Fréttablaðið - 27.10.2018, Page 82
Jón Þór Hauksson viður-kennir að það hafi komið sér í opna skjöldu þegar KSÍ hafði samband við hann og bauð honum að þjálfa kvennalandslið Íslands.
„Ég get ekki annað sagt en
að ég hafi komið af fjöllum
þegar þetta kom upp. Ég var búinn
að ákveða að taka annað ár sem
aðstoðarþjálfari hjá Stjörnunni.
Mér leið mjög vel þar og hlakkaði
til að vinna fleiri titla með liðinu. Ég
var ekkert að leita fyrir mér annars
staðar,“ segir Jón Þór þegar blaða-
maður Fréttablaðsins settist niður
með honum á nýja vinnustaðnum,
Laugardalsvelli, í vikunni.
Þótt hann hafi verið ánægður í
starfi hjá Stjörnunni var ekki hægt
að segja nei þegar kallið frá KSÍ
kom.
„Þetta er áhugavert og spenn-
andi starf og ég var ekki lengi að
svara játandi þegar það bauðst,“
segir Jón Þór sem er fjórði Skaga-
maðurinn sem þjálfar A-landslið
Íslands í fótbolta. Ríkharður Jóns-
son var sá fyrsti en hann stýrði
karlalandsliðinu á 7. og 8. áratug
síðustu aldar. Ríkharður, sem lést í
fyrra, var stjúp afi Jóns Þórs og hjá
honum lærði hann málaraiðn. Jón
Þór starfaði sem málari áður en
hann hellti sér alfarið út í þjálfun.
Steinn Helgason var annar Skaga-
maðurinn sem þjálfaði íslenskt
A-landslið en hann stýrði kvenna-
landsliðinu árið 1992 ásamt Sigurði
Hannessyni. Þá þjálfaði Guðjón
Þórðarson karlalandsliðið með
frábærum árangri á árunum 1997-
99. Guðjón er einmitt maðurinn
sem gaf Jóni Þór fyrsta tækifærið í
þjálfun.
Vantaði bringuhár í klefann
„Þegar Gaui tók við ÍA 2007 var
mikið um meiðsli um veturinn.
Bjarni, sonur hans, heyrði í mér
og þeir fengu mig til að byrja að
æfa aftur. Gaui tók mig ungan inn
í meistaraflokk á sínum tíma og
mundi eftir mér. Árið 2007 var
Skagaliðið mjög ungt og ég var
fenginn á æfingar því það vantaði
aðeins upp á bringuhárin í klef-
anum. Ég samþykkti það með því
skilyrði að ég fengi að læra af Gaua
og þetta var hálfgert þjálfaranám-
skeið fyrir mig,“ sagði Jón Þór um
hvernig fyrstu skrefin í þjálfun voru.
Hann segir að leikmannsferillinn
hafi ekki farið eins og hann átti að
fara. Jón Þór, sem er fæddur 1978,
þótti lofa góðu sem leikmaður, lék
átta leiki fyrir U-17 ára landsliðið
og kom ungur inn í ógnarsterkt lið
ÍA á 10. áratugnum. En meiðsli settu
strik í reikninginn.
Sárkvalinn eftir mislukkaða
axlaraðgerð
„Ég þótt ágætlega efnilegur leik-
maður en varð svo fyrir meiðslum
í 2. og 3. flokki. Ég fór hér og þar úr
lið og endaði eins og biluð strengja-
brúða. Þegar ég var tvítugur fór ég
í aðgerð á öxl sem mistókst og var
alltaf að drepast eftir það. Ég var
alltaf sárkvalinn eftir aðgerðina.
Maður er alinn upp við það að vera
ekki að kveinka sér og berjast áfram.
Sjö árum síðar kom í ljós að mis-
tök höfðu verið gerð í aðgerðinni.
Stykki var skilið eftir og það sargaði
bæði bein og brjósk,“ segir Jón Þór
og bætir við að þetta hafi haft áhrif
á daglegt líf. Hann hafi til að mynda
átt það til að missa kaffibolla úr
hendinni upp úr þurru.
„Svo var stykkið fjarlægt og ég hef
ekki fundið til síðan. En þetta hafði
veruleg áhrif á fótboltaferilinn og
þess vegna byrjaði ég að undirbúa
þjálfaraferilinn fyrr en flestir.“
Jón Þór þjálfaði hjá ÍA í áratug,
var meðal annars yfirþjálfari yngri
flokka og á stóran þátt í þeim upp-
gangi sem hefur orðið í fótboltanum
á Akranesi á undanförnum árum.
Frá 2014-17 var Jón Þór aðstoðar-
maður Gunnlaugs Jónssonar með
karlalið ÍA. Skagamenn unnu sér
sæti í Pepsi-deildinni á fyrsta tíma-
bili þeirra við stjórnvölinn og héldu
sér þægilega uppi 2015 og 2016.
Tímabilið 2017 gekk Skagamönnum
hins vegar flest í mót og þegar sex
umferðir voru eftir hætti Gunn-
laugur með liðið sem var komið
með annan fótinn niður í Inkasso-
deildina. Jón Þór tók við og stýrði
Skagamönnum út tímabilið. Leikur
liðsins batnaði og ÍA tapaði aðeins
einum af þessum sex leikjum. Það
dugði þó ekki til að halda sætinu í
Pepsi-deildinni.
Vildi þjálfa ÍA
Þrátt fyrir fína spilamennsku ÍA í
leikjunum undir stjórn Jóns Þórs
var hann ekki ráðinn þjálfari liðsins
til frambúðar. Hann vonaðist eftir
því að fá starfið.
„Klárt mál. Ég hafði þjálfað lengi
uppi á Skaga og það kom aldrei
neitt annað til greina en að taka við
liðinu ef mér hefði boðist það. Ég
taldi mig vera búinn að vinna gott
starf og vissi á hverju liðið þurfti
að halda,“ segir Jón Þór. ÍA vann
Inkasso-deildina í sumar undir
stjórn Jóhannesar Karls Guðjóns-
sonar og Jón Þór er viss um að góður
endir á tímabilinu 2017 hafi hjálpað
Skagaliðinu í sumar.
„Ég held að árangurinn í þessum
síðustu leikjum hafi komið liðinu
til góða í ár. Við kláruðum tíma-
bilið af krafti og héldum hreinu í
þremur af síðustu fimm leikjunum
sem er fáheyrt hjá botnliði. Við
fundum ágætis holningu á liðinu
sem ég er ekki í nokkrum vafa um
að hafi komið því til góða á undir-
búningstímabilinu og í sumar. Það
var mikilvægt að klára tímabilið af
krafti.“
Jón Þór segir að haustið 2017 hafi
ekki verið margir möguleikar í stöð-
unni fyrir sig, fyrr en Stjarnan kom
inn í myndina og bauð honum starf
sem aðstoðarmaður Rúnars Páls Sig-
mundssonar.
„Það tók langan tíma að klára
þjálfararáðninguna hjá ÍA og þar
af leiðandi voru nánast öll lið á
Íslandi búin að ráða þjálfara. Það
voru einhverjar þreifingar en svo
kom Stjarnan upp og það var ekki
nokkur spurning að stökkva á það.
Og það reyndist mikið heillaskref.
Það var mikið hungur og mikill vilji
í leikmannahópnum,“ segir Jón Þór.
Stjarnan var í baráttu um Íslands-
meistaratitilinn í sumar og varð
bikarmeistari.
Mótlætið styrkir
Þótt Jón Þór hafi ekki mikla reynslu
sem aðalþjálfari meistaraflokks ótt-
ast hann ekki að það hái honum í
starfi landsliðsþjálfara.
„Ég hef engar áhyggjur af því. Ég
er með mikla reynslu af meistara-
flokksþjálfun og hef komið að henni
með alls konar hætti í um tíu ár. Ég
hef verið svo lánsamur að starfa
með toppþjálfurum og fengið stórt
hlutverk hjá þeim. Auk þess hef ég
komið að þjálfun í karla- og kvenna-
boltanum og upplifað bæði vel-
gengni og mótlæti. Ég held að flestir
séu sammála um að mótlætið styrki
og maður læri mest í því,“ segir Jón
Þór sem hljómar þarna dálítið eins
og einn af lærifeðrum hans, Guðjón
Þórðarson.
Íslenska kvennalandsliðið hefur
náð góðum árangri síðustu ár og
Jón Þór segir að Ísland eigi að halda
áfram að berjast um að komast á
stærsta sviðið með bestu liðunum.
„Íslenskur fótbolti er á þeim stað
að við eigum að koma okkur í stöðu
til að komast inn á stórmót. Fyrsta
markmiðið er að berjast um það,
ekki nokkur spurning. En núna
ætla ég að kynnast hópnum og leik-
mönnunum. Ég vil ná því besta fram
hjá þeim og hjálpa þeim að gera
liðið betra,“ segir Jón Þór.
„Leikmennirnir eru ekkert að fara
að slaka á. Þær setja markið hátt og
það er mikill metnaður til staðar.
Maður hefur fundið fyrir því sem
stuðningsmaður liðsins.“
Íslenska liðið hefur komist á þrjú
Evrópumót í röð en á enn eftir að
komast á heimsmeistaramót. „Við
viljum verða fyrsta liðið til að spila
í lokakeppni HM og til að það sé
möguleiki þarf að bæta í alls staðar,“
segir Jón Þór.
Vantar fleiri verkefni
Yngri landslið Íslands kvennamegin,
U-17 og U-19 ára, hafa náð góðum
árangri á undanförnum misserum.
Efniviðurinn er til staðar en stökkið
upp í A-landsliðið er oft stórt. Ekk-
ert U-21 árs landslið er starfrækt og
því vantar oft verkefni fyrir leik-
menn sem eru að banka á dyrnar í
A-landsliðinu.
„Það var mikill vilji hjá okkur
til að vinna áfram í þeim málum,“
segir Jón Þór og á þá við U-23 ára
eða B-landslið þar sem efnilegir
leikmenn geta öðlast reynslu. „Það
er þörf á því og við þurfum að fjölga
verkefnum fyrir þessar stelpur.
Stökkið úr yngri landsliðunum og
upp í A-landsliðið er stórt.“
Síðustu ár hafa fjölmargir ungir
leikmenn fengið tækifæri með
meistaraflokki ÍA og Jón Þór telur
að sú reynsla geti komið að góðum
notum í starfi landsliðsþjálfara; að
hjálpa ungum leikmönnum að taka
skrefið úr því að vera efnilegir í að
vera góðir, eins og í tilfelli Arnórs
Sigurðssonar sem fór ungur frá ÍA
til Norrköping í fyrra og er núna
byrjaður að spila með rússneska
stórliðinu CSKA Moskvu.
„Við þurfum að hjálpa þessum
ungu leikmönnum að taka þetta
skref. Við getum ekki beðið í 3-4
ár eftir að þær verði tilbúnar. Við
þurfum að flýta fyrir því ferli,“ segir
Jón Þór að lokum.
Kom af
fjöllum en
gat ekki
sagt nei
Jón Þór Hauksson var ráðinn þjálfari
kvenna landsliðsins í vikunni. Leikmanns ferill
Skagamannsins náði litlu flugi en þjálfun
hefur átt hug hans allan síðasta áratuginn.
Hann dreymir um að koma Íslandi á HM.
Jón Þór Hauksson er kominn í sitt stærsta starf á þjálfaraferlinum og kveðst klár í verkefnið. FréttAblAðið/Ernir
Ég Held að flestir sÉu
sammála um að
mótlætið styrki og
maður læri mest í Því.
Ingvi Þór
Sæmundsson
ingvithor@frettabladid.is
2 7 . o k t ó b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r34 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
7
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
3
3
-C
6
A
C
2
1
3
3
-C
5
7
0
2
1
3
3
-C
4
3
4
2
1
3
3
-C
2
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
1
2
s
_
2
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K