaðnum, Laugardalsvelli, í vikunni. Þótt hann hafi verið ánægður í starfi hjá Stjörnunni var ekki hægt að segja nei þegar kallið frá KSÍ kom. „Þetta er áhugavert og spenn- andi starf og ég var ekki lengi að svara játandi þegar það bauðst,“ segir Jón Þór sem er fjórði Skaga- maðurinn sem þjálfar A-landslið Íslands í fótbolta. Ríkharður Jóns- son var sá fyrsti en hann stýrði karlalandsliðinu á 7. og 8. áratug síðustu aldar. Ríkharður, sem lést í fyrra, var stjúp afi Jóns Þórs og hjá honum lærði hann málaraiðn. Jón Þór starfaði sem málari áður en hann hellti sér alfarið út í þjálfun. Steinn Helgason var annar Skaga- maðurinn sem þjálfaði íslenskt A-landslið en hann stýrði kvenna- landsliðinu árið 1992 ásamt Sigurði Hannessyni. Þá þjálfaði Guðjón Þórðarson karlalandsliðið með frábærum árangri á árunum 1997- 99. Guðjón er einmitt maðurinn sem gaf Jóni Þór fyrsta tækifærið í þjálfun. Vantaði bringuhár í klefann „Þegar Gaui tók við ÍA 2007 var mikið um meiðsli um veturinn. Bjarni, sonur hans, heyrði í mér og þeir fengu mig til að byrja að æfa aftur. Gaui tók mig ungan inn í meistaraflokk á sínum tíma og mundi eftir mér. Árið 2007 var Skagaliðið mjög ungt og ég var fenginn á æfingar því það vantaði aðeins upp á bringuhárin í klef- anum. Ég samþykkti það með því skilyrði að ég fengi að læra af Gaua og þetta var hálfgert þjálfaranám- skeið fyrir mig,“ sagði Jón Þór um hvernig fyrstu skrefin í þjálfun voru. Hann segir að leikmannsferillinn hafi ekki farið eins og hann átti að fara. Jón Þór, sem er fæddur 1978, þótti lofa góðu sem leikmaður, lék átta leiki fyrir U-17 ára landsliðið og kom ungur inn í ógnarsterkt lið ÍA á 10. áratugnum. En meiðsli settu strik í reikninginn. Sárkvalinn eftir mislukkaða axlaraðgerð „Ég þótt ágætlega efnilegur leik- maður en varð svo fyrir meiðslum í 2. og 3. flokki. Ég fór hér og þar úr lið og endaði eins og biluð strengja- brúða. Þegar ég var tvítugur fór ég í aðgerð á öxl sem mistókst og var alltaf að drepast eftir það. Ég var alltaf sárkvalinn eftir aðgerðina. Maður er alinn upp við það að vera ekki að kveinka sér og berjast áfram. Sjö árum síðar kom í ljós að mis- tök höfðu verið gerð í aðgerðinni. Stykki var skilið eftir og það sargaði bæði bein og brjósk,“ segir Jón Þór og bætir við að þetta hafi haft áhrif á daglegt líf. Hann hafi til að mynda átt það til að missa kaffibolla úr hendinni upp úr þurru. „Svo var stykkið fjarlægt og ég hef ekki fundið til síðan. En þetta hafði veruleg áhrif á fótboltaferilinn og þess vegna byrjaði ég að undirbúa þjálfaraferilinn fyrr en flestir.“ Jón Þór þjálfaði hjá ÍA í áratug, var meðal annars yfirþjálfari yngri flokka og á stóran þátt í þeim upp- gangi sem hefur orðið í fótboltanum á Akranesi á undanförnum árum. Frá 2014-17 var Jón Þór aðstoðar- maður Gunnlaugs Jónssonar með karlalið ÍA. Skagamenn unnu sér sæti í Pepsi-deildinni á fyrsta tíma- bili þeirra við stjórnvölinn og héldu sér þægilega uppi 2015 og 2016. Tímabilið 2017 gekk Skagamönnum hins vegar flest í mót og þegar sex umferðir voru eftir hætti Gunn- laugur með liðið sem var komið með annan fótinn niður í Inkasso- deildina. Jón Þór tók við og stýrði Skagamönnum út tímabilið. Leikur liðsins batnaði og ÍA tapaði aðeins einum af þessum sex leikjum. Það dugði þó ekki til að halda sætinu í Pepsi-deildinni. Vildi þjálfa ÍA Þrátt fyrir fína spilamennsku ÍA í leikjunum undir stjórn Jóns Þórs var hann ekki ráðinn þjálfari liðsins til frambúðar. Hann vonaðist eftir því að fá starfið. „Klárt mál. Ég hafði þjálfað lengi uppi á Skaga og það kom aldrei neitt annað til greina en að taka við liðinu ef mér hefði boðist það. Ég taldi mig vera búinn að vinna gott starf og vissi á hverju liðið þurfti að halda,“ segir Jón Þór. ÍA vann Inkasso-deildina í sumar undir stjórn Jóhannesar Karls Guðjóns- sonar og Jón Þór er viss um að góður endir á tímabilinu 2017 hafi hjálpað Skagaliðinu í sumar. „Ég held að árangurinn í þessum síðustu leikjum hafi komið liðinu til góða í ár. Við kláruðum tíma- bilið af krafti og héldum hreinu í þremur af síðustu fimm leikjunum sem er fáheyrt hjá botnliði. Við fundum ágætis holningu á liðinu sem ég er ekki í nokkrum vafa um að hafi komið því til góða á undir- búningstímabilinu og í sumar. Það var mikilvægt að klára tímabilið af krafti.“ Jón Þór segir að haustið 2017 hafi ekki verið margir möguleikar í stöð- unni fyrir sig, fyrr en Stjarnan kom inn í myndina og bauð honum starf sem aðstoðarmaður Rúnars Páls Sig- mundssonar. „Það tók langan tíma að klára þjálfararáðninguna hjá ÍA og þar af leiðandi voru nánast öll lið á Íslandi búin að ráða þjálfara. Það voru einhverjar þreifingar en svo kom Stjarnan upp og það var ekki nokkur spurning að stökkva á það. Og það reyndist mikið heillaskref. Það var mikið hungur og mikill vilji í leikmannahópnum,“ segir Jón Þór. Stjarnan var í baráttu um Íslands- meistaratitilinn í sumar og varð bikarmeistari. Mótlætið styrkir Þótt Jón Þór hafi ekki mikla reynslu sem aðalþjálfari meistaraflokks ótt- ast hann ekki að það hái honum í starfi landsliðsþjálfara. „Ég hef engar áhyggjur af því. Ég er með mikla reynslu af meistara- flokksþjálfun og hef komið að henni með alls konar hætti í um tíu ár. Ég hef verið svo lánsamur að starfa með toppþjálfurum og fengið stórt hlutverk hjá þeim. Auk þess hef ég komið að þjálfun í karla- og kvenna- boltanum og upplifað bæði vel- gengni og mótlæti. Ég held að flestir séu sammála um að mótlætið styrki og maður læri mest í því,“ segir Jón Þór sem hljómar þarna dálítið eins og einn af lærifeðrum hans, Guðjón Þórðarson. Íslenska kvennalandsliðið hefur náð góðum árangri síðustu ár og Jón Þór segir að Ísland eigi að halda áfram að berjast um að komast á stærsta sviðið með bestu liðunum. „Íslenskur fótbolti er á þeim stað að við eigum að koma okkur í stöðu til að komast inn á stórmót. Fyrsta markmiðið er að berjast um það, ekki nokkur spurning. En núna ætla ég að kynnast hópnum og leik- mönnunum. Ég vil ná því besta fram hjá þeim og hjálpa þeim að gera liðið betra,“ segir Jón Þór. „Leikmennirnir eru ekkert að fara að slaka á. Þær setja markið hátt og það er mikill metnaður til staðar. Maður hefur fundið fyrir því sem stuðningsmaður liðsins.“ Íslenska liðið hefur komist á þrjú Evrópumót í röð en á enn eftir að komast á heimsmeistaramót. „Við viljum verða fyrsta liðið til að spila í lokakeppni HM og til að það sé möguleiki þarf að bæta í alls staðar,“ segir Jón Þór. Vantar fleiri verkefni Yngri landslið Íslands kvennamegin, U-17 og U-19 ára, hafa náð góðum árangri á undanförnum misserum. Efniviðurinn er til staðar en stökkið upp í A-landsliðið er oft stórt. Ekk- ert U-21 árs landslið er starfrækt og því vantar oft verkefni fyrir leik- menn sem eru að banka á dyrnar í A-landsliðinu. „Það var mikill vilji hjá okkur til að vinna áfram í þeim málum,“ segir Jón Þór og á þá við U-23 ára eða B-landslið þar sem efnilegir leikmenn geta öðlast reynslu. „Það er þörf á því og við þurfum að fjölga verkefnum fyrir þessar stelpur. Stökkið úr yngri landsliðunum og upp í A-landsliðið er stórt.“ Síðustu ár hafa fjölmargir ungir leikmenn fengið tækifæri með meistaraflokki ÍA og Jón Þór telur að sú reynsla geti komið að góðum notum í starfi landsliðsþjálfara; að hjálpa ungum leikmönnum að taka skrefið úr því að vera efnilegir í að vera góðir, eins og í tilfelli Arnórs Sigurðssonar sem fór ungur frá ÍA til Norrköping í fyrra og er núna byrjaður að spila með rússneska stórliðinu CSKA Moskvu. „Við þurfum að hjálpa þessum ungu leikmönnum að taka þetta skref. Við getum ekki beðið í 3-4 ár eftir að þær verði tilbúnar. Við þurfum að flýta fyrir því ferli,“ segir Jón Þór að lokum. Kom af fjöllum en gat ekki sagt nei Jón Þór Hauksson var ráðinn þjálfari kvenna landsliðsins í vikunni. Leikmanns ferill Skagamannsins náði litlu flugi en þjálfun hefur átt hug hans allan síðasta áratuginn. Hann dreymir um að koma Íslandi á HM. Jón Þór Hauksson er kominn í sitt stærsta starf á þjálfaraferlinum og kveðst klár í verkefnið. FréttAblAðið/Ernir Ég Held að flestir sÉu sammála um að mótlætið styrki og maður læri mest í Því. Ingvi Þór Sæmundsson ingvithor@frettabladid.is 2 7 . o k t ó b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r34 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 2 7 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :2 0 F B 1 1 2 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 3 3 -C 6 A C 2 1 3 3 -C 5 7 0 2 1 3 3 -C 4 3 4 2 1 3 3 -C 2 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 1 2 s _ 2 6 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.