Fréttablaðið - 27.10.2018, Qupperneq 13
Við látum framtíðina rætast.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum
www.volkswagen.is
Touareg Offroad.
3.0 TDI V6.
Verð 9.290.000 kr.
T- Roc.
Fjórhjóladrifinn og sjálfskiptur.
Verð 4.590.00 kr.
Fjórhjóladrifna fjölskyldan.
Tiguan Offroad.
Fjórhjóladrifinn og sjálfskiptur.
Verð 5.790.000 kr.
Tilboðsverð 4.990.000 kr.
Tiguan Allspace.
7 manna og rúmgóður.
Verð 7.635.000 kr.
Tilboðsverð 6.990.000 kr.
Í f lokki stærri jeppa Í f lokki jepplinga Í f lokki minni jeppa Í f lokki jepplinga
að þeir væru í Lundúnum. „Til and-
skotans með Lundúnir. Drottningin
þeirra er þræll okkar og lögreglan
hundar. Hvernig dirfist þú að blóta
Salman konungi? Við getum ekki
leyft þér það.“
Að mati Almasarir er þáttur hans
augljóslega ástæðan fyrir árásinni.
„Það var ráðist á mig vegna þess að
ég nota háð til þess að gagnrýna
og ljóstra upp um þau hryllilegu
mannréttindabrot sem viðgangast
í Sádi-Arabíu, hræsni konungsfjöl-
skyldunnar og allt sem hún gerir,“
segir hann.
Almasarir segir MBS halda að
hann geti gert hvað sem hann vill
svo lengi sem hann borgar þeim
sem eru ósammála fyrir að sætta
sig einfaldlega við það. „En innan
Sádi-Arabíu þarf hann ekki að borga
neinum. Hann kastar fólki bara í
fangelsi og lætur pynta það.“
Verri en Gaddafi og Saddam
Að sögn Almasarir minnir MBS á
arabíska harðstjóra á borð við hinn
líbýska Muammar Gaddafi og hinn
írakska Saddam Hussein. „Hann er
eins og Gaddafi og Saddam. En hann
er meira að segja verri af því að hann
kaupir sér þjónustu almannatengla
til þess að láta hann líta betur út en
Gaddafi og Saddam. Stundum trúir
fólk því meira að segja,“ segir Almas-
arir.
Afstaða Donalds Trump, forseta
Bandaríkjanna, til stjórnarinnar
í Sádi-Arabíu hefur verið töluvert
gagnrýnd. Hvort sem um er að ræða
Khashoggi-málið eða hin ógnar-
mörgu morð á almennum borg-
urum í stríðinu í Jemen. Bandaríkin
eiga mikilla hagsmuna að gæta, hafa
til að mynda stundað vopnavið-
skipti fyrir hundruð milljarða.
„Ég held að Trump verði ein-
faldlega að reyna að koma honum
frá völdum. Bæði til þess að bjarga
sádiarabísku þjóðinni og til þess að
vernda bandaríska hagsmuni bæði
í Sádi-Arabíu og Arabaheiminum
öllum,“ segir Almasarir.
Kallaður hryðjuverkamaður
Ali Adubisi er formaður ESOHR,
evrópsk-sádiarabískrar mannrétt-
indastofnunar, sem stofnuð var í
Berlín árið 2013. Hann segir ESOHR
reyna að hafa sem mest áhrif og ein-
beita sér að mannréttindabrotum í
Sádi-Arabíu. Til að mynda aftökum,
pyntingum, ólögmætri fangelsun,
brotum geng konum og börnum
og brotum gegn tjáningarfrelsinu
svo fátt eitt sé nefnt. „Stofnunin er
mikilvæg upplýsingaveita um stöðu
mannréttindamála í Sádi-Arabíu,“
segir Adubisi.
Hann segir að yfirvöld í Sádi-
Arabíu hafi reynt að þagga niður í
sér. „Það var réttað yfir mér fjarver-
andi árið 2016 vegna meintra brota
á hryðjuverkalögum. Það er enginn
greinarmunur gerður á mannrétt-
indabaráttufólki og hryðjuverka-
mönnum. Ég veit ekki hvernig það
mál fór. Ég gæti verið handtekinn ef
ég ferðast til Arabalandanna vegna
baráttu minnar þannig að ég ein-
faldlega fer ekki þangað.“
Þá segir hann að margir stjórnar-
andstæðingar óttist nú um líf
sitt vegna máls Khashoggi. „Við
höfum fylgst með málum nokk-
urra aðgerða sinna í útlegð og vitum
að ríkisstjórnin hefur hótað ætt-
ingjum þeirra í Sádi-Arabíu.“
Adubisi segir að sér hafi ítrekað
verið boðið aftur heim og hann
fengið loforð um að hann yrði ekki
handtekinn. Því treysti hann ekki.
Þá segir hann einnig að lokað hafi
verið á vefsíðu stofnunarinnar í
Sádi-Arabíu og að „stafrænn her“
reyni sífellt að ráðast á stofnunina
bæði á samfélagsmiðlum og með
netárásum. „Ég er ekki hræddur en
maður verður að hafa varann á. Eftir
að Mohammed bin Salman komst
til valda hefur ríkisstjórnin breyst í
skipulögð glæpasamtök.“
Óvinur mannréttinda
Aðspurður um skoðanir sínar
á krónprinsinum segir Adubisi:
„Hann er brjálaður óvinur mann-
réttinda. Staða mannréttindamála
hefur aldrei verið verri á þeim 88
árum sem liðin eru frá stofnun rík-
isins.“
Adubisi segir að Mohammed sé
stríðsglæpamaður vegna aðgerða
Sádi-Araba í stríðinu í Jemen. Vert er
að benda á að slíkar ásakanir birtust
í skýrslu sérfræðingateymis mann-
réttindaráðs Sameinuðu þjóðanna
sem birtist í ágúst.
„Hann hefur líka gerst sekur um
glæp þegar Khashoggi var myrtur
og reynt var að hylma yfir glæpinn.
Hann hefur aukinheldur staðið fyrir
pyntingum og öðrum morðum. Til
viðbótar, jafnvel þótt hann hafi
lofað að fækka aftökum, hefur
aftökum fjölgað og refsingar beinst
í meira mæli gegn mannréttinda-
baráttufólki og stjórnarandstæð-
ingum,“ segir Adubisi og bætir við:
„Hann er verulega harður harð-
stjóri. Hann er líka skapstór. Og
hann málar sig upp sem umbóta-
sinna, makar á sig þeirri málningu, á
meðan hann stelur auð sádiarabísku
þjóðarinnar. Svo reynir hann að
notfæra sér alþjóðlega fjölmiðla til
að skapa þér þessa ímynd.“
Kallar eftir aðgerðum
Að mati Adubisi hefur alþjóða-
samfélagið ekki gert nóg til þess
að styðja baráttu Sádi-Araba fyrir
mannréttindum, „því miður“. Hann
segir að nokkur ríki, undir forystu
Bandaríkjanna og Bretlands, hafi
lengi verið „stuðningsmenn ógnar-
stjórnarinnar í Sádi-Arabíu“.
„En við gleymum ekki fallegum
og mikilvægum stefnumálum fjöl-
margra landa, til dæmis Íslands sem
hefur stutt baráttuna fyrir mann-
réttindum í Sádi-Arabíu í mann-
réttindaráði Sameinuðu þjóðanna,
eins og ég hef alltaf tekið fram í
umfjöllun um störf ráðsins,“ segir
Adubisi og vill þakka fyrir:
„Þakka þér fyrir, herra Guðlaugur
Þór Þórðarson. Þakka ykkur kærlega
fyrir, sendinefnd Íslands í Genf, sem
vinnur mikilvægt starf.“
Prinsinn klifrar hratt upp valdastigann
Þátttaka Mohammeds bin Salman
krónprins í stjórnmálum hófst
áður en faðir hans, Salman, var
krýndur árið 2015. Hann varð
ráðgjafi föður síns árið 2009 en
þá var Salman ríkisstjóri Ríad. Hið
skjóta ris hans hófst hins vegar
fyrir alvöru árið þegar Salman
var orðinn krónprins. Ári síðar,
2013, var Mohammed settur yfir
embætti krónprins og fékk stöðu
ráðherra.
Abdúlla konungur lét lífið í
janúar 2015. Samkvæmt hefð-
inni sem Abdulaziz Ibn Saud,
stofnandi þeirrar Sádi-Arabíu sem
við þekkjum nú, varð Salman
konungur enda kveður hefðin á
um að krúnan skuli erfast lárétt í
ættartrénu, ekki lóðrétt.
Með krýningu Salmans jukust
völd Mohammeds til muna.
Árið 2015 var hann
settur yfir fjár-
mála- og þróunar-
ráð ríkisins og ári
seinna kynnti
hann stefnu sína,
Vision 2030.
Stefnan gengur
út á að leysa
sádiarabíska
hagkerfið
undan
olíufíkninni
svo það
geti orðið stöðugt til frambúðar.
Salman gerði Mohammed einnig
að varnarmálaráðherra og varð
hann sá yngsti í heiminum sem
gegndi þeirri stöðu. Sem slíkur
hefur hann haft yfirumsjón með
þátttöku Sádi-Araba í stríðinu í
Jemen.
Salman ákvað svo árið 2017
að fleygja hefð föður síns og
gerði Mohammed að krónprinsi
í stað bróður síns, Mohammeds
bin Nayef. Innanríkisráðuneytið
var sömuleiðis tekið úr höndum
bróðurins og sett í hendur krún-
unnar. Í maí, mánuði áður en hann
varð krónprins, hafði Mohammed
skellt valda- og auðmönnum
í stofufangelsi vegna meintrar
spillingar og þannig losað sig við
mögulegar gagnrýnisraddir.
Talið er að ákvörðun Salmans
um að færa völdin til Mo-
hammeds tengist því að
Salman konungur hafi
verið greindur með
Alzheimer-sjúkdóm.
Krónprinsinn virðist
fá að ráða því sem
hann vill og hefur
getað framfylgt sinni
stefnu án mikilla
andmæla frá
konungi.
f r é t t i r ∙ f r é t t A B L A ð i ð 13L A U G A r D A G U r 2 7 . o k t ó B e r 2 0 1 8
2
7
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
3
3
-D
0
8
C
2
1
3
3
-C
F
5
0
2
1
3
3
-C
E
1
4
2
1
3
3
-C
C
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
2
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K